Hiti - 365 daga keðjumeðaltal

Við reiknum fyrst daglegan meðalhita allra sjálfvirkra stöðva í byggð og búum síðan til 365-daga keðjumeðaltal. Reikningarnir ná yfir tímabilið janúar 1995 til júlímánaðar 2013.

w-blogg011013-sj-medalhiti365

Lóðrétti ásinn sýnir hita - í þessu tilviki meðaltal 365 daga. Lengst til vinstri er 31. desember 1995. Ártölin eru alltaf sett í enda ársins - þegar allir dagar hafa gefið upp sinn meðalhita. Þetta á þó ekki við ártalið 2013 - því ári er ekki alveg lokið. Síðasta tala línuritsins á við 19. júlí 2012 til 18. júlí 2013. Stöðvasafnið var frekar gisið fyrstu 2 árin og rétt að hafa það í huga. 

Græna línan sýnir leitni tímabilsins. Hún segir okkur að hiti hafi hækkað um 0,9 stig á tímabilinu öllu. Nú mun hver líta sínum augum á línuritið. Fáir munu þó komast hjá því að sjá hversu afbrigðilegur hitinn virðist hafa verið 2002 til 2004, hann skellur snögglega á sem einskonar holskefla miðað við aðrar sveiflur - og hjaðnar líka hratt. Síðan kemur óvenjuleg flatneskja. Í langtímasamhengi er hún mjög óvenjuleg - venjulega ganga allstórir öldufaldar og öldudalir yfir með 2 til 5 ára millibili - meira að segja á fyrri hlýskeiðum 20. aldar.

Við munum síðar líta á fleiri myndir af þessu tagi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst H Bjarnason


Þetta er merkilegur ferill fyrir margar sakir eins og tíundað er í pistlinum.

Fyrir utan toppinn um 2003 þá er flatneskjan þar á eftir mjög áberandi. Í lokin má jafnvel greina niðursveigju á ferlinum, en það er kannski ekki marktækt.

Flatneskjan þarf þó ekki að koma á óvart því hún er áberandi á öllum helstu ferlum sem sýna hitafar lofthjúps jarðar. Reyndar nær hún þar jafnvel yfir enn lengra tímabil en á þessum íslenska ferli.

Við skulum bara vona að áfram haldist hlýtt og að þessi ferill fari ekki að sveigja niðurávið á næstu árum, en það óttast ég að verði. Tíminn einn mun skera úr um það.  Kólnun væri afleit fyrir okkur Íslendinga.

 http://agbjarn.blog.is/users/fa/agbjarn/img/allcompared_globalmonthlytempsince1979_1216844.jpg

Myndin er ferngi að láni hjá þessari ágætu vefsíðu:  climate4you.com

Hnattrænn lofthiti: Tvær gervihattamælingar og þrjár hefðbundnar frá árinu 1979 þegar mælingar með gervihnöttum hófust

Ágúst H Bjarnason, 1.10.2013 kl. 07:20

2 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Áhugavert, gaman væri að sjá myndina hans Trausta fyrir lengra tímabil.

En talandi um áhugaverð línurit, þá var ég að rekast á þessi skemmtilegu línurit á heimasíðu Veðurstofunnar. Þar er það reyndar hnattrænn hiti - "pásan" verður ekki mjög áberandi ef maður skoðar nógu langt tímabil (sem er nauðsynlegt þegar verið er að skoða loftslag): 

 http://www.vedur.is/media/loftslag/full/mynd-1_hitabreytingar.png

Samantekt á hitamælingum.
a) Tímaraðir sem sýna breytingar í hnattrænu ársmeðaltali. Sýndar eru samantektir þriggja stofnana.
b)  Áratugameðaltöl gagnanna í a).
c) Kort af hitabreytingum í MLOST gagnasafninu fyrir tímabilið 1901 til 2012.  Hitabreytingin er reiknuð út frá hallatölu bestu línu gegnum gagnasafnið í hverjum reit. Gerð er krafa um að gögn séu til staðar fyrir a.m.k. 70% tímabilsins, og a.m.k. 20% tímans fyrstu og síðustu 11 árin. 

Höskuldur Búi Jónsson, 1.10.2013 kl. 11:10

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það hefur kólnað verulega síðan 2001. Hlýtur að vera áhyggjuefni

Gunnar Th. Gunnarsson, 1.10.2013 kl. 11:51

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hversu afleit væri kólnun á Íslandi, t.d.  frá því sem verið hefur á þessari öld? Þó árshiti á landinu myndi lækka um hálfa gráðu frá þeim árum, næsta áratug segjum við, yrði sá áratugur samt hlýrri en hitameðaltal hlýindaárana 1931-1960, hvað þá annarra tímabila. Ég vildi auðvitað að ekki myndi kólna en er næstum því viss um að svo verði, miðað við síðustu tólf ár. Það þýðir samt ekki að verði kalt á landinu, kuldaskeið. Mér finnst satt að segja ekki hægt að ætlast til að  stöðugt framhald verði á hlýindum þessarar aldar, hvað þá að þau hlýindi eigi að vera viðmið um ''eðlæegt'' veðurfar og menn geti þá æpt hástöfum (sumir sigri hrósandi) að nú sé nýtt kuldaskeið hafið ef smavegis út bregður. Fremur finnst mér að beri að líta á hitann á þessari öld sem hlýindabólu sem muni hjaðna eða springa. Við skulum samt vona að ekki verði algjört hitahrun og hitakreppa! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.10.2013 kl. 11:58

5 identicon

Þetta er auðvitað ekki boðleg nálgun hjá þér Trausti, frekar en fyrri daginn. Viltu ekki veifa þessari "sviðsmynd" þinni framan í bændur á Norður- og Austurlandi sem þora ekki annað í dag en að smala afrétti í ágústmánuði?

Það er því miður ljóst að hákirkja íslenska kolefnissafnaðarins er til húsa hjá Veðurstofu Íslands og öll "gögn" sem þaðan eru ættuð, þýðingar og túlkanir á Evangelíum IPCC, bera kolefnisblætinu óræk merki.

Er veðurtrúboði ekki örugglega nýyrði Trausti?

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 1.10.2013 kl. 13:40

6 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Hitamælarnir ljúga ekki nema þeir séu forritaðir til að þjóna hákirkju íslenska kolefnissafnaðarins, sem mér finnst svona heldur ólíklegt.

Emil Hannes Valgeirsson, 1.10.2013 kl. 14:16

7 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Ég tek undir með Höskuldi að gaman væri að sjá svona mynd fyrir lengra tímabil, gjarnan sem lengst og þá með þeim mælistöðvum sem til eru á hverjum tíma.

Við erum orðin svo góðu vön hér á landi að kólnun um hálfa gráðu væri viðbrigði. Það fer ekki á milli mála hve vel gróðurinn hefur sprottið undanfarin ár. Vonandi fáum við að njóta veðurblíðunnar áfram :-)

Ágúst H Bjarnason, 1.10.2013 kl. 17:19

8 identicon

Bendi vinsamlegast á að 365 daga keðjumeðaltalssviðsmynd Trausta er markleysa - enn eitt sýndarlínurit Veðurstofu Íslands. Grunnurinn er sagður vera "daglegur meðalhita allra sjálfvirkra stöðva í byggð". Útkoman vekur æði margar spurningar:

1. Hvað eru sjálfvirkar stöðvar í byggð margar?

2. Hvers vegna er sjálfvirkum stöðvum í óbyggðum sleppt?

3. Hvar eru frumgögnin?

4. Hvernig lítur leitnilínan 2003 - 2013 út?

5. Hvernig lítur 365 daga keðjumeðaltal mannaðra stöðva í byggð út fyrir sama tímabil?

Það er þó dagljóst að myndskreyting Trausta sýnir markverða kólnun á Íslandi sl. 10 ár - staðreynd sem starfsmenn Veðurstofu Íslands gerðu vel í að koma á framfæri við vini sína hjá IPCC.

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 1.10.2013 kl. 22:46

9 Smámynd: Trausti Jónsson

Ágúst - þegar ég tala um flatan feril eftir 2005 á ég ekki við að leitnin sé lítil heldur fremur það að hitinn hangir ofan við 4 stig nánast látlaust, en fer heldur ekki yfir 5. Á fyrra hlýindaskeiði fór hiti oft yfir 4 stig, jafnvel 5, en aldrei svona lengi í einu. Var hins vegar að sífellt að detta niður í 3 til 3,5 á milli toppanna. Núverandi ástand er mjög óvenjulegt, 12 ár með landsmeðalhita um eða yfir 4 stigum - náttúran hefur aldrei séð slíkt á mælitímabilinu öllu (í 200 ár) - það var helst á hafísárunum svonefndu sem hreyfingar voru líka litlar - en þá á milli 2 og 3 stiga. Hinar venjubundnu sveiflur eru miklu stærri heldur en undirliggjandi hnattræn hlýnun. Á norðurslóðum ríkir sú einkennilega staða að þótt búist sé við því að hnattræn hlýnun verði þar hvað mest á heimsvísu er þar jafnframt erfiðast að sýna fram á að hún eigi sér stað. Hilmar. (1) og (5), sjá pistil dagsins í dag. (2) Óbyggðastöðvar eru nýtt fyrirbrigði, að klúðra saman hálendi og láglendi eyðileggur möguleika á hitasamfellu sem nær til lengri tíma en síðustu 15 ára. Við litum á hálendisstöðvarnar síðar - ef þrek ritstjórans endist. (3) Frumgögnin eru í töflu í gagnagrunni Veðurstofunnar. Síðustu 4 dagar eru alltaf aðgengilegir. (4). Hér er sífellt verið að taka fram að leitni yfir skemmri tímabil er marklaus. Þar að auki segir leitni yfir langan tíma nákvæmlega ekki neitt um framtíðina - meira að segja sú sem stendur í 100 ár. Leitni er fyrst og fremst reiknuð til greiningar - menn leita skýringa á liðnum hitabreytingum - skýringa er leitað til að sjá betur í gegnum tilviljanasuðið. Leitnin frá 2003 til 2004 er þannig að hefði hún haldið áfram væri meðalhití á landinu nú kominn niður í um -20 stig. Nenna menn að þrasa um slíkt? Að reikna leitni frá 2003 til 2013 er jafnmarklaust.

Trausti Jónsson, 2.10.2013 kl. 02:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 209
  • Sl. viku: 1325
  • Frá upphafi: 2349794

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 1211
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband