Hlýindi vestanhafs og austan

Hlýindi vestanhafs og austan hafa verið í fréttum. Evrópumegin hefur þó varla frést af metum, en bretar munu ekki hafa fengið jafnlangan sumarhlýindakafla síðan 2006 (þegar síðast var skítatíð hér á Suðvesturlandi).

Vestra hafa hlýindin ekki verið þau allra snörpustu síðustu daga - nema hvað veðurnörd minnast á að höggvið hafi verið nærri hámarksmetum næturlágmarka og daggarmarks. Ástandið er sérlega varasamt þegar saman fara hár hiti og hátt rakastig dag og nótt. Til að höndla þetta hafa menn búið til sérstaka óþægindavísitölu sem notuð er í aðvörunarskyni víða um heim. Hún er þó ekki allstaðar skilgreind á nákvæmlega sama hátt.

En við lítum nú sem oftar á kort af stöðu 500 hPa-flatarins og þykktarinnar. Kortin geta verið ágæt viðmið - allt sem er hlýrra en þetta á Bretlandseyjum og vestanhafs er mjög óþægilegt og jafnvel varasamt. Öll kortin eru ættuð frá evrópureiknimiðstöðinni.

Fyrst er það Evrópukortið.

w-blogg190813a

Hér eru Bretlandseyjar fyrir miðju. Ísland er þar ofan við til vinstri. Jafnhæðarlínur eru heildregnar, en þykktin er sýnd með litum. Í miðju er hæðin meiri en 5820 metrar þar sem mest er. Þetta er býsna hátt - en er samt nokkuð frá meti. Brúnu klessurnar við Skotland sýna hvar þykktin er meiri en 5640 metrar. Þetta er óskaþykkt okkar - hefur í sögunni aðeins örfáum sinnum náð til Íslands. Nokkuð langt er í næstu jafnþykktarlínu (5700 m), hún er suður á Spáni. Spár í dag (fimmtudag) segja að hún eigi að komast norður til Parísar á miðvikudag í næstu viku. Ef af verður mæðast þar margir - og enn hlýnar á Bretlandi.

Við Ísland er hlýrra en verið hefur og landið meira að segja að komast inn í skammvinna hæðarbeygju. Slík beygja leitast við að bæla uppstreymi og leysa upp ský - en eins og sjá má er suðvestanáttin sterk (jafnhæðarlínur eru þéttar) og erfitt við hana að eiga.

Næsta kort sýnir meginhluta Norður-Ameríku.

w-blogg190813b

Brúnu litirnir eru hér dekkri og þykktin er meiri en 5760 metrar yfir mestöllum Bandaríkjunum og vestast er hún meiri en 5820 og jafnvel sjást smáblettir með 5880 metrum. Við sjáum skarpt lægðardrag teygja sig til suðvesturs frá Labrador. Það mjakast til suðausturs og segja sumar spár að það létti aðeins á hitanum í norðausturríkjunum

Við getum ekki yfirgefið stöðuna án þess að horfa á norðurslóðir. Þar er grænn litur áberandi en það segir að þykktin sé minni en 5460 metrar.

w-blogg190813c

Mjög hlý hæð er yfir Vestur-Síberíu, þar er þykktin meiri en 5640 metrar á stóru svæði í kringum 70. breiddarbauginn, meira en hægt er að reikna með við 70 gráður næst Íslandi. Kalt loft er yfir Grænlandi öllu, en samt er þar enginn afgerandi kuldapollur einmitt núna. Hins vegar er stóri pollurinn nærri norðurskautinu með sterkasta móti miðað við árstíma (blár í miðju). Hann fer þar í hringi og færist í aukana. Komist hlýtt loft inn í háloftalægðina verður til mjög djúp lægð við sjávarmál og þá með miklum vindi. Varla verður lægðin sú þó eins djúp og ágústlægðin í fyrra sem rótaði upp í hafísnum þannig að meira bráðnaði en nokkru sinni á síðari tímum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ívar Pálsson

Takk, Trausti, þér tekst jafnan að færa meiri dýpt í veðrið. Eins og í heimsmálunum, þá verður maður að skilja stærri heildarmynd en bara rétt það sem er í fókus.

Ívar Pálsson, 19.7.2013 kl. 07:58

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Þakka vinsamlegar kveðjur Ívar.

Trausti Jónsson, 20.7.2013 kl. 01:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 107
  • Sl. sólarhring: 109
  • Sl. viku: 1856
  • Frá upphafi: 2348734

Annað

  • Innlit í dag: 97
  • Innlit sl. viku: 1627
  • Gestir í dag: 88
  • IP-tölur í dag: 88

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband