Enn af ofviðrametingi

Það sem af er mánuðinum (nóvember 2012) hafa þrjú illviðri gengið yfir landið. Fyrir nokkrum dögum litum við það fyrsta - en lítið mál er að bæta þeim tveim síðari við til samanburðar. Þó er látið nægja að horfa á mynd sem sýnir meðalvindhraða á klukkustundarfresti og hvassviðrahlutfall sömu klukkustunda, þ.e. hlutfall stöðva með meiri vindhraða en 17 m/s af heildarfjölda.

w-blogg131112

Myndin nær til síðustu 18 daga, frá 26. október til og með 12. nóvember. Blái ferillinn sýnir meðalvindhraða. Fyrsta illviðrið er langveigamest, stóð frá því síðdegis 30. október fram á kvöld þriðja nóvember - eða í um fjóra sólarhringa. Það er óvenjulegt. Hvassviðrahlutfallið fór upp fyrir 60 prósent þegar mest var og meðalvindhraði í nærri 18 m/s.

Undir miðnætti að kvöldi þess 8. fór aftur að blása, meðalvindhraði var mestur tæplega 13 m/s og hlutfallið fór upp í um 35 prósent. Síðasta veðrið gekk yfir í dag (þ. 12. nóvember), það stóð skemmst veðranna þriggja, en meðalvindhraði fór í rúma 14 m/s og hlutfallið í 45 prósent.

Ætli sé komið nóg í bili? Fyrsta veðrið var af vindáttum í kringum norður, annað veðrið var af norðri og norðaustri en það síðasta af austsuðaustri og áttum þar í kring.

Alkunnugt er að það er mjög misjafnt hvaða áttir eru vondar á hverjum stað. Það er því misjafnt hvaða dag hvassast hefur verið á einstökum veðurstöðvum. Ef við teljum vegagerðarstöðvarnar með var 2. hvassastur á 109 stöðvum, 9. á 43 stöðvum og 12. á 46 stöðvum.

Sé litið á mánuðinn það sem af er kemur í ljós að vindur hefur einhvern tíma farið upp fyrir 17 m/s á 93 prósentum almennu stöðvanna, en 96 prósent vegagerðarstöðvanna. Því má segja að veðrin þrjú hafi samanlagt hirt upp flestallar veðurstöðvar landsins. En hvaða stöðvar hafa orðið útundan enn sem komið er? Það sýnir taflan.

mesti v.mesta hv.nafn
12,021,4Hallormsstaður
12,633,1Botn í Súgandafirði
13,721,8Bíldudalur
13,921,5Tálknafjörður
14,921,8Hvanneyri
16,125,2Kolás
16,233,8Hauksstaðir
16,329,1Básar á Goðalandi
16,523,6Akureyri - Krossanesbraut
16,832,6Ísafjörður sjálfvirk stöð
16,829,2Flateyri

Fyrsti dálkurinn sýnir hæsta 10-mínútna meðalvindhraða á stöðinni fyrstu 12 daga nóvembermánaðar. Annar dálkur sýnir mestu vindhviðu á þessu tímabili. Það vekur eftirtekt að enginn staðanna hefur alveg sloppið við slæmar vindhviður. Flestar stöðvarnar í töflunni fá alloft á sig slæm veður í ákveðnum áttum. Vestan- og suðvestan- og sunnanveður hafa ekki sýnt sig það sem af er mánuðinum. Komi slíkt veður er líklegt að flestar þessar stöðvar falli.

Það gæti alveg orðið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 111
  • Sl. viku: 1496
  • Frá upphafi: 2348741

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 1302
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband