Enn um stefnumót föstudagsins

Í dag hefur enn verið talsvert hringl á illviðrisspánum - evrópureiknimiðstöðin dró talsvert úr veðrinu í miðnæturrunu sinni - en gekk síðan aftur til svipaðs ástands og spáð var í gær þegar kom að hádegisrununni. Af þessu má auðvitað sjá að þeir veðurfræðingar sem gefa út alvöruspár geta ekkert hætt því að fylgjast mjög náið með alveg þar til tími illviðrisins er liðinn hjá. Ritstjóri hungurdiska getur hins vegar leyft sér að fylgjast með úr fjarlægð - og getur litið undan þegar honum svo sýnist. Til allrar hamingju gerir hann engar spár - masar aðeins um þær.

En lítum fyrst á mynd sem sýnir samanburð sjávarmálsspár evrópureiknimiðstöðvarinnar á hádegi í dag (fimmtudag 29. ágúst) og hádegisspárinnar í gær. Kortið gildir kl. 24 á föstudagskvöld.

w-blogg300813aa

Heildregnu línurnar sýna nýrri spána en punktalínurnar spána frá í gær. Lituðu svæðin sýna svo mismuninn, þau rauðu þekja svæði þar sem þrýstingur spárinnar í dag er meira en 2,5 hPa lægri heldur en spáin í gær sýndi en þau bláu þar sem spáin i dag sýnir hærri þrýsting en í gær.

Lægðin er greinilega ámóta djúp - örlítið vestar heldur en spáð var í gær, en þrýstingi er nú spáð heldur lægri vestur undan heldur en í gær.

Næsta kort ber saman spána frá miðnætti og hádegisspána á sama hátt.

w-blogg300813a

Hér er málið annað og vel sést hversu linari miðnæturspáin var heldur en bæði spáin frá hádegi í gær og sú nýjasta - frá hádegi í dag. Með lagni má sjá tölu í dökkrauða svæðinu. Hún sýnir 7,2 hPa. Það er umtalsvert fyrir spá sem nær innan við tvo sólarhringa fram í tímann. Eftir að hafa linast á spánni síðastliðna nótt herðir aftur á þannig að niðurstaðan verður svipuð og í gær.

En - það er reyndar fleira sem hefur breyst. Í gær var ekki reiknað með að lægðin næði að mynda það sem við köllum venjulega snúð eða lægðasnúð. Inni í slíkum eru oftast öflugar lægðarmiðjur, þrýstilínur þéttar og vindur mikill. Við ættum kannski að fjalla nánar um þetta fyrirbrigði síðar og hugsanlegar aðrar nafngiftir, en hér nægir að nefna tvö mikilvæg einkenni þess.

Það fyrra er eins konar hnútur mjög lágra veðrahvarfa, hola í veðrahvarfafletinum - hið síðara að í neðri hluta veðrahvolfs er hlýrra loft heldur en umhverfis. Sumir segja að loft úr hlýja geira lægðarinnar hafi lokast þar inni - við skulum þykjast trúa því - hér er ekki vettvangur trúarbragðadeilna. En alla vega - það er hlýrra loft inni í snúðnum heldur en utan við hann. Þetta er frábrugðið „venjulegu“ ástandi þar sem loft er mjög kalt undir lágum veðrahvörfum.

En lítum fyrst á veðrahvarfaspá evrópureiknimiðstöðvarinnar sem gildir kl. 6 að morgni laugardags.

w-blogg300813c

Kortið nær yfir sama svæði og þau að ofan og sýnir þrýstihæð veðrahvarfanna - það er að segja hver þrýstingurinn er í þeim. Bláu svæðin sýna mjög há veðrahvörf. Tölur og litir standa fyrir hPa. Kortið batnar við stækkun. Hér sést veðrahvarfaholan rétt norðan við land - í lægðarmiðjunni. Þar má sjá töluna 729 hPa og hvítfjólubláan blett. Veðrahvörfin sýnast hér ganga niður fyrir 3 km hæð. Þetta segir út af fyrir sig ekkert um vind eða þrýstifar við sjávarmál - veðrahvarfaholur án hvassviðra eru mjög algengar.

En - til að áhrif þrýstibrattans í kringum holuna gæti við sjávarmál verður að vera hlýrra undir henni heldur en utan við - eða að minnsta kosti mjög flatt þykktarsvið (hitasvið). Veðrahvörfin liggja hér miklu lægra heldur en spáð var í gær. Það þýðir að einhver aðili stefnumótsins (sem munar um) hefur mætt „óvænt“ á svæðið. Við getum því miður ekki velt vöngum yfir því hér - pistillinn þegar orðinn allt of langur. En höfum í huga að holan er mikið smáatriði í stórum heimi - eitt þeirra sem getur vel horfið milli einstakra spáruna líkana - eða glatast í einu líkani en dúkkað upp í öðru.

Næsta kort sýnir hita og vind í 925 hPa-fletinum á sama tíma og veðrahvarfakortið gildir.

w-blogg300813f´

Jafnhæðarlínur eru heildregnar, vindur er sýndur með hefðbundnum vindörvum en hiti með litum. Hér sést að hlýjast er í lægðarmiðjunni - eins og vera ber í snúðum. Mjög hvasst er sunnan við - 30 m/s í innan við 500 m hæð. Vinds af þessu tagi getur hæglega gætt á fjöllum og við horn í landslagi þótt hann sé almennt minni niður við sjávarmál. Þarna er veðrið farið að ganga niður á Vestfjörðum.

Við lítum að lokum á snjókomuspá harmonielíkansins sem sýnir ákomuna frá kl. 18 á föstudag til kl. 06 á laugardag - 12 klukkustundir liggja undir.

w-blogg300813e

Gráu svæðin sýna hvar sýndarsnjór hefur fallið, mínustölur sýna hvar snjór sem fyrir var hefur bráðnað. Við sjáum að sýndarsnjór hylur stóran hluta hálendisins. Langmestur er hann þó á austanverðum Tröllaskaga. Þar eru tölur á bilinu 40 til 75 kg á fermetra. Í lausamjöll jafngildir það 40 til 75 cm dýpt. Þetta eru þó einstök hámörk - gildin á kortinu eru yfirleitt talsvert lægri.

Þar sem þessi snjór fellur víðast hvar á auða jörð bráðnar mikið nærri því um leið auk þess sem hann verður krapkenndur - eðlismassi er þá talsvert hærri heldur en í lausamjöllinni og snjódýptin þar af leiðandi minni en hráar tölur kortsins gefa til kynna.

Ef menn skoða smáatriðin kemur í ljós að 2 kg á fermetra hafa bráðnað úr Esjunni, sá snjór féll í líkaninu fyrir kl. 18 á föstudag - skyldi Esjan grána í kollinn í þessu hreti?

Enn er minnt á að hungurdiskar gefa ekki út spár - öll túlkun lesenda í þá veru er á eigin ábyrgð. Þeir eru hins vegar hvattir til að fylgjast með spám Veðurstofunnar - þar er símannað allan sólarhringinn og fylgst er með veðri og tölvuspám frá mínútu til mínútu.

Lýkur hér þessum allt of langa pistli um átök og örlög í sýndarheimum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Takk fyrir Trausti. Ég kíki alltaf á síðuna þína þegar ég þarf að vita um veðurhorfur. Það hefur reynst mér vel, svona í bland við mína tilfinningu fyrir veðurhorfum.

Mér finnst veðurhorfur og veðurspár hins opinbera orðnar óútreiknanlegri núna, heldur en hér áður fyrr. Ekki veit ég hvers vegna.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 30.8.2013 kl. 11:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 16
  • Sl. sólarhring: 66
  • Sl. viku: 507
  • Frá upphafi: 2343269

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 459
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband