Litið á lítið

Í dag lítum við nær okkur og jafnvel upp á við frekar en að skima á heilu heimshöfin eða norðurhvelið allt. Fyrsta kortið er nærri því hefðbundið grunnkort. Það sýnir alla vega þrýsting við sjávarmál, úrkomusvæði og vind. Ef vel er gáð má einnig sjá hita í 850 hPa-fletinum og gerðarflokkun og ákefð úrkomunnar. Í lagi er að rifja upp gamlan pistil  þar sem rýnt er í kort af þessu tagi. Krossar inni í úrkomusvæðum tákna snjókomu. Kortin að neðan gilda á kl. 18 síðdegis á sunnudag, 16. desember.

w-blogg161212b

Landið er í heiðarlegri norðaustanátt, hæð er yfir Grænlandi en fremur grunn lægð er norður af Færeyjum á leið til vestnorðvesturs. Lægðin þjappar þrýstilínum heldur saman þegar hún hreyfist nær - en hún grynnist á sama tíma. Lægðin var við Hjaltland um hádegi á laugardegi og er spáð upp undir land á Austfjörðum á mánudag. Síðan er ekki ljóst hvað verður um hana. Hún kemst ef til vill vestur fyrir land áður en hún ferst í austanátt næstu stórlægðar.

En lítum nú upp á við. Fyrst upp í 925 hPa-flötinn. Á kortinu má sjá hæð hans ásamt vindi og hita.

w-blogg161212c

Það er 700 metra jafnhæðarlínan sem liggur um Breiðafjörð. Þetta er því í fjallahæð. Lægðin er á nærri sama stað og á grunnkortinu og vindur ámóta nema norðvestan við lægðarmiðjuna þar sem hann er 25 m/s. Mörkin á milli bláu og grænu svæðanna eru sett við fjögurra stiga frost, en á brúnu svæðunum er hiti ofan frostmarks. Áberandi kaldara er við Norðaustur-Grænland þar sem fjólublái liturinn táknar -16 stiga frost. Þetta er afskaplega algeng staða, hlýjast syðst, kaldast nyrst.

Þá upp í 500 hPa. Það er 5280 metra jafnhæðarlínan sem liggur um Vestfirði. Það er nærri meðallagi árstímans.

w-blogg161212e

Lægðin við Færeyjar er enn á sama stað, en tvær aðrar lægðir sjást á kortinu - mjög grunnar þó. Segja má að lægðardrag liggi um kortið á ská, frá suðvesturhorni þess til norðausturhornsins. Vindur er mikill norðvestanmegin á kortinu, 25 m/s, en annars lítill. Nú ber svo við að köld pulsa liggur eftir lægðardraginu öllu. Dálítill kuldapollur er rétt suðvestan við land. Þar er frostið -37 stig þar sem mest er. Þeir sem lesið hafa pistla hungurdiska undanfarna daga kannast hér við kalda loftið sem fleygaðist vestur um frá Noregi - með hlýju lofti á báða vegu.

En við lítum enn ofar - upp í 300 hPa og það er 8680 metra jafnhæðarlínan sem liggur um Vestfirði.

w-blogg161212f

Enn er vindstrengurinn milli Vestfjarða og Grænlands áberandi, jafnvel enn meiri heldur en neðar. Nú bregður svo við að lægðin fyrir suðvestan land er orðin öflugri heldur en sú við Færeyjar og það sem meira er; hlýjast er í lægðardraginu langa og mjóa. Hvers vegna? Það er vegna þess að 300 hPa-flöturinn sker veðrahvörfin og á hlýja svæðinu erum við fyrir ofan þau.

Algengast er að hiti falli með hæð í veðrahvolfinu allt til veðrahvarfa. Þar fyrir ofan - í neðri lögum heiðhvolfsins fellur hiti ekki. Bláu svæðin á myndinni eru flest neðan veðrahvarfa - þar er hiti því enn fallandi með hæð. Undir græna svæðinu fellur hiti neðar jafnmikið með hæð og á svæðunum umhverfis - en þegar komið var að veðrahvörfum hættir hann því - þess vegna er hýrra á græna svæðinu heldur en hinum.

En hversu hátt liggja veðrahvörfin í spánni? Við athugum það á síðasta korti dagsins en það sýnir þrýstihæð veðrahvarfanna eins og evrópureiknimiðstöðin telur hana verða síðdegis þennan desembersunnudag.

w-blogg161212g

Litirnir tákna ákveðin þrýstibil. Talan fyrir suðvestan land, 499, segir okkur að þar séu veðrahvörfin í 499 hPa hæð, við vitum af 500 hPa kortinu hvaða hæð það er í metrum, um 5290 metrar. Nú þarf að muna hið sjálfsagða: Þrýstingur minnkar með hæð, því lægri sem tölurnar eru því hærri eru veðrahvörfin. Á bláu svæðunum eru þau í yfir 240 hPa-hæð. Það eru um 10 kílómetrar.

Gula svæðið sýnir því langa og mjóa gjá í veðrahvörfin, gjáin er svo brött suðvestan við Ísland að litatóna vantar í myndina. Þar gæti verið brot í veðrahvörfunum.

Veðrahvörfin eru á sífelldu iði með hnútum og brotum, beygjuskrensi og ókyrrð og lega þeirra getur líka átt þátt í ofsaveðrum á jörðu niðri. Þess vegna er vel þess virði að gefa þeim auga rétt eins og lægðum, hæðum, skilum og úrkomusvæðum hefðbundinna veðurkorta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 14
  • Sl. sólarhring: 363
  • Sl. viku: 1588
  • Frá upphafi: 2350215

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 1461
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband