Smávegis um rigninguna 17. júní

Eins og fram hefur komiđ hefur aldrei rignt jafnmikiđ í Reykjavík á ţjóđhátíđardaginn og nú. Heildar úrkoma var 22 mm. 

Tölvuspár náđu góđu taki á rigningunni međ ađ minnsta kosti 4 daga fyrirvara. Viđ lítum á nokkur spákort. Ţađ fyrsta er úr runu evrópureiknimiđstöđvarinnar frá hádegi 15. júní - 57 klst áđur en rigningin náđi hámarki. 

w-blogg190614a

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér má sjá úkomuákefđ (litir), sjávarmálsţrýsting (heildregnar línur) og vindátt og vindstyrk (hefđbundnar vindörvar). Blái liturinn sem liggur inn yfir landiđ suđvestanvert segir ađ rignt hafi 5 til 10 mm á ţremur klst áđur en spátíminn rennur upp, eđa 1,7 til 3,3 mm ađ jafnađi á klukkustund. Ólíklegt er ađ sú úrkoma falli jafn á klukkustundirnar ţrjár og líklegt ađ mesta klukkustundarákefđin á tímabilinu sé jafnvel meiri. Rétt „svar“ fyrir Reykjavík var 9,9 mm frá kl. 18 til 21.

Ekki var fariđ ađ rigna um hádegi ţann 17. en nćsta kort sýnir sama tímabil og kortiđ ađ ofan - en ađ ţessu sinni úr spárununni sem byrjađi kl. 12 (kom reyndar ekki í hús fyrr en eftir kl. 18).

w-blogg190614b

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ţetta kort er mjög svipađ ţví fyrra. Enn er 3 klst. úrkoma sögđ 5 til 10 mm á 3 klst milli kl. 18 og 21. Engin tíđindi hér umfram fyrri spá.

Síđasta kortiđ sýnir spá harmonie-líkansins um úrkomu milli kl. 19 og 20 ţetta sama kvöld. Takiđ eftir ţví ađ hér er ákefđin miđuđ viđ klukkustundina.

w-blogg190614c

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér sýnir grćnblái liturinn 5 til 10 mm á klukkustund. Reykjavík er ekki langt frá mörkum 3 til 5 mm/klst og 5 til 10 mm/klst. Ţessa klukkustund mćldist úrkoman í raun og veru 3,0 mm.

Mest varđ ákefđin í Reykjavík 5,3 mm (og 5,8 mm á búveđurstöđinni nokkra metra í burtu) milli kl. 21 og 22. Ţetta eru háar tölur í Reykjavík og međ mestu klukkustundarákefđ sem vitađ er um á stöđvunum tveimur í júnímánuđi. 

Á harmonie-kortinu kemur vel fram ađ úrkoma var einnig mikil inn til landsins á Vesturlandi sem og víđa á í Húnavatns- og Skagafjarđarsýslum ţar sem úrkoman mćldist á bilinu 20 til 30 mm. Ţađ telst mikiđ. Úrkoma hefur veriđ mćld á Stafni í Svartárdal í Húnavatnssýslu í 16 ár og hefur ađeins einu sinni međ vissu mćlst meiri sólarhringsúrkoma heldur en nú. Ţađ eru 39,1 mm sem mćldust 24. október í haust. Nú mćldust 32,7 mm. 

Nú mćldust 22,0 mm á Litlu-Hlíđ í Skagafirđi. Ţađ er meira á sólarhring en áđur hefur mćlst ţar í júní, en athuganir eru samfelldar frá 1991.  

Lćgđin var grunn - en ţó býsna regluleg, rétt eins og stćrri náskyldar systur hennar. Ţađ sést vel á ţrýstiritinu hér ađ neđan. Ţađ sýnir loftţrýsting á klukkustundarfresti í Reykjavík 16. til 18. júní.

w-blogg190614d

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Lćgđin fór skammt fyrir austan Reykjavík og var ţar 10 hPa „djúp“. Vindur var ekki mikill víđast hvar - en náđi ţó stormstyrk á Stórhöfđa (21,1 m/s og 26,4 m/s í hviđu). Býsna fallegt allt saman (ţótt margir hafi vćntanlega blotnađ). 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 33
  • Sl. sólarhring: 319
  • Sl. viku: 1607
  • Frá upphafi: 2350234

Annađ

  • Innlit í dag: 31
  • Innlit sl. viku: 1480
  • Gestir í dag: 31
  • IP-tölur í dag: 31

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband