Rigningarspáin

Reiknimiðstöðvar hafa undanfarna daga spáð rigningu vestanlands á tímabilinu frá sunnudegi og fram á þriðjudag. Ekki hefur verið samkomulag um magn og reyndar ekki heldur um það hversu lengi úrkoman á að standa - og ekki heldur um það hvers eðlis hún yrði. Sömuleiðis gengur illa að tengja úrkomuna ákveðnum veðurkerfum, jú, þau eru til en láta afskaplega lítið fyrir sér fara. Hér verður engu spáð - en rætt um örfá atriði.

Við lítum fyrst á úrkomuspá evrópureiknimiðstöðvarinnar sem gildir kl. 18 á mánudag (2. júlí).

w-blogg010712a

Við sjáum jafnþrýstilínur, það er 1012 hPa línan sem liggur sunnan við land en 1016 hPa er austur af. Heldur er þetta gisið enda er vindur lítill. Sé farið í smáatriði má sjá lægðarmiðju um 300 km norður af Melrakkasléttu. Úrkomumagn er gefið til kynna með litum. því dekkri sem þeir eru því meiri ákefð er spáð. Þar sem græni liturinn er dekkstur er 3 til 5 mm spáð á 3 klukkustundum, milli kl. 15 og 18 á mánudag - býsna mikið.

Líkanið reiknar út tvenns konar úrkomugerð. Önnur er svonefnd klakkaúrkoma en sú úrkoma gefur til kynna að loft sé óstöðugt, úrkoman er dembukennd og fellur skammt þar frá sem uppstreymið á sér stað. Á myndinni er þessi úrkomutegund merkt með litlum þríhyrningum. Hina tegundina köllum við breiðuúrkomu en á máli reiknimiðstöðvarinnar kallast hún stórkvarðaúrkoma. Breiðuúrkoma verður til í hægu fláauppstreymi, þ.e. uppstreymi sem ekki er lóðrétt heldur liggur á ská upp á við.

Við sjáum að þríhyrningar þekja nær allt litaða svæðið yfir Íslandi. Loft er greinilega óstöðugt. Dálítil úrkomuklessa norðaustur af lægðarmiðjunni litlu er hins vegar þríhyrningalaus.

Ef trúa á reiknimiðstöðinni byrjar að rigna við Faxaflóa sólarhring fyrr, síðdegis á sunnudag. Úrkoman á síðan að breiðast norður á bóginn og síðan til austurs. Hún heldur áfram á aðfaranótt mánudags og mestallan þann dag. Af þessu má ráða að hér er ekki eingöngu um síðdegisskúrir að ræða - þetta er einhvers konar úrkomukerfi.

Við skulum líta á annað kort - sem sýnir ástandið í 3 km hæð á sama tíma og kortið að ofan.

w-blogg010712

Þetta er klippa úr 700 hPa korti. Við sjáum aðeins tvo búta úr jafnhæðarlínu, 2940 metra. Síðan eru hefðbundnar vindörvar. Hæg suðaustanátt gengur inn á landið úr suðri, en ákveðnari suðvestanátt er norðan við. Gráu fletirnir sýna rakastig, þau svæði eru grá þar sem rakastig er hærra en 70 prósent. Einnig sjást gulir fletir, þar er rakstigið sérlega lágt, minna en 25 prósent.

Ritstjórinn hefði á skilaárunum teiknað hitaskil yfir Breiðafirði og eitthvað norður fyrir land en síðan kuldaskil þaðan í átt sunnan við lægðarmiðjuna. En nánari skoðun leiðir í ljós að gráa svæðið yfir Íslandi er kaldara í 700 hPa (3 km hæð) heldur en svæðin norðan og sunnan við. Í 850 hPa (1500 metra hæð) er þetta sama svæði hins vegar hlýrra en svæðin umhverfis.

Þar er reyndar komið að líklegri ástæðu úrkomunnar og erfiðleikum reiknimiðstöðva við að ná taki á henni. Væntanlega er óþægilega lítill munur á mættishita í 700 og 850 hPa í úrkomusvæðinu. Byrji úrkoma á annað borð losnar dulvarmi og hlýrra loft lendir skamma stund undir kaldara - það gengur auðvitað ekki og uppstreymisloftið sturtar úr sér rakanum.

Myndist úrkoma á annað borð er líklegt að hún verði talsverð. Úrkomumyndun hefur hins vegar ekki farið af stað í öllum spásyrpum reiknimiðstöðvanna undanfarna daga. Greinilega munar litlu.

En við fylgjumst auðvitað vel með himninum á sunnudag - ef til vill má sjá óstöðugleikann á skýjunum áður en all hverfur í alskýjaðan gráma. Við skulum vona að norðvestanvert landið fái einhverja vökvun - ekki veitir af. En það er svosem ekki víst.

Já, rétt að benda á töluna -4 sem sjá má yfir Norðurlandi. Þetta er ekki hiti heldur uppstreymisákefð. Lesendur þurfa ekki að veita þessu frekari athygli en áhugasömum er bent á gamlan hungurdiskapistil þar sem lítillega er um málið fjallað.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5
  • Slide4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 72
  • Sl. sólarhring: 118
  • Sl. viku: 1696
  • Frá upphafi: 2349656

Annað

  • Innlit í dag: 66
  • Innlit sl. viku: 1537
  • Gestir í dag: 63
  • IP-tölur í dag: 60

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband