Lagðar niður (ekki þó alveg)

Þessa dagana eru þrjár mannaðar veðurskeytastöðvar að hverfa af kortunum. Þetta eru Lambavatn (byrjaði 1922), Kirkjubæjarklaustur (byrjaði 1926) og Stórhöfði í Vestmannaeyjum (byrjaði 1921). Auðvitað er mikil eftirsjá að þeim öllum. En úrkomumælingar halda vonandi áfram og á öllum stöðunum halda sjálfvirkar stöðvar mælingum áfram.

Sú spurning kemur upp hvers megi vænta varðandi samfellu hitamælinga á þessum stöðum. Í öllum tilvikum hafa samhliða mælingar verið gerðar í nokkur ár. Tilefni er til samanburðar en hann er gerður á ýmsan hátt. Sá einfaldasti er að bera saman mánaðarmeðalhita stöðvagerðanna tveggja og leita árstíðasveifluna uppi.

Línuritin eru ekki falleg og myndrænt dálítið úr jafnvægi en hér var ákveðið að hafa þetta svona til þess að hitakvarðarnir yrðu nákvæmlega eins. Lítum fyrst á Stórhöfða.

w-blogg010513a

Lárétti ásinn sýnir mánuði ársins en sá lóðrétti meðalmun mönnuðu og sjálfvirku stöðvanna. Sé munurinn jákvæður hefur verið hlýrra á mönnuðu stöðinni. Sjá má að munur á mælingum stöðvanna beggja er 0,1 stig eða minni í öllum mánuðum. Meðalmunur fyrir árið í heild er aðeins 0,07 stig. Það þýðir að hægt er að nota hitamælingar sjálfvirku stöðvarinnar í beinu framhaldi af mælingum þeirrar mönnuðu.

Veðurathuganir á Stórhöfða hafa verið gerðar á 3 klukkustunda fresti í meir en 60 ár. Það þýðir að dægursveifla á stöðinni er vel skilgreind og stöðvarnar samanburðarhæfar hvað þetta snertir.

Sama á við um Kirkjubæjarklaustur. Þar hefur líka verið athugað á 3 klukkustunda fresti í meir en 60 ár. Dægursveiflan þar er því heldur ekki til vandræða við meðaltalsreikninga. Samanburðurinn á mönnuðu og sjálfvirku stöðinni sýnir hins vegar nokkurn mun.

w-blogg010513c

Myndin sýnir að hlýrra hefur verið á mönnuðu stöðinni heldur en þeirri sjálfvirku í öllum mánuðum ársins. Enda þó nokkur vegalengd milli stöðvanna. Sú mannaða hefur lengst af verið í góðu skjóli inni í þéttbýlinu - en hin er austar, á svonefndum Stjórnarsandi. Ástæður munarins eru fleiri en ein. Alla vega er ítarlegri samanburðar þörf, þar á meðal á dægursveiflu einstakra mánaða.

Meðalmunur yfir árið er 0,27 stig. Hann er mun meiri að vetrarlagi heldur en á sumrum. Minnstur er munurinn í september. Í framhaldinu þarf greinilega smáleiðréttinga við, æskilegast er að þær séu sem einfaldastar.

Myndin á Lambavatni er enn önnur.

w-blogg010513b

Þar er hlýrra á sjálfvirku stöðinni í júní, júlí og desember. Meðalmunur yfir árið er nærri því enginn, eða mínus 0,05 stig. Á mönnuðu stöðinni voru aldrei gerðar athuganir að nóttu. Meðalhita hefur því þurft að reikna með aðstoð svokallaðra hitastuðla. Á stöðvum án næturathugana fæst aldrei trygging fyrir því að stuðlarnir hafi verið rétt áætlaðir nema með ítarlegri mælingum. Leiðréttingarstuðlarnir eru misstórir eftir mánuðum en hafa samt verulega árstíðasveiflu.

Útlit myndarinnar gæti bent til þess að taka þurfi stuðla Lambavatns til athugunar. Reynist þeir hafa verið ónákvæmir þarf að endurreikna öll eldri meðaltöl staðarins - eigi að framlengja mæliröðina með því að nota sjálfvirku stöðina.

Það er almennt séð mikið óráð að leggja niður athuganir á stöðvum þar sem athugað hefur verið lengi án þess að hægt sé að bera mannaðar og sjálfvirkar athuganir saman um nokkurra ára skeið. Í þessum tilvikum hafa samanburðarmælingar verið gerðar og ætti með tiltölulega lítilli fyrirhöfn að vera hægt að halda mæliröðunum óslitnum í framtíðinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Takk fyrir samstarfið Trausti. Núna hef ég meira tíma til að sinna veðurnördin í mér, eins og Sigurður Þór.

Kveðja. Pálmi Freyr Óskarsson fyrrverandi Veðurathugunarmaður á Stórhöfða

Pálmi Freyr Óskarsson, 1.5.2013 kl. 02:33

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Enn eitt dæmið um það, á Kirkjubæjarklaustri, að sjálfirka stöðin er á einhverjum allt öðrum stað en sú mannaða og auðvitað miklu kaldari, líkt og við Mývatn . Veðurstofunni er ekki viðbjargandi í stöðvamálunum! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.5.2013 kl. 08:00

3 identicon

Hér upplýsir Trausti eina gátu veðurfræðinnar. Meint "hnatthlýnun af mannavöldum" grundvallast á meintri 0,7°C hækkun hitastigs á jörðinni á sl. 100 árum. Nú vitum við hversu áræðanlegar mælingar liggja þar að baki. :)

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 1.5.2013 kl. 08:41

4 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Nei ert þú loksins vaknaður úr þyrnirósarsvefninum, og misst af einum af hlýjustu vetrum Íslandssögurnar Hilmar minn.

Pálmi Freyr Óskarsson, 1.5.2013 kl. 20:12

5 Smámynd: Trausti Jónsson

Sömuleiðis Pálmi. Hilmar, þetta er allt undir eftirliti (svona víðast hvar).

Trausti Jónsson, 2.5.2013 kl. 00:23

6 identicon

Þetta kallast nú vetrardvali hjá mér Pálmi minn - september/maí (og enn sjóar á Suðurlandi!)

Hvað eru margir Íslendingar búsettir úti í Surtsey PFÓ?

Viltu ekki upplýsa bændur á Norðurlandi um "einn af hlýjustu vetrum Íslandssögunnar"? :P

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 2.5.2013 kl. 15:11

7 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Einkennilegt hvað það fer mikið framhjá þér Hilmar þegar óvenju hlýtt er á Íslandi, enn ert örsnöggur til þegar smá kuldakast í stuttan tíma kemur eins og núna.

Hvers konar fáránleg spurning er þetta með Surtsey????

Þessi hlýindi vetrarins hafa aðallega verið sunnanlands, norðlendingar eiga ekkert endilega kvartað. Hinsvegar hefur komið SMÁ bakslag í vorinu. 

Pálmi Freyr Óskarsson, 2.5.2013 kl. 22:21

8 identicon

Hvað kallar þú "óvenju hlýtt" PFÓ? Ég vænti þess að þú getir skoðað niðurstöður Veðurstofunnar um meint hlýindi 2012: http://www.vedur.is/vedur/frodleikur/greinar/nr/2613

"Meðalhitinn í Reykjavík var 5,5 stig og er það um 1,2 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990 og í meðallagi sé miðað við árin 2001 til 2010. Á Akureyri var meðalhitinn 4,3 stig. Það er 1,1 stigi ofan meðallags, en 0,1 stigi undir meðaltali áranna 2001 til 2010."

Vinsamlegast taktu eftir þessu: "Meðalhitinn í Reykjavík var í meðallagi sé miðað við árin 2001 til 2010. Á Akureyri var meðalhitinn 0,1 stigi undir meðaltali áranna 2001 til 2010."

Það er því greinilega að kólna á Íslandi í samanburði við árin 2001 - 2010. Hvað varð um meinta aukningu hitastigs vegna gróðurhúsaáhrifa?

Ps. Þér að segja er Surtsey talin vera syðsti hluti Íslands. Meðalhiti ársins 2012 mældist hæstur í Surtsey, 6,8 stig. Sú staðreynd breytir hins vegar engu um harðindaveturinn á Norðurlandi.

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 3.5.2013 kl. 13:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 230
  • Sl. sólarhring: 298
  • Sl. viku: 1804
  • Frá upphafi: 2350431

Annað

  • Innlit í dag: 158
  • Innlit sl. viku: 1607
  • Gestir í dag: 153
  • IP-tölur í dag: 152

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband