Þversnið

Nú er hægviðri upp í gegnum allt veðrahvolfið yfir landinu og gott að nota tækifærið til kynna þversnið til sögunnar í fyrsta sinn á hungurdiskum. Þau sýna, eins og nafnið bendir til, lóðréttar sneiðar af lofthjúpnum - misháar og mislangar. Sýna má margs konar veðurþætti með þversniðum en algengastir eru vindur, mættishiti og rakastig. Fleira sést þó, t.d. lóðréttur vindur, bylgjubrot og raunar nærri því hvað sem er.

Þversniðið sem hér verður litið á er fengið úr harmonie-spálíkaninu sem Veðurstofa Íslands reiknar allt að því fjórum sinnum á dag. Vonandi líður að því að framleiðsluvörur þess fari að birtast með reglubundnum hætti á vef stofnunarinnar. Sniðið sýnir vind, vindátt og mættishita eftir 23. lengdarbaugnum frá 63°N til 67°N. Lengdarbaugurinn liggur til norðurs rétt vestur af Reykjanesi, fer yfir Snæfellsnes og síðan norður um Vestfirði. Efst í hægra horni má sjá lítið Íslandskort þar sem hvít lína sýnir legu sniðsins.

w-blogg110313a

Suður er til vinstri á myndinni, en norður til hægri, breiddarstig eru mörkuð á lárétta ásinn. Lóðrétti ásinn sýnir þrýsting. Hann minnkar auðvitað með hæð. Efst er 250 hPa flöturinn, í um 10 kílómetra hæð. Grá klessa stingur sér upp á við rétt sunnan við 66°N. Það eru Vestfjarðafjöllin. Snæfellsnes er veigaminna. Rétt sést sem lítill grár nagli til vinstri við þar sem stendur Sn (myndin batnar þónokkuð við stækkun).

Litafletirnir sýna vindhraða. Á grænu svæðunum er hann minni en 10 m/s, kaldi eða minna. Fyrir ofan 500 hPa er dágóður ljósblár flötur, þar er vindur meiri en 10 m/s. Vindörvar sýna vindstefnu og hraða á hefðbundinn hátt. Þó verður að vara sig vel á því að stefnan á alls ekki við lóðréttar hreyfingar heldur sýnir þær láréttu á hverjum stað. Vindstefna er víðast hvar á bilinu frá vestri yfir í norðvestur. Allra neðst vottar fyrir mjög hægri norðan- og norðaustanátt.

Mjóslegnar, heildregnar línur sýna mættishitann á tveggja stiga bilum. Hann er hér í Kelvingráðum (til að forðast rugling við hinn „mælda“ hita). Mættishitinn er lægstur allra neðst (hann er það alltaf). Það er 274 K línan sem rekst á Vestfirði og þar undir við norðanverðan Breiðafjörð má aðeins sjá í 272 K línuna. Við vitum að frostmark er við 273 K.

Ef rýnt er í mættishitalínurnar má sjá að þær eru þéttari á milli 850 hPa og 800 hPa heldur en annars. Sömuleiðis má þar sjá veigalítið brot í bæði vindátt og vindhraða. Þarna er loft sem er stöðugra heldur en annað. Því þéttari sem mættishitalínurnar eru því stöðugra er loftið. Sennilega markar þetta stöðuga lag efra borð jaðarlagsins svonefnda. Jaðarlagið hefur nánari tengsl við yfirborð jarðar heldur en loftið ofan þess. Hér er vindur þó svo hægur að stöðuga lagið (hitahvörf?) eru leifar af fréttaflutningi (blöndun) þegar vindur var meiri fyrir einum til tveimur dögum.

Einnig eru allþéttar mættishitalínur alveg efst á myndinni. Þar eru veðrahvörfin sennilega á ferð.

Þetta er óvenjurólegur vetrardagur og ekkert stórt að gerast á Vesturlandi. Myndin verður æsilegri að sjá þegar illviðri geisa. Við bíðum eftir einhverju stílhreinu til að líta á. Það er kortameistari Veðurstofunnar, Bolli Pálmason, sem á heiðurinn af gerð myndarinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 58
  • Sl. sólarhring: 309
  • Sl. viku: 1632
  • Frá upphafi: 2350259

Annað

  • Innlit í dag: 44
  • Innlit sl. viku: 1493
  • Gestir í dag: 44
  • IP-tölur í dag: 43

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband