Enn eitt óróatímabil framundan?

Eftir tvo góđa en kalda daga blćs kuldapollaliđiđ enn til sóknar og byrjar ađ hafa áhrif á morgun (sunnudag 13.3.) Nýi kuldapollurinn er nú fyrir vestan Grćnland og stór hluti hans sćkir yfir jökulinn nćstu tvo daga. Reyndar mátti sjá fyrstu útsendara kerfa hans hátt í lofti í dag, en sennilega hafa ekki margir tekiđ eftir mikilli hreyfingu klósigakembanna sem yfir okkur fóru. Eins og venjulega virđast ţeir í fljótu bragđi hreyfingarlitlir - en fariđ sést ţegar horft er til himins.

Myndin sýnir 500 hPa-spákort HIRLAM-líkansins og gildir ţađ klukkan 9 í fyrramáliđ (sunnudag). Eins og venjulega sýna svörtu línurnar hćđ flatarins í dekametrum (1 dam = 10 metrar) og ţćr rauđu ţykktina milli 500 og 1000 hPa-flatanna, einnig í dekametrum. Ţví meiri sem ţykktin er ţví hlýrra er loftiđ í neđri hluta veđrahvolfsins. Ţar sem ţykktar- og hćđarfletirnir mynda ţétta möskva eru hlutirnir ađ gerast.

w-hirlam130311-0900

Ţví ţéttari sem svörtu línurnar eru ţví meiri vindur er í 5 km hćđ, ţví ţéttari sem ţykktarlínurnar eru ţví brattara er hitasviđiđ. Ţar sem hitasviđiđ er hvađ brattast eru kulda- eđa hitaskil. Vestan Íslands sést hvernig vestlćg átt liggur nokkuđ ţvert á jafnţykktarlínurnar  ţannig ađ hćrri ţykkt er í ţeirri átt sem vindurinn blćs úr. Ţađ táknar ađ ţar er hlýtt ađstreymi, hlýtt loft tekur viđ af kaldara. Ekki sést á ţessari mynd hvar hitaskilin eru viđ jörđ. Ţetta hlýja ađstreymi nćr alveg suđur fyrir Nýfundnaland.

Vestan viđ hlýjuna er kalt, langkaldast í kuldapollinum miđjum vestan Grćnlands. Ţar má sjá venju fremur lágar tölur. Innsta jafnhćđarlínan er 4740 metrar - innsta jafnţykktarlínan er 4680 metrar - ísaldarkuldi sem sést ađeins stöku sinnum á hverjum vetri í ţessum slóđum.

Fyrir sunnan kuldapollinn, viđ strönd Labrador er myndarleg lćgđarbylgja. Nćsta sólarhring - fram á ađfaranótt ţriđjudags mun hringrás kuldapollsins éta hana upp til agna en hún mun hins vegar auđvelda honum stökkiđ yfir jökulinn. Stóru örvarnar sýna gróflega stefnumót bylgju og polls um miđjan dag á mánudag.

Hvađ svo nákvćmlega gerist er ekki enn alveg ljóst - nánast öruggt má telja ađ kuldapollurinn stökkvi yfir jökulinn, en hversu öflugur verđur hann eftir stökkiđ? Hluti verđur eftir vestan Grćnlands og fer síđan hringferđ um Kanadísku heimskautaeyjarnar áđur en hann kemur viđ sögu aftur síđar í vikunni. Sá hluti sem fer yfir Grćnland á ađ verđa öflugri - en hversu öflugur er ekki vitađ ţegar ţetta er skrifađ. Ansi ćđisgengnar spár láta jökulkalt loft falla í miklum fossi niđur í firđi SA-Grćnlands - miklum piteraq eins og heimamenn kalla ţađ. Yfir fossinum dragast veđrahvörfin niđur og spár gera ráđ fyrir ţví ađ 500 hPa-hćđin í miđju pollsins fari ţá niđur fyrir 4680 metra og ţykktin niđur í 4885 metra. Hvoru tveggja mjög óvenjulegt - ekki síst ţegar komiđ er fram í mars. Ég veit varla hvort ég á ađ trúa ţessu.

Hvađ gerist svo hér á landi? Ţađ er ađ mörgu leyti venjuleg atburđarás. Hann hvessir á sunnan, nú er hvössustu spáđ snemma á mánudag. Svo fer í hefđbundinn útsynning upp úr ţví - en síđan tekur óvissan viđ. Framtíđarspár eru út og suđur. Sumar spár láta kuldapollinn deyja hćgum en tiltölulega rólegum dauđa ţađ sem eftir er vikunnar, en ađrar láta hann senda til okkar nokkrar mjög kröftugar lćgđir. Ţeir sem eitthvađ eiga undir veđri ćttu ađ fylgjast vel međ spám Veđurstofunnar ţessa óvissuţrungnu viku. Eins og venjulega skal minnt á ađ hungurdiskar fjalla um spár - en spá engu.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Ţađ setti ađ mér svo mikinn hroll viđ ţennan lestur ađ ég ţurfti ađ fara í peysu.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 13.3.2011 kl. 11:03

2 identicon

..........sćll og takk fyrir spár um vondar horfur. Ţađ eru bestu spárnar , og ţó

hungurdiskur " spái" ekki, má lesa í frćđin og spá í framtíđina , ţó ţađ sé oft

erfitt.  Ţessi ţráláti kuldapollur sendi skýrt bođskort í veisluna fyrir nokkrum

vikum međ tilkomumiklum glitskýjum sem nestor Páll Bergţórsson segir ađ

réttnefnd hafi veriđ " snćský" forđum. En nú er stóra spurningin ţegar jafndćgur nálgast : HVAĐ  gerir kuldapollurinn fyrir páska ? ..hvernig hegđar Azoreyjahćđin sér. ?  Hvenćr kemur voriđ á Íslandi.? En takk fyrir ágćta pistla og fín kort.!

                                                             Kv. Óli Hilmar Briem

óli Hilmar Briem Jónsson (IP-tala skráđ) 13.3.2011 kl. 11:50

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 94
  • Sl. sólarhring: 112
  • Sl. viku: 1843
  • Frá upphafi: 2348721

Annađ

  • Innlit í dag: 84
  • Innlit sl. viku: 1614
  • Gestir í dag: 78
  • IP-tölur í dag: 78

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband