Enn af maí

Eins og fram hefur komið var nýliðinn maímánuður afbrigðilegur á ýmsa lund. Við uppgjör kom t.d. í ljós að háloftasunnanáttin var meiri en áður er vitað um. Það sést vel á vikakorti evrópureiknimiðstöðvarinnar.

w-blogg030618a

Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar, en vik flatarhæðar frá meðaltali áranna 1981 til 2010 er sýnt í litum. Bláir litir sýna neikvæð vik, en rauðbrún jákvæð. Ritstjóri hungurdiska minnist þess varla að hafa séð jafnmikil neikvæð hæðarvik í maímánuði eins og það sem er hér yfir Suður-Grænlandi. Stærð jákvæða viksins er ekki alveg jafn óvenjulegt - þó staðsetning þess sé það sjálfsagt. Þar sem neikvæða vikið er beint vestan Íslands og það jákvæða beint austan við verður óvenjulega öflug sunnanátt á milli, eins og áður sagði meiri en áður er vitað um. 

Lega stærstu vikanna er örugglega algjör tilviljun - og hlutur vestan- og sunnanþátta vindsins í heildarstyrknum þar með líka. Vestanáttin er reyndar óvenjusterk líka, en þó má finna dæmi í eldri athugunum um sterkari vestanvind heldur en nú. Tökum við áttirnar tvær saman kemur í ljós að finna má fáein dæmi um ámóta styrk háloftavinda í maí, síðast í maí 1991 og 1992. Á fyrra árið var minnst í pistli gærdagsins - dreifing hitavika um landið var þá svipuð og nú - en samt var þá hlýrra. 

Endurgreiningar giska líka á að svipað ástand og nú hafi verið í maí 1896 - mánuði sem var líka sérlega úrkomusamur suðvestanlands - og mun hlýrri norðanlands heldur en sunnan. 

Við skulum líka líta á þykktarvik maímánaðar.

w-blogg030618b

Við sjáum að þykktin hefur verið ekki fjarri meðallagi við Ísland, undir meðallagi vestanlands. Gríðarlega mikil jákvæð vik „skýra“ hlýindin í Skandinavíu, en stór neikvæð vik benda til kulda á Grænlandi sunnanverðu. Þó neikvæðu vikin við Grænland virðist hrikaleg höfum við samt séð það svartara í maí. Setjum hér vikin í maí 1979 á næstu mynd.

w-blogg030618c

Norðankuldinn er grimmur. 

Þessi miklu vik í nýliðnum maí segja þó lítið sem ekkert um framtíðina. Ekkert samband er á milli veðurlags í maí og júní. Einu mánuðir ársins em sýna marktæk tengsl sín á milli eru júlí og ágúst. Sé kalt eða úrkomusamt í júlí eru þónokkrar líkur á að ágúst verði líka kaldur og úrkomusamur (engan veginn öruggt þó) - sama á við um annars konar veðurlag. 

En lítum á samband maí- og sumarúrkomu í Reykjavik.

  þurrt sumarmeðalvott sumaralls 
     alls 
þurr maí 15131240 
meðalmaí13151341 
votur maí 12131540 
 alls404140121 
       

Taflan sýnir hversu mikil sumarúrkoma fylgir úrkomumagni í maí í Reykjavík. Við höfum gögn 121 árs. Mánuðunum 121 höfum við skipt á þrjá (þvínæst) jafnstóra flokka, 40 þurra, 40 vota og 41 meðalmánuð. Það sama gerum við fyrir sumarúrkomuna (júní til ágúst). Hvert ár myndar par - sem við síðan setjum á sinn stað í töflunni. Úr henni getum við lesið að votum maí hefur 15 sinnum fylgt vott sumar (38 prósent), en úrkoma hefur verið í meðallagi eða vel undir því í 62 prósent tilvika (12+13=25 sinnum). Allt saman býsna tilviljanakennt að sjá. 

Ritstjóri hungurdiska þakkar að vanda Bolla fyrir meðaltalskortin. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 52
  • Sl. sólarhring: 53
  • Sl. viku: 543
  • Frá upphafi: 2343305

Annað

  • Innlit í dag: 48
  • Innlit sl. viku: 494
  • Gestir í dag: 41
  • IP-tölur í dag: 37

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband