Hægur uppi - norðaustanátt niðri

Enn einn froðupistillinn í dag - en kortið er fallegt. 

Nú virðist sem snjókastið á Norðurlandi dragi sig heldur í hlé - alla vega í einn til tvo daga. Það stafar e.t.v. af því að veikur hæðarhryggur í háloftunum tekur völdin yfir landinu. Það sést vel á kortinu að neðan. Það sýnir hæð, hita og vind í 500 hPa-fletinum kl. 15 á mánudag (19. nóvember).

w-blogg191112

Ísland er á miðri mynd og neðst til hægri má sjá í Skotland. Í suðvesturjaðri kortsins er myndarleg háloftalægð - en köld miðja hennar (blá) er utan við kortið - lægðin hreyfist hægt til austnorðausturs. Brúnu svæðin eru hluti af hlýjum háloftahrygg sem hreyfist hratt til norðausturs án þess að koma frekar við sögu hér.

Yfir landinu er mjög hæg suðvestanátt og fyrir norðan land er mjög hæg austlæg eða norðaustlæg átt. Hér eiga lesendur (í uppeldisskyni) að taka eftir því að talsverður hitabratti er yfir landinu. Þrjá liti þarf til þess að sýna hitann. Kalda loftið fyrir norðan land er þyngra heldur en það hlýrra yfir Suðurlandi. Vegna þess að hæðarsviðið er flatt þýðir það að þrýstingur við sjávarmál er hærri fyrir norðan land heldur en fyrir sunnan - hitabrattinn býr til vind. Öfug vindstefna er því við jörð, þar á vindur á sama tíma að blása úr austnorðaustri eða norðaustri - ekki fjarri því að vera samsíða jafnhitalínum.

Það er ekkert í háloftunum í augnablikinu sem heldur á móti kuldastraumnum úr norðaustri - norðurfrá er reyndar enn kaldara loft á lager. Síðdegis á þriðjudag verður kalda lægðin í suðvestri komin það austarlega að hún verður farin að dæla upp hlýju lofti úr suðri í átt til okkar - þá líður að nýjum átökum við Ísland og snjókast upphefst að nýju norðaustanlands - en um það er enn ekki fullt samkomulag í reikniheimi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 352
  • Sl. sólarhring: 485
  • Sl. viku: 1668
  • Frá upphafi: 2350137

Annað

  • Innlit í dag: 314
  • Innlit sl. viku: 1517
  • Gestir í dag: 305
  • IP-tölur í dag: 294

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband