Kaldara loft sćkir ađ (úr óvenjulegri átt)

Mjög hlýtt hefur veriđ víđa um land undanfarna daga. Hitinn hefur veriđ hvađ samfelldastur á hálendinu, en lágsveitir hafa á víxl setiđ í svölu sjávarlofti eđa mun hlýrri anda af landi. Hámarkshiti landsins hefur nú náđ 20 stiga hita eđa meira í 9 daga í röđ. Um ţađ bil fjórđungur veđurstöđva fór yfir 20 stiga mörkin á mánudag, miđvikudag og í dag (föstudag 26. júlí), en voru heldur fćrri ađra daga. Í stóru hitabylgjunum 2004 og 2008 var ţetta hlutfall mun hćrra, 66% hlýjasta daginn í syrpunni 2008 og 69% stöđva 2004.

Líkur eru töluverđar á ađ einhverjar stöđvar nái 20 stigum á morgun (laugardag) en mun minni á sunnudaginn. Ţessu veldur ađsókn heldur kaldara lofts, ekki er ţađ miklu kaldara - en samt munar um 5 stigum á ţykktinni 5590 metrum sem voru yfir landinu í dag ţeim 5490 metrum sem spáđ er á sunnudagskvöld. Ţetta er auđvitađ ekki sérlega kalt loft - en samt.

Ţegar ţađ gengur inn yfir velupphitađ landiđ myndast líklega skúraklakkar eđa jafnvel samfelldir dembugarđar - og ţar međ bleyta. Einhverjir landshlutar gćtu sloppiđ.

En ţetta kaldara loft sćkir ađ úr suđaustri - ţađ er frekar óvenjulegt, smáskot úr norđri eftir helgi sér til ţess ađ ţykktin nćr sér ekki á strik alveg strax aftur. En lítum á spákort sunnudagsins (frá evrópureiknimiđstöđinni).

w-blogg270713a

Jafnţykktarlínur eru heildregnar og svartar. Ţykktin er vísir um međalhita í neđri hluta veđrahvolfs, ţví meiri sem hún er ţví hlýrra er loftiđ. Litafletir sýna hita í 850 hPa-fletinum en hann er um ţađ bil 1500 metra yfir sjávarmáli. Ţar kólnar úr 11 stigum niđur í 7 yfir miđju landi. Myndin verđur skýrari viđ stćkkun. Efri hvíta örin sýnir hreyfistefnu kjarna hlýja loftsins frá ţví í dag (föstudag) ţar til á sunnudaginn ţegar kortiđ gildir. Neđri hvíta örin sýnir stefnu ţessa ómerkilega kuldapolls - sem ţó mun kippa mesta hitanum úr sambandi.

Nokkra umstöflun ţarf á stóru svćđi til ađ leggja upp leiđir fyrir meira af hlýju lofti hingađ til lands. Töluverđur gangur er hins vegar á stóru veđurkerfunum og óljóst hvađ úr verđur.

Dagurinn í dag varđ sá hlýjasti á árinu á allmörgum stöđvum. Listi er í viđhenginu. Hann nćr ađeins til kl.17 en einhver hreyfing var á honum síđar - ţađ kemur í ljós. Neđan viđ lista dagsins má finna annan sem sýnir hćsta hita ársins á öllum sjálfvirkum veđurstöđvum.  

Viđbót ađ kvöldi laugardags (27.júlí): Reykjavík náđi loks 20-stiga markinu í dag.


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Engin messa verđur í Ţönglabakka í Ţorgeirsfirđi í Fjörđum í ár" . . . ;)

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráđ) 28.7.2013 kl. 11:44

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 246
  • Sl. sólarhring: 402
  • Sl. viku: 1562
  • Frá upphafi: 2350031

Annađ

  • Innlit í dag: 219
  • Innlit sl. viku: 1422
  • Gestir í dag: 216
  • IP-tölur í dag: 210

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband