Júlíhitinn í Vestmannaeyjum

Eins og fram hefur komiđ í fréttum var nýliđinn júlímánuđur sá hlýjasti sem mćlst hefur á Stórhöfđa í Vestmannaeyjum. Ţótt lítiđ mark sé takandi á tveimur aukastöfum í međalhita skulum viđ samt nota ţá í ţví sem hér fer á eftir. Júlíhitinn núna var 11,89 stig, nćsthlýjast var í júlí fyrir tveimur árum, 2010, 11,75 stig og júlí 1933 er í ţriđja sćti međ 11,66 stig.

En danska veđurstofan setti upp stöđ í Vestmannaeyjakaupstađ í júní 1877 og ţar var linnulaust mćlt í 44 ár eđa fram í september 1921 ađ flutt var til Stórhöfđa. Flutningurinn var skyndilegur ef kalla má svo - engar samanburđarmćlingar fóru fram sem gćtu gefiđ til kynna hversu mikillar breytingar var ađ vćnta. Rúmlega 100 metra hćđarmunur er á stöđvunum tveimur ţannig ađ búast má viđ kerfisbundnum hitamun.

Ţegar giskađ er á breytingu hita međ hćđ hér á landi er oftast gripiđ til talna á bilinu 0,6 til 0,7 stig á hverja hundrađ metra hćkkun. Ţegar ţćr tölur sem verđa notađar i línuritinu hér ađ neđan voru reiknađar var ákveđiđ ađ kerfisbundinn munur, 0,75 stig vćri á stöđunum tveimur ţannig ađ hlýrra var í Kaupstađnum. Til ađ fá samfellda röđ var hitinn í kaupstađnum 1877 til 1921 lćkkađur um ţessa tölu, jafnt í öllum mánuđum ársins.

Eftir ađ ţetta var gert var fariđ ađ mćla hita á sjálfvirkum stöđvum bćđi á Stórhöfđa og í kaupstađnum. Ţetta gerir ađ verkum ađ viđ vitum nú miklu meira um raunverulegan mun stađanna tveggja heldur en áđur. Í ljós kom ađ hann er ađeins minni yfir áriđ heldur en taliđ var (0,55 stig) og á sér ađ auki dálitla árstíđasveiflu. Hann er mestur á vorin og fram á sumar (um 0,7 stig) en minnstur í janúar (um 0,3 stig). Hćgt er ađ giska á ástćđu. Líklega myndast á vetrum mjög grunnstćđ hitahvörf viđ stöđina í kaupstađnum sem vinna á móti hitamun stađanna ţegar vindur er hćgur.

Sömuleiđis gefa sjálfvirku athuganirnar í kaupstađnum góđar upplýsingar um hegđan dćgursveiflunnar ţar miđađ viđ Stórhöfđa. En ţessar nýju upplýsingar hafa ekki enn veriđ notađar viđ endurútreikning gamalla međaltala. Svo vill til ađ í júlímánuđi er munur á nýrri og gamalli hćđarleiđréttingu ómarktćkur (0,07 stig) - en svo virđist sem viđbótarupplýsingarnar um dćgursveifluna lćkki gamla kaupstađarhitann um 0,1 stig eđa svo frá ţví sem síđast var reiknađ. Ţessir tveir ţćttir gćtu ţví jafnađ hvorn annan út ađ mestu.

Međalhiti í júlí 1880 í kaupstađnum var 12,66 stig sem reiknađist niđur í 11,91 stig á Stórhöfđa. Júlíhitinn nú var eins og áđur sagđi 11,89 stig. Reikniađferđ dönsku veđurstofunnar gaf 12,8 stig í kaupstađnum - en ţá var dćgursveiflan ekki nćrri ţví eins vel ţekkt og nú er.

Á árunum 1869 til 1880 var athugađ á prestsetrinu Ofanleiti. Ţessar mćlingar voru ekki eins stađlađar og veđurstofumćlingarnar dönsku (ekkert skýli) en vegna ţess ađ mćlt var samtímis á stöđunum í ţrjú og hálft ár er unnt ađ giska á kaupstađar- og ţar međ Stórhöfđahitann allt aftur til 1869.

En lítum ađ lokum á línurit sem sýnir međalhita á Stórhöfđa í júlí 1869 til 2012.

w-blogg030812

Lárétti ásinn markar árin, en sá lóđrétti sýnir međalhita júlímánađar. Nćrri fjórum stigum munar á hlýjasta og kaldasta mánuđi á línuritinu. Kaldastur varđ júlí sumariđ endemisfrćga, 1983. Viđ sjáum ađ varla er hćgt ađ velja 30 ára tímabil sem er öllu kaldara en ţađ sem nú er notađ til viđmiđunar, 1961 til 1990. Klasar af mjög köldum júlímánuđum komu á árunum 1874 til 1876 og sömuleiđis 1885 til 1888. Nú hafa komiđ 13 júlímánuđir í röđ međ yfir 10 stiga međalhita.

Tímabiliđ sýnir litla leitni hitans. Sjávarhiti rćđur talsverđu um sumarhita í Vestmannaeyjum og veldur ţví t.d. ađ talsverđ fylgni er á milli hita einstakra mánađa ađ sumarlagi. Líkur á hlýjum ágúst á eftir hlýjum júlí eru ţannig meiri heldur en ađ kaldur ágúst fylgi hlýjum júlí. Rétt er ţó ađ taka slíka spádóma ekki of alvarlega.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 142
  • Sl. sólarhring: 187
  • Sl. viku: 2384
  • Frá upphafi: 2348611

Annađ

  • Innlit í dag: 116
  • Innlit sl. viku: 2079
  • Gestir í dag: 105
  • IP-tölur í dag: 105

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband