Vetrarólympíuleikarnir og Síberíu-Blesi

Eins og fram hefur komið í fréttum er spáð kulda við upphaf vetrarólympíuleika í Suðurkóreu. Við lítum á hvað veldur.

w-blogg080218a

Á kortinu má sjá hæð 500 hPa-flatarins og þykktina yfir norðanverðu Kyrrahafi eins og bandaríska veðurstofan spáir síðdegis á laugardag (að okkar tíma). Þykktin er sýnd í lit. Norðausturhluti Asíu er til vinstri á myndinni - Kórea skammt frá jaðrinum og Japan þar rétt hægra megin við. Havaíeyjar eru hins vegar neðarlega til hægri. 

Þessa dagana sveiflast suðurjaðar kuldapollsins Síberíu-Blesa framhjá Kóreu - fjólublái liturinn býsna nærgöngull. Það verður hins vegar að taka fram að Blesi er frekar rýr um þessar mundir miðað við það sem oft er á þessum árstíma - ekki nema einn fjólublár litur. Meginlandsloftið er þurrt - líka yfir Kóreu - en það dregur hins vegar í sig raka yfir Japanshafi og þegar það kemur yfir Japansstrendur dengir það úr sér miklum snjó. Á þeim slóðum getur snjóað meira en víðast hvar í heiminum. 

En spár gera ráð fyrir því að heldur hlýni aftur í Kóreu eftir helgi - en ritstjórinn játar fúslega mikla vankunnáttu sína í smáatriðum veðurlags þar um slóðir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Rafbréf frá Minsk, höfuðborg Hvíta-Rússlands, síðastliðinn miðvikudag, í lauslegri þýðingu undirritaðs:

"Loksins er veturinn kominn hingað og við höfum fengið snjó! Nær allan veturinn hafa verið hér plús 3 til mínus 2 gráður og snjór einungis í eina til tvær vikur.

Það er óvenjulegt og sorglegt en ég vona að það sé nú að snúast til betri vegar."

Þorsteinn Briem, 9.2.2018 kl. 00:16

2 identicon

Sæll Trausti og þakkir fyrir fjólubláa frásögn. Áhugasamir veðurnördar hljóta að fagna nýjum veðurmetum, þótt köld séu. Köldustu Ólympíuleikar sögunnar eru varla vísbending um fordæmalausa hnatthlýnun þótt sanntrúaðir geti vonast eftir einhverri hlýnun í framtíðinni.

"Í fjöll­un­um má bú­ast við -25°C með vind­kæl­ingu, að því er fram kem­ur í frétt BBC. Þar með yrði kulda­met frá leik­un­um í Lillehammer í Nor­egi slegið og gott bet­ur en þá fór frostið niður í 11 gráður."

Ekki lýgur BBC (nema C&Æ): https://www.mbl.is/frettir/erlent/2018/02/09/koldustu_olympiuleikar_sogunnar/

Í tilefni af merkjanlegri hnattkólnun eru vísindamenn farnir að rannsaka snjó, hvenær hægt er að leggja hann sér til munns og hvort ávöxtur kólnunar sé hættulegur börnum. Ekki er að efa að íslenskir veðurfræðingar munu tíunda þetta rækilega í RÚV og hætta að agintera fyrir viðskiptabanni á Kína:

"Óhætt er að borða hálfs­dags gaml­an snjó. Ef snjór­inn er orðinn tveggja sól­ar­hringa gam­all er hins veg­ar best að láta hann kyrr­an liggja. Þetta er niðurstaða vís­inda­manna við Sapientia-há­skól­ann í Tras­ilvan­íu í Rúm­en­íu." https://www.mbl.is/frettir/taekni/2018/02/09/ferskur_snjor_haefur_til_atu/

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 9.2.2018 kl. 13:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 295
  • Sl. sólarhring: 443
  • Sl. viku: 1611
  • Frá upphafi: 2350080

Annað

  • Innlit í dag: 264
  • Innlit sl. viku: 1467
  • Gestir í dag: 261
  • IP-tölur í dag: 252

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband