Sumri hallar

Því er nú reyndar farið að halla fyrir nokkru og ekki nema tvær vikur rúmar til fyrsta vetrardags. Haustið hefur þó varla látið sjá sig um meginhluta landsins nema þannig að dagarnir styttast óðfluga. Framrás þess á norðurhveli er þó með eðlilegum hætti, það kólnar jafnt og þétt á norðurslóðum, rétt eins og venjulega.

Við lítum sem snöggvast á norðurhvelskort.

w-blogg091019a

Kortið gildir síðdegis á föstudag, 11.október. Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar og má af legu þeirra ráða vindstefnu og styrk. Litir sýna þykktina, en hún mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs, því minni sem hún er því kaldara er loftið. Mörkin á milli gulbrúnu og grænu litanna eru við 5460 metra, gulu litirnir sýna sumarhita. Að undanförnu hefur landið verið ýmist í gula litnum eða þeim ljósasta (hlýjasta) græna. Hér sjáum við hins vegar að það er dekksti græni liturinn sem liggur yfir landinu og ekki er langt í bláu litina. Það er þó þannig að þeir eiga samt ekki að plaga okkur svo mjög á næstunni (séu spár réttar). 

Alvörukuldapollur er við norðurskautið - nokkuð óráðið hvert hann fer eða hvort hann bara liggur áfram í bæli sínu. Það sem hefur verndað okkur er hæðarhryggur sem legið hefur fyrir norðan land. Hans gætir enn á þessu korti - merktur sem rauð strikalína norður um Grænland og svo austur til Síberíu. Nú á kuldapollur við Baffinsland að slíta hann í sundur á leið sinni til suðausturs. Það skiptir mjög miklu máli fyrir framtíðarhorfur hér hver braut þessa kuldapolls verður. Taki hann suðlæga stefnu mun hann um síðir beina til okkar hlýju lofti úr suðaustri - þó ekki eins hlýju og verið hefur ríkjandi hér að undanförnu. Gangi hann hins vegar greiðlega til austurs fyrir sunnan land mun skipta til norðlægra átta og kólna verulega.  

Sem stendur telja reiknimiðstöðvar fyrri kostinn líklegri - kannski verður þó einhver millilausn úr. 

Um helgina virðist sem mikil hlýindi gangi austur um meginland Evrópu, en snarpur kuldapollur er á sveimi um miðbik Bandaríkjanna. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sæll Trausti

Brá nokkuð þegar ég var að skoða spár fyrir veturinn, hjá stóru reiknistofunum. Nú er það auðvitað svo að slíkar spár eru vægt sagt óáreiðanlegar, en það sem setti að mér hroll var að engu líkara en kuldapollurinn sem þú nefnir stundum Stóra Bola, muni staðsetja sig suð-vestur af Íslandi, austan við Grænland í vetur. Fari svo má gera ráð fyrir að hér verði ríkjandi suð-austan áttir, væntanlega rakar og vegna nálægðar Stóra Bola frekar kaldar. Að úrkoma verði meira í formi þess hvíta frekar en þess glæra.

En auðvitað er lítið að marka spár svo langt fram í tíman, þó kannski þetta hermi nokkuð við tilfærslu Stóra Bola undanfarna vetur. Virðist færast austar með hverju árinu. Hitt er svo kannski huggun að þessar stofnanir spáðu í fyrra vetur að hér á landi yrðu ríkjandi suð-vestan áttir í sumar.

Kveðja

Gunnar Heiðarsson, 10.10.2019 kl. 20:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 267
  • Sl. sólarhring: 419
  • Sl. viku: 1583
  • Frá upphafi: 2350052

Annað

  • Innlit í dag: 238
  • Innlit sl. viku: 1441
  • Gestir í dag: 235
  • IP-tölur í dag: 227

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband