Kuldi viđ norđurskautiđ

Háloftakuldapollurinn viđ norđurskautiđ virđist ekkert vera ađ gefa sig. Hann er talsvert kaldari heldur en á sama tíma í fyrra. Hćđ 500 hPa-flatarins er meir en 200 metrum undir međallagi í pollinum - en ritstjórinn hefur ekki alveg á tilfinningunni hversu algengt ţađ er á ţessum árstíma. Rétt er ţess vegna ađ rćđa ekki meira um ţađ ađ svo stöddu.

En kortiđ nćr yfir megniđ af norđurhveli suđur um 30. breiddarstig og gildir um hádegi á föstudag 2. ágúst. Jafnhćđarlínur eru heildregnar en ţykktin sýnd í lit. Munum ađ hún mćlir međalhita í neđri hluta veđrahvolfs. Ţví meiri sem hún er ţví hlýrra er loftiđ. Kvarđinn á myndinni batnar mjög viđ stćkkun.

w-blogg010813a

Á föstudaginn hefur hiti hér á landi ađeins jafnađ sig eftir kuldann sem nú í nótt og á morgun (fimmtudag) ríkir um mikinn hluta landsins. Megniđ af landinu er á gulu svćđi en ţađ sýnir sumarhita (lágan ađ vísu).

Mikil hlý tunga flćđir norđur um Evrópu vestanverđa, svo sýnist sem 5700 metra jafnţykktarlínan nái norđur til Danmerkur - ţađ telst mjög mikil ţykkt á ţeim slóđum. Ţetta hlýja loft fer hjá í alskýjuđu veđri og sennilega rigningu ţannig ađ hitinn fer ekki nćrri ţví eins hátt og yrđi ef sólar nyti. Ţađ er helst ađ ađfaranótt laugardags verđi óvenjuhlý. Síđan kólnar aftur.

Annars bar ţađ til tíđinda í gćr ađ hiti í Maniitsoq/Sukkertoppen á Grćnlandi fór í 25,9 stig. Ađ sögn dönsku veđurstofunnar er ţetta hćsti hiti sem mćlst hefur á Grćnlandi ţađ tímabil sem gagnagrunnstaflan sem miđađ er viđ nćr til. Ţađ er frá og međ 1958. Eitthvađ rámar ritstjórann í eldri og hćrri grćnlenskar tölur, en međan danska veđurstofan upplýsir okkkur ekki betur um ţađ látum viđ gott heita.

Á vef dönsku veđurstofunnar er nú einnig frétt um danska norđurljósaleiđangurinn á Akureyri veturinn 1899 til 1900 og má ţar sjá margar góđar og skemmtilegar myndir sem teknar voru í kampavínsleiđangri akureyringa á Súlur nú á dögunum. Tilefniđ var sýning Minjasafnsins á myndum sem gerđar voru í danska leiđangrinum. Í nýlegum fréttum af leiđangrinum og sýninguna er oftast talađ um Dönsku veđurfrćđistofnunina - ţađ er ađ vísu nákvćm ţýđing nafnsins - en alsiđa er hér á landi ađ tala um Dönsku veđurstofuna. Veđurstofa Íslands tók viđ athugunum af ţeirri dönsku 1920.

Veđurstofan birtir vćntanlega yfirlit um júlímánuđ á morgun (fimmtudag), en hiti komst yfir međallagiđ 1961 til 1990 hér í Reykjavík, en var talsvert undir međalagi síđustu ára.

Í síđari hluta mánađarins mćldist hiti 20 stig eđa meir í fjórtán daga í röđ - sem verđur ađ teljast mjög gott. En í dag, miđvikudaginn 31. júlí, komst hiti ekki svo hátt - og ađeins ein stöđ náđi hćsta hita sumarsins. Ţađ var Tálknafjörđur ţar sem hitinn komst í 16,7 stig, vonandi ađ ţar komist hann enn hćrra í ágúst.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kuldi viđ norđurskautiđ?

Akureyri (föstudagur): Hámarkshiti 9°C; (laugardagur): Hámarkshiti 8°C; (sunnudagur): Hámarkshiti 5°C; (mánudagur): Hámarkshiti 5°C.

Egilsstađir (föstudagur): Hámarkshiti 7°C; (laugardagur): Hámarkshiti 7°C; (sunnudagur): Hámarkshiti 5°C; (mánudagur): Hámarkshiti 5°C (http://weatherspark.com).

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráđ) 1.8.2013 kl. 20:19

2 Smámynd: Anna Sigríđur Guđmundsdóttir

Takk fyrir ţetta Trausti. Ţú og Páll Bergţórsson eru veđurfrćđingarnir, sem ekki látiđ stjórnast í blindni, af múgćsings-heimsveldis-stjórnunar-skólun og einhliđa túlkun bókstafs-trúar veđurfrćđinnar.

Ţiđ tveir látiđ sem betur fer stjórnast af ykkar eigin brjóstviti, ţekkingu, innsći og raunverulegri víđsýni, međ heiđarleikann og sannleikann ađ leiđarljósi.

Okkur ber öllum ađ ţakka fyrir ţá fáu einstaklinga, sem standa međ ţví sem er heiđarlegt, raunverulegt, ó-eigingjarnt/ókeypis og satt.

M.b.kv.

Anna Sigríđur Guđmundsdóttir, 1.8.2013 kl. 21:50

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 9
  • Sl. sólarhring: 60
  • Sl. viku: 407
  • Frá upphafi: 2343320

Annađ

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 368
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband