Fáein orð um illviðrin í apríl

Svo virðist sem meðalvindhraði í aprílmánuði 2011 hafi verið sá mesti síðan í illræmdum apríl 1953 - en sá mánuður var sérstaklega óvenjulegur fyrir það að vera kaldasti mánuður ársins víða um land. Ég nota orðið virðist vegna þess að ég er ekki búinn að reikna dæmið alveg til mánaðamóta - og síðustu tveir dagarnir voru mjög hægir. En ekki var kuldanum fyrir að fara í apríl 2011, einn af allrahlýjustu aprílmánuðum um landið norðan- og austanvert. Nákvæm röðun kemur í ljós á mánudaginn þegar menn setjast við reikninga á Veðurstofunni.

En meðalvindhraði í apríl 2011 var sum sé óvenjuhár. Safn sjálfvirkra stöðva í byggð hefur ekki mælt svo vindasaman apríl síðan þær stöðvar mynduðu fyrst samanburðarhæft þýði 1995. Illviðri voru óvenjumörg í mánuðinum og sömuleiðis var óvenjulegt að þau skyldi aðallega gera úr suðlægum vindáttum. Veðrin í apríl 1953 voru aðallega úr norðri.

Hér er mynd sem á að sýna áttirnar. Hún er unnin upp úr töflu sem ég læt fylgja með í viðhengi. Þar er listi yfir mesta vindhraða á öllum veðurstöðvum í apríl, hvenær hann varð og af hvaða átt blés á stöðinni á sama tíma.

w-illvidri-april2011

Myndformið er e.t.v. kunnugt fáum en það er samt auðlesið. Lárétti ásinn sýnir daga aprílmánaðar 2011, en sá lóðrétti (réttvísandi) vindátt í áttavitagráðum. Enginn punktur er fyrstu þrjá daga mánaðarins, en þann fjórða má sjá einn punkt nærri 50 gráðum. Ef nákvæmlega er skoðað kemur í ljós að tveir punktar hafa skrifast nánast ofan í hvorn annan. Í listanum í viðhenginu má sjá að mesti vindhraði mánaðarins bæði á Fagurhólsmýri og á Ingólfshöfða mældist kl. 23 þennan dag í norðaustanátt. Ekki mældist meiri vindhraði á þessum stöðvum síðar í mánuðinum þrátt fyrir öll illviðrin.

Næsta veður gerði að kvöldi þess 7. og aðfaranótt 8. Smáatriði þess má sjá í listanum en þetta veður varð það versta í mánuðinum víða um landið austanvert. Á myndinni sjáum við að vindur var þá víðast af vestri og vestnorðvestri en þær áttir eru sérlega skæðar víða austanlands. 

Þrjár stöðvar náðu sínum hámörkum í suðaustan- og suðsuðaustanátt þann 9. Þetta var á Þyrli í Hvalfirði, í Grundarfirði og við Búlandshöfða.

Síðan kemur versti dagur mánaðarins, sá 10. Um það veður var fjallað á hungurdiskum skömmu síðar og verður ekki endurtekið hér, en þar mátti sjá að vinsælustu vindáttirnar voru í kringum 190 gráður - en dreifðust samt talsvert eins og myndin sýnir.

Þótt veðrið á sumardaginn fyrsta og á páskadag væru slæm voru þau af svipaðri vindátt og veðrið þann 10. og mega því lúffa fyrir því í þessu uppgjöri. Tvær stöðvar, Grímsey og Straumnesviti eiga þó innkomu rétt fyrir miðnætti að kvöldi 20., þá af vestri.

Sá 28. á síðan mjög góða innkomu. Flestar eru þær stöðvar í Rangárvallasýslu eða austar á Suðurlandi og upp á afréttum þeirra sýslna - mjög athyglisvert.

En nördum er bent á viðhengið - ég vona að vafrar þeirra opni það rétt - ef ekki má reyna afritun og opnun beint í töflureikni. Listanum er raðað eftir degi og klukkustund, en má raða eftir lyst í töflureikni. Í töflunni má einnig sjá mestu vindhviðu á stöðinni, ekki er alveg tryggt að hún hafi orðið á sama tíma og gefinn er upp með mesta 10-mínútna vindinum. Allar vindhraðatölur eru í m/s.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 29
  • Sl. sólarhring: 113
  • Sl. viku: 1520
  • Frá upphafi: 2348765

Annað

  • Innlit í dag: 28
  • Innlit sl. viku: 1326
  • Gestir í dag: 27
  • IP-tölur í dag: 27

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband