Meira af júní

Júní var óvenjuhlýr víða í Skandinavíu, á landsvísu sá næsthlýjasti í Noregi (aðeins 1953 var hlýrri) og víða þar í landi var mánuðurinn sá hlýjasti frá upphafi mælinga. Þessi afbrigði koma vel fram á þykktarvikakorti evrópureiknimiðstöðvarinnar.

w-blogg010720i-a

Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar, jafnþykktarlínur strikaðar (mjög daufar) og þykktarvik eru lituð. Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs, því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. Þykktarvikin yfir Noregi eru sérlega stór, meir en 90 metrar, jafngildir það meir en 4 stiga viki - enda var vik frá meðaltalinu 1961 til 1990 +4,8 stig í Þrándheimi (kortið miðar við 1981 til 2010). 

Eins og kom fram hér á hungurdiskum í gær var júní einnig hlýr hér á landi - þó ekki væru þau hlýindi afbrigðileg á neinn hátt. Við getum séð að fremur svalt hefur verið í Baskalandi og Frakklandi sunnanverðu - og sömuleiðis á Vestur-Grænlandi, ekki eru neikvæðu vikin á þessum slóðum þó stór. 

Sunnanáttin í háloftunum var ívið yfir meðallagi júnímánaðar hér á landi - og því var tiltölulega hlýrra norðaustanlands heldur en á Suðvesturlandi. 

Meðalhiti í Reykjavík var 10,2 stig (bíðum þó hins opinbera stimpils). Á þessari öld hefur meðalhiti oftast verið ofan 10 stiga í júní, en við sem eldri erum munum vel að það gerðist aldrei á árunum 1967 til 1997. Á Akureyri var meðalhiti nú rúmlega 11 stig, í 10. til 11. hlýjasta sæti frá upphafi samfelldra mælinga þar 1881. 

Nú hefur orðið mikil breyting í Skandinavíu, þar í gær alveg sérlega djúp lægð yfir Finnland miðað við árstíma. Finnska veðurstofan þurfti að gefa út rauða vindviðvörun á ákveðnum svæðum. Útlitið er ekki sérlega gott þar um slóðir næstu daga. Óvenjukalt loft - miðað við árstíma er á ferð austan við Ísland og ef trúa má spám mun það verða viðloðandi þar næstu daga - jafnvel lengur. Eitthvað teygir þetta kalda loft sig í átt til okkar - en vonandi sleppum við þó að mestu leyti. Það verður hins vegar áfram spennandi að fylgjast með lægðaganginum yfir Skandinavíu - hvort þrýstingur fer þar aftur niður fyrir 980 hPa eins og hann gerði í gær. Það er ekki algengt eftir Jónsmessu. 

Bolli Pálmason gerði kortin. 

Kortið sýnir þykktarvikin næstu 10 daga - eins og evrópureiknimiðstöðin spáir að þau muni verða. 

w-blogg010720i-b

Þetta eru gríðarleg umskipti, en miklu minni hér á landi heldur en fyrir austan land. Eins og sjá má er hitavikið við Þrændalög hátt í -6 stig, en verður samt varla svo mikið á veðurstöðvunum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 7
  • Sl. sólarhring: 58
  • Sl. viku: 405
  • Frá upphafi: 2343318

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 366
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband