Mikill órói

Og enn blotar - og frýs svo aftur - og - og .. Ekkert lát er á umhleypingunum. Lægðin sem verður við landið á laugardag (14. febrúar) og sunnudag er djúp. Reiknimiðstöðvar eru þó ekki alveg vissar um hversu djúp hún verður. Það flækir mjög málið að lægðin er ekki ein á ferð - heldur er önnur sem dregur hana uppi og reynir að sameinast þeirri fyrri. 

Þessi lægðasameining hefur þann „kost“ að útsynningurinn sem ætti að fylgja fyrri lægðinni strax á laugardagskvöld kemur ekki - fyrr en nærri sólarhring síðar. Nema að það sé einmitt ókostur? Þetta stendur þó mjög glöggt. 

En blotinn er mikill - kortið hér að neðan sýnir hámark hlýindanna um miðnætti á laugardagskvöld. 

w-blogg140215a

Jafnþykktarlínur eru heildregnar - en hiti í 850 hPa-fletinum er sýndur í lit. Þykktarmynstrið yfir landinu er flókið - kaldara er áveðurs (í uppstreyminu) en hlýrra norðan fjalla þar sem niðurstreymi er mest. 

En þetta fýkur fljótt hjá. Meginspurningin er hversu seint síðari lægðin kemur að landinu. Því síðar sem það gerist því líklegra er að töluverð snjókoma fylgi kuldaskilunum - einkum þá um landið vestanvert. - Sameinist lægðirnar hins vegar beint vestur af landinu fara kuldaskilin hratt hjá og hann gengur strax í útsynning með hefðbundnum éljum. Hvor kosturinn er skárri er smekksatriði - einkum snjór - eða einkum hálka - gjörið svo vel.

En útsynningurinn er svo ansi kuldalegur - eins og kortið að neðan sýnir. Það gildir kl. 18 síðdegis á mánudag. Élin gætu orðið efnismikil eftir að Grænlandshaf hefur reynt að hita loftið upp undir frostmark. 

w-blogg140215b

Hlýja loftið er hér alveg horfið - langt norður í Ballarhaf - hugsanlega rignir á Svalbarða (það vill örugglega enginn þar um slóðir). Við sjáum hvernig klær kuldabola falla niður af Grænlandi og reyna að krækja sig austur fyrir sunnan Hvarf. Þykktin sem var meiri en 5460 metrar um einum og hálfum sólarhring áður er nú komin niður í 5080 yfir miðju landi - fall um 380 metra eða meira, 19 stiga hitafall (og e.t.v. meira þar sem mest verður). - Æ. 

En - rúmum sólarhring síðar á þykktin að vera komin aftur upp fyrir 5300 metra - svo greinir reiknimiðstöðvar að - eins gott - það gefur von. En að sögn mun hiti verða í meðallagi næstu tíu daga - jú, meðaltalið af -10 og +10 er núll. Þetta er mikill órói. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 264
  • Sl. sólarhring: 417
  • Sl. viku: 1580
  • Frá upphafi: 2350049

Annað

  • Innlit í dag: 235
  • Innlit sl. viku: 1438
  • Gestir í dag: 232
  • IP-tölur í dag: 224

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband