Smálægðaskothríð

Kalda loftið hefur legið yfir landinu í friði og spekt í dag - mánudag (19. nóvember) - en næstu daga upphefst skothríð úr suðri. Kuldinn er þó þungur fyrir þannig að óhjákvæmilega hvessir nokkuð þegar lægðaskotin þrýsta á. Á gervihnattamynd frá miðnætti (aðfaranótt þriðjudags) má sjá þrjá sveipi - kannski eru þeir skotfærin. Horfum á innrauða mynd (seviri).

w-blogg201112

Stór og köld háloftalægð (kuldapollur) er suðvestur í hafi - þar sem stórt K hefur verið sett á myndina. Austan og suðaustan við hana er mikið klakkasvæði þar sem má sjá skipulega skúragarða. Til hægri við klakkasvæðið á myndinni má sjá þrjá sveipi - e.t.v. eru þar þrjár smálægðir - í sunnanáttinni austan kuldapollsins. Sveipirnir þrír hreyfast allir til norðurs - trúlega fer sá austasti (S3 á myndinni) fyrir austan land en hinir tveir kýla kuldann við Ísland.

Ef trúa má tölvuspám mun nokkuð kröpp lægð verða skammt fyrir suðaustan land á þriðjudagskvöld. Þá á leið til vestnorðvesturs. Lægðinni fylgir norðaustan hvassviðri eða stormur - varla þó um land allt. Lægðin hörfar síðan til suðvesturs en tveir sveipir eða lægðir fylgja síðan í kjölfarið. Svo er að sjá að það takist í þessum þremur atlögum að koma kaldasta loftinu norður fyrir landið.

Sú var tíðin að þegar aðeins sáust 3 til 5 gervihnattamyndir á dag hélt maður að sveipir af þessu tagi væru stöðugri heldur en þeir í raun og veru eru. Nú, þegar nýjar myndir berast á 15 mínútna til klukkustundarfresti kemur í ljós að sífellt eru að myndast nýir sveipir en þeir eldri eyðast. Þess vegna er erfitt að segja hvaða sveipur verður að hinni kröppu lægð morgundagsins, það er ábyggilega ekki sveipur 1 - e.t.v. sveipur 2 en gæti líka verið einhver sem ekki hefur enn holdgerst á myndinni.

Fylgjast má með þróuninni á sevirimyndasíðuá vef Veðurstofunnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 114
  • Sl. sólarhring: 208
  • Sl. viku: 2356
  • Frá upphafi: 2348583

Annað

  • Innlit í dag: 101
  • Innlit sl. viku: 2064
  • Gestir í dag: 91
  • IP-tölur í dag: 91

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband