Hláka í nokkra daga

Fyrirsögn þessa pistils átti eiginlega að vera „hlýindi í nokkra daga“ en ýmsum aðilum á ritstjórninni þótti það full mikið í lagt. Í dag (þriðjudag) var frost um nær allt land - en á morgun, miðvikudag er spáð góðri hláku.

Lítum á þykktarspá frá evrópureiknimiðstöðinni sem gildir kl. 18 miðvikudaginn 19. desember.

w-blogg191212a

Jafnþykktarlínur eru svartar og heildregnar, en litafletirnir sýna hita í 850 hPa-fletinum en hann verður á gildistíma kortsins í um 1300 metra hæð yfir Reykjavík. Það er þess virði að líta betur á línukraðakið yfir Íslandi (í lærdómsskyni). Við skulum byrja við gulleita blettinn milli Færeyja og Íslands. Það er 5380 metra jafnþykktarlínan sem sker hann norðanverðan. Athugið að kortið skýrist mjög við stækkun.

Við höldum nú til norðvesturs. Fyrst verður fyrir lægri þykkt, hringur sem umlykur örlítið svæði þar sem hún er undir 5360 metrum. Síðan förum við fljótt inn fyrir 5380 metra aftur, sú lína hringar sig í kringum mestallt landið vestan Vatnajökuls, en þar inni í eru þrír smáir hringir sem hver um sig markar 5400 metra. Inni í hringnum vestan Langjökuls er einn enn minni, 5420 metra jafnþykktarlínan. Hún er sú hæsta yfir landinu.

Við sjáum líka að austanvert landið er undir bláum lit í 850 hPa en gulur litur hylur landið vestanvert. Allt mynstrið yfir landinu sýnir ýmist uppstreymi (lág þykkt, blár litur) eða niðurstreymi (há þykkt, gulleitur litur). Nú er það svo að líkanið bregst við eigin landslagi - en ekki því raunverulega. Við þurfum talsvert nákvæmara líkan til að nálgast lögun hins raunverulega landslags. Hin raunverulega hámarksþykkt yfir landinu á gildistíma kortsins getur því verðið önnur en þessi spá sýnir - jafnvel þótt hún yrði „rétt“. [Ef staglast er nógu lengi á orðinu raunverulegur fer maður að trúa að það sé raunverulegt].

En mynstur af þessu tagi er algengt yfir landinu og fer auðvitað mikið eftir vindátt hverju sinni.

Þykktin síðdegis á miðvikudag verður trúlega á bilinu 5380 til 5400 metrar. Hversu hlýtt er það? Á vetrum hefur hámarkshiti á landinu farið í 13 til 15 stig við þessi þykktargildi. Heldur er það ólíklegt að þessu sinni. Við sjáum á kortinu að hæsta talan í 850 hPa er 5 stig - yfir Norðurlandi. Til gamans skulum við því líta á mættishitaspá í 850 hPa.

w-blogg191212b

Þetta dæilega rauða kort sýnir hversu hlýtt loftið í 850 hPa yrði eftir niðurstreymi að sjávarmáli (strangt tekið niður í 1000 hPa). Jafnþrýstilínur við sjávarmál eru svartar og heildregnar. Sé kortið stækkað og rýnt í það má sjá töluna 17,9 við Siglufjörð.

Hver skyldi svo hámarkshiti miðvikudagsins verða? Ætli hann nái 8 stigum, 10, 12 eða meiru?

En við vitum alla vega að þegar vind lægir aftur og það léttir til er búið með öll hlýindi - jafnvel þótt þau séu rétt fyrir ofan. Í desember þarf alltaf vindkrækjur upp í hlýindin og teppi gegn útgeislun. Sólin hjálpar nákvæmlega ekkert til.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvenær fer sólin að skipta nokkru máli hér hvað varðar bráðnun? Segjum við ca. frostmark 0-1°C  í logni og léttskýjuðu? Mars? 20° á lofti í hádegisstöðu?

Ari (IP-tala skráð) 20.12.2012 kl. 14:56

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Á láréttum fleti eins og t.d. vegi eða bílastæði fer sólskin að skipta máli um það leyti sem sólarhæð á hádegi nær 15 gráðum. Það gerist að mig minnir undir lok febrúar og fer þá að sjást greinilegur munur.

Trausti Jónsson, 21.12.2012 kl. 01:58

3 identicon

Takk f. svarið. Já einmitt það passar, kringum 20 febrúar sé ég hér http://www.timeanddate.com/worldclock/astronomy.html?n=211&month=2&year=2013&obj=sun&afl=-11&day=1

Svo fann ég með gúggli þessa ágætu grein http://www.visir.is/daginn-lengt-um-eina-og-halfa-klukkustund/article/2012120129488

Ari (IP-tala skráð) 21.12.2012 kl. 14:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 80
  • Sl. sólarhring: 123
  • Sl. viku: 1829
  • Frá upphafi: 2348707

Annað

  • Innlit í dag: 71
  • Innlit sl. viku: 1601
  • Gestir í dag: 67
  • IP-tölur í dag: 67

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband