Óróleg vika framundan?

Næstu dagar gætu orðið mjög órólegir í veðri, hvassviðri, rigning og hiti. 

Mjög hlýtt var víða um land í dag (sunnudag 6. september), sérstaklega eystra þar sem hiti komst yfir 20 stig á allmörgum stöðvum og hæst í 22,9 stig á Seyðisfirði. Það jafnar hæsta hita ársins á landinu til þessa, en hann mældist fyrir nokkrum dögum á Sauðanesvita.

Hitamet septembermánaðar féllu 13 stöðvum, þar af á nokkrum sem mælt hafa lengi, það eru: Papey (1998), Bjarnarey (1996), Eskifjörður (1998), Egilsstaðaflugvöllur (1998) og Hallormsstaður (1997). Hitinn á Egilsstaðaflugvelli var lítillega hærri í dag (22,0 stig) heldur en það hæsta sem þar mældist á mönnuðu stöðinni í september (21,9 stig, 5. september 1958). Þetta var alvöruhitaskot - þetta var hæsti hiti ársins á 25 stöðvum - og 16 vegagerðarstöðvum að auki - spurning hvort eitthvað verður bætt um betur úr þessu - aldrei þó að vita. 

Almennt eru spár á því að ekki verði hámark morgundagsins (mánudags) alveg jafnhátt, en samt er alveg möguleiki á því. Bæði þykkt (sem mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs) sem og mættishiti í 850 hPa spá sýna vænlegar tölur. 

Sá má mættishitakort evrópureiknimiðstöðvarinnar sem gildir kl. 18 á morgun hér að neðan. Mættishiti segir til um hver hiti lofts sem statt er í 850 hPa hæð (á kortinu í um 1500 metrum yfir sjávarmáli) yrði ef takast mætti að draga það niður í 1000 hPa - án innblöndunar. Í reynd er þetta nokkuð erfitt verkefni - vind þarf til - hentug fjöll og fjallabylgjur - og helst sólskin líka. Fer þetta sjaldan saman - en aldrei þó að vita.

w-blogg070915a

Hér má sjá að mættishiti yfir Austfjörðum verður í hæstu hæðum á morgun. Einhvern veginn svona - eða heldur betri - hafa skilyrðin verið þegar landshitamet septembermánaðar var sett á sínum tíma, 12. dag mánaðarins, 1949. Þá var þykktin að vísu enn meiri en spáð er á morgun - 5626 metrar þar sem mest var við landið (samkvæmt endurgreiningu bandarísku veðurstofunnar). Á morgun er þykktarhámarkið um 5800 metrar. 

En raunverulegur möguleiki er á því að hitinn verði sá hæsti á landinu á árinu á morgun (mánudag). - En við verðum bara fyrir hóflegum vonbrigðum gerist það ekki - líkur eru minni en meiri. 

En hlýindin eystra standa líka á þriðjudag - og aðfaranótt miðvikudags - staðbundin septembermet eru möguleg allan þann tíma. Þá á erfið lægð að koma sunnan úr höfum. Hún er erfið bæði vegna þess að henni gæti fylgt verulegt hvassviðri - en líka vegna þess að reiknimiðstöðvar virðast ekki ná mjög góðu taki á henni - hún gæti hreinlega gufað upp. 

Hluti vandans er að hún er rétt svo að verða til - og óvenjulangt suður í hafi. Það er mjög erfitt að koma kröppum lægðum þessa leið - nánast ekki hægt. Seint annað kvöld verður komið fárviðri í kringum lægðina (sé að marka evrópureiknimiðstöðina) og sýnir kortið hér að neðan stöðuna á miðnætti.

w-blogg070915b

Jafnþrýstilínur eru heildregnar, strikalínur sýna þykktina og litir þrýstibreytingu síðustu 12-klukkustundir. Af litum og þrýstilínum má sjá að hér er um óvenju krappa lægð að ræða miðað við septembermánuð. Hún stefnir norður. 

En eins og áður sagði er mjög erfitt fyrir lægðir sem orðnar eru þetta djúpar og krappar á þessum slóðum að komast alla þessa leið. Reiknimiðstöðvar eru allar sammála um að hún grynnist mikið á þeirri leið - en sunnan og suðaustanveðrið á undan henni virðist eiga að halda styrk sínum að mestu óskertum - þar til lægðin er komin í námunda við Ísland um sólarhring síðar (á þriðjudagskvöld). - Þá gufar það upp. 

Þriðja kortið sýnir vinda í 300 hPa á þriðjudagskvöld - þá er háloftaröstin rétt suðvestan við land - og hvassviðrið - ef það kemur á annað borð tengist henni náið. Enn er sem sagt von til þess að við sleppum. 

w-blogg070915c

Þetta er ekki sérlega aðlaðandi staða - en hlý er hún. Á sjávarmálskortinu hér að ofan er svo önnur lægð - við Nýfundnaland. Hún á að plaga okkur síðar í vikunni, dýpri en sú fyrri - en annarrar gerðar. Rétt að fylgjast með henni líka. 

Útlit er því fyrir spennandi viku hjá þeim sem fylgjast náið með veðri (eins og venjulega). 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er samt betra að ekki sé um hart norðanskot að ræða. Allt er betra en kuldinn.Í rauninni finnst mér bara allt í lagi með þetta veður, tala nú ekki um þar sem best er og hlýjast.

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.9.2015 kl. 11:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 22
  • Sl. sólarhring: 113
  • Sl. viku: 1513
  • Frá upphafi: 2348758

Annað

  • Innlit í dag: 21
  • Innlit sl. viku: 1319
  • Gestir í dag: 20
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband