Versta júlíveđriđ?

Hvert er versta júlíveđriđ? Júlí er hćgviđrasamastur mánađa ársins og illviđrarýr. Verstu veđrin eru oftast norđanáhlaup međ snjókomu um allt hálendiđ og víđa í byggđum fyrir norđan og á Vestfjörđum. Úrfelli og skriđuföll í framhaldi af ţeim eru nokkuđ algeng.

Nú er ţađ ţannig ađ líkur á úrhellisrigningu eru heldur meiri í júlí en júní (viđ getum reiknađ ţađ út síđar) en fjallaleysingar eru ađ ţví er ég held meiri í júní heldur en júlí. Ţegar litiđ er yfir skriđufallasöguna sést ađ tjónaskriđur eru algengastar í ágúst. Ég hef einhvern veginn á tilfinningunni - án ţess ađ geta rökstutt ţađ međ tölum - ađ á 19. öld hafi vorleysingar stundum veriđ svo seinar til fjalla ađ ţćr hafi oftar lent inni í vaxandi úrkomulíkum júlímánađar. Ţar međ hafi líkur á alvarlegum sumarflóđum veriđ meiri heldur en nú. Ekki er ţetta ţó víst - en mćtti athuga nánar.

En versta júlíveđriđ er ábyggilega norđanáhlaupiđ 23. til 24. júlí 1966 en ţađ kom ofan í óminnilega mikla rigningu suđvestanlands. Rigningin olli skriđuföllum bćđi á Kjalarnesi og í Hafnarfjalli viđ Borgarfjörđ. Minnst var á ţetta veđur hér á hungurdiskum (4. júlí) ţegar fjallađ var um mestu snjódýpt í júlímánuđi. Kannski man einhver eftir ţessu. En rifjum upp helstu skađana:

Gríđarlega mikiđ fauk af heyi, girđingar skemmdust og kartöflugarđar spilltust mjög, garđagróđur varđ illa úti. Tjöld fuku á tjaldstćđum og ferđafólk lenti í hrakningum. Trillur sukku á Svalbarđsströnd og á Húsavík, ţök tók af húsum í Ólafsfirđi, ţak tók af bćnum í Hólakoti ţar í sveit og mikiđ foktjón varđ einnig á Skeggjabrekku, járnplötur fuku af fáeinum húsum í kaupstađnum.

Útihús fuku í Skaftafells- og Rangárvallasýslum, ţrjár heyhlöđur fuku í Norđurhvammi í Mýrdal, ţurrkhjallur og fleira, fauk ofan af útihúsi í Pétursey og járn fauk á Völlum. Í Eyjarhólum eyđilagđist nýr braggi algjörlega. Heyhlađa fauk á Raufarfelli undir Eyjafjöllum, ţak tók af íbúđarhúsi í smíđum á Lambafelli, rúđur brotnuđu í íbúđarhúsum og bílar sködduđust. Vegagerđarskúrar fuku og gjöreyđilögđust í Suđursveit. Töluverđar skemmdir á rafmagns- og símalínum. Fuglsungar drápust unnvörpum og fé króknađi. Fjallvegir tepptust af snjó og ţađ snjóađi niđur undir sjó norđaustanlands. Mýrdals- og Sólheimasandur lokuđust af sandfoki.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 495
  • Sl. viku: 2244
  • Frá upphafi: 2348471

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 1965
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband