en Akureyrarsumarið í því ...

Í síðasta pistli var ekki alveg lokið við sumarmetinginn, sumarið nyrðra varð að mestu leyti útundan (svo ekki sé talað um eystra). Við göngum nú frá tölunum fyrir Akureyri.

Sumarið byrjaði sérlega vel norðanlands og austan, júnímánuður með 15 stig af 20 mögulegum á Akureyri enda var bæði óvenjusólríkt og hlýtt - toppskor (5 stig) í báðum tilvikum. Úrkoma og úrkomudagafjöldi náði samtals 5 stigum - af tíu mögulegum. Júlí gaf hins vegar aðeins 6 stig og ágúst 9. Undanfarin sumur hafa verið miklu blandaðri á Akureyri heldur en í Reykjavík og bæði góðir og vondir mánuðir gengið hjá. Reykjavíkursumur síðustu ára hafa hins vegar nær eingöngu verið góð - og þá langflestir mánaðanna líka.

Gæðasumma mánaðanna þriggja á Akureyri er 30 stig (af 60 mögulegum). Frá 1928 hefur þó ekkert sumar náð meira en 40 stigum. Það var 2012 - í fyrra. Stigin 30 gefa akureyrarsumrinu 2013 22. sæti af 86. Meðaltal áranna 1961 til 1990 er 23 stig og meðaltal síðustu 10 ára 29 stig. Greinilega vel heppnað sumar á Norðurlandi austanverðu.

Í pistlinum í gær kom fram að sumardagafjöldinn til þessa á Akureyri væri 39. September á að meðaltali þrjá sumardaga nyrðra og október einn (1961 til 1990). Enn getur því bætt í fjöldann.

Enn verður að taka fram að einkunnagjöf þessi er leikur þó hann byggi á mælingum. Vísindagildi er ekkert. Þeir sem láta að því liggja eru á villigötum - megi þeir finna rétta veginn sem fyrst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman væri að heyra frá þér um hvernig staðan er á á árinu á ársgrundvelli (frá september til ágúst eins og þú hefur áður skrifað um). Einnig samanburð við fyrri 5 og 10 ára tímabil - og jafnvel 30 ára eins og þú hefur gert áður.

Þó svo að þú sért full hallur undir "hlýnandi veður"-kenningarnar þá eru upplýsingarnar frá þér þær bestu sem maður fær hér á landi einmitt um þær - og því gott fyrir okkur amatörana að heyra um þessi atriði.

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 3.9.2013 kl. 19:59

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Torfi. Ég lít vonandi yfir þetta svið eftir um það bil mánuð - ég hef gert það að hausti undanfarin ár.

Trausti Jónsson, 4.9.2013 kl. 00:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 38
  • Sl. sólarhring: 113
  • Sl. viku: 1529
  • Frá upphafi: 2348774

Annað

  • Innlit í dag: 35
  • Innlit sl. viku: 1333
  • Gestir í dag: 34
  • IP-tölur í dag: 33

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband