Lægðir vikunnar - 2. hluti

Eins og fram kom í pistli í gær munu lægðir nú ganga yfir landið eða í námunda við það hver á fætur annarri. Kuldaskil fóru yfir landið í morgun og í dag. Þeim hefur fylgt hefðbundinn éljaútsynningur á Suður- og Vesturlandi en bjart er orðið í lofti norðaustanlands. En skýjakerfi næstu lægðar nálgast landið. Við lítum á það á gervihnattarmynd af vef Veðurstofunnar.

seviri280211-2300

Þetta er lágupplausnarmynd úr myndaröð þar sem nýjar myndir birtast á klukkustundarfresti. Örvar á myndinni benda út og suður og skulu þær nú skýrðar.

Rauð ör ofarlega á myndinni bendir á leifar lægðarinnar sem var upp á sitt besta í gær, hún hefur hringað sig snyrtilega upp við strönd Austur-Grænlands. Sunnan hennar kemur éljaloftið frá Kanada fer sína venjulegu leið sunnan Grænlands og til Íslands. Við sjáum að klakkarnir verða hvítari og efnismeiri eftir því sem nálgast Ísland. Því hvítari sem skýin eru því kaldari eru topparnir. Það eru tvær eða þrjár skýringar á kuldanum í þessu tilviki. En við látum kyrrt liggja.

Alllangt fyrir sunnan og suðvestan land er mikið skýjakerfi. Þar benda örvar á tvær bylgjur á því svæði sem við höfum áður kallað hlýja færibandið. Við sem höfum fylgst með kerfinu í allan dag vitum að fremri bylgjan hefur farið fram úr því svæði sem rauð ör bendir á og kallar haus, hún var því samsíða fyrr í dag. Þetta sýnir að kerfið er ekki alveg búið að ná sér á strik og talsverð óvissa um framtíð þess. Líklegt er að fyrri bylgjan gangi hratt út úr því í nótt. Spennandi verður að sjá hvernig hausinn þróast. Ég treysti mér ekki til að segja til um hvort hann flokkast sem kalt færiband eða ekki að þessu sinni.

Annað merki um vanþroska er að sjálf háloftabylgjan sem kerfið er hluti af er enn aftan við meginskýjakerfið. Hún sést ekki á myndinni en hins vegar vel á háloftakortum (sem má sjá t.d. á brunni Veðurstofunnar). Það þýðir að setja verður spurningamerki þar sem á myndinni stendur „þurra rifan“. En niðurstreymið ofan við þurru rifuna auðveldar lægðinni mjög að ná upp snúningi þegar og ef að því kemur.

Nú á dögum er svo komið að oftast ná tölvureikningar að reikna braut lægða sem þessarar 1 til 2 daga fram í tímann með nákvæmni sem skeikar ekki meiru en 1 til 2 hundruð kílómetrum og einnig má nokkuð vel treysta þeim varðandi dýpkun velriðinna lægða af þessu tagi. Þegar þetta er skrifað á lægðin að fara yfir landið. Mestur hluti vestan- og norðvestanstrengsins aftan við hana á að fara hjá fyrir suðaustan land, en við eigum ekki að sleppa alveg.

Áhugamenn um lægðir ættu að fylgjast vel með þessari. Nær hún verulegum snúningi - eða tæta háloftavindar hana í sundur? Hvessir á Suðaustur- og Austurlandi - eða sleppum við alveg?

Á myndinni hér að ofan sést aðeins í næstu lægð, skýjakerfi hennar gægist fram við norðurodda Nýfundnalands. Lifir hún af hraðbrautaraksturinn til Íslands?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5
  • Slide4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 49
  • Sl. sólarhring: 112
  • Sl. viku: 1673
  • Frá upphafi: 2349633

Annað

  • Innlit í dag: 44
  • Innlit sl. viku: 1515
  • Gestir í dag: 44
  • IP-tölur í dag: 41

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband