Hlýjasta loft ársins

Nú er spurningin hvort spurningarmerki eigi að fylgja í fyrirsögninni - eða hvort bæta á við - „til þessa“? Sum ár hafa runnið sitt skeið án þess að jafnhlýtt loft hafi farið yfir landið og það sem fara á yfir á þriðjudag og miðvikudag í þessari viku. En - þótt hlýtt loft fari hjá er ekki þar með sagt að þess gæti niður til okkar.

En þykktarkort evrópureiknimiðstöðvarinnar sem gildir á þriðjudagskvöld lofar góðu.

w-blogg090713a

Jafnþykktarlínur eru svartar og heildregnar, en litafletir sýna hita í 850 hPa-fletinum í um 1500 metra hæð yfir sjávarmáli. Mjög hlýtt loft er yfir öllu landinu, hlýjast er það austanlands þar sem þykktin er yfir 5600 metrum. Á góðum degi dugar það í 25 til 27 stiga hámarkshita - en til að svo megi verða þarf vind, hann þarf að standa af landi - og ef vindur er hægur þarf að vera glampandi sólskin til að framkalla þessar háu tölur.

Mættishitaáhugamenn (þessir þrír) mega vita að hæsti mættishiti í 850 hPa sem enn fréttist af í spám fyrir þriðjudag og miðvikudag er 26,3 stig. Þá yfir Austurlandi á miðvikudag.

Hvort það tekst vitum við ekki - en fylgjumst vel með. Þótt líka sé hlýtt yfir Suður- og Vesturlandi er hár hiti ólíklegri þar vegna áhrifa sjávar og skýjahulu, en það er samt aldrei að vita nema einhverjir staðir á þeim slóðum verði útvaldir - ólíklegt þó.

Vindur verður að sögn reiknimiðstöðva heldur meiri á miðvikudag heldur en þriðjudag þannig að þótt þykktin minnki lítillega verða líkur á 25 stigum litlu minni þá heldur en á þriðjudeginum. Auk þess á Austurland enn möguleika á háum tölum á fimmtudaginn - en þá eru síðustu forvöð að sinni. Þá um kvöldið ryðst mun kaldara loft inn á svæðið úr vestri. Föstudagsþykktarspána má sjá á kortinu hér að neðan. Það lítur ekki vel út og umskiptin gríðarleg.

w-blogg090713b

Kortið gildir kl. 6 að morgni föstudags. Þykktin er aðeins 5300 metrar við Vestfirði - á vondum degi dugar það í snjó á fjöllum - verði einhver úrkoma á annað borð. Þrjúhundruð metrar skilja að 5600 og 5300 metra. Á hitamæli samsvarar það 15 stiga hitafalli. Hitafallið í 850 hPa er ámóta, +12 stig á miðvikudag yfir í mínus 3 á fimmtudag. Niðri við jörð er meira hóf í hitafallinu.

Fimmtudags-föstudagslægðin er því leiðinleg - ekki er þó spáð miklum vindi - en einhverri úrkomu. Síðan kemur næsta lægð að sögn strax á laugardag - eftir það greinir reiknimiðstöðvar á um framhaldið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sælir Trausti. Gætirðu ekki útskýrt þessa óvenjulegu þokumyndun sem við erum búin að upplifa hér í Reykjavík í sumar. Er þetta af því að sjórinn er hlýrri en lofthitinn eða öfugt?

Hermundur Sigurdsson (IP-tala skráð) 9.7.2013 kl. 10:08

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Þoka er algengust í Reykjavík í júlí þegar loft er að meðaltali hlýrra en sjór. Hér við land er sjórinn að meðaltali hlýrri en loftið allt árið nema stuttan tíma að sumarlagi. Norðanlands og austan er þessi tími heldur lengri en vestan- og sunnanlands - sérstaklega við Austfirði. Um þetta má lesa í gamalli greinargerð um sjávarhitamælingar Veðurstofunnar.

Trausti Jónsson, 10.7.2013 kl. 01:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 356
  • Sl. sólarhring: 359
  • Sl. viku: 1930
  • Frá upphafi: 2350557

Annað

  • Innlit í dag: 273
  • Innlit sl. viku: 1722
  • Gestir í dag: 259
  • IP-tölur í dag: 257

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband