Lćgsti hiti á veđurstöđvum í febrúar

Listi yfir hćsta hita á einstökum veđurstöđvum í febrúar hékk á hungurdiskapistli í fyrradag. Hér međ fylgir listi yfir lćgsta hita á stöđvunum í febrúar. Gallinn er sá ađ hann er ađeins fullgerđur aftur til 1924. Til eru lćgri, eldri gildi á nokkrum stöđvum t.d. bćđi í Reykjavík og á Akureyri. Vonandi verđur búiđ ađ bćta úr ţessum ágalla áđur en febrúar 2012 rennur upp. Ţađ er vonandi einhver huggun í ţví ađ lćgsta talan -30,7 stig, frá Möđrudal 4. febrúar 1980 er alla vega lćgri en allar ađrar febrúartölur allt frá 1874.

Lćgstu tölurnar eru:

upph.ár endaár metár metdagur met stöđ

1961 2010 1980 4 -30,7 Möđrudalur

1993 2010 2008 2 -30,3 Veiđivatnahraun

1939 1960 1955 10 -29,5 Möđrudalur

1994 2010 1995 8 -29,1 Kolka

1994 2010 2008 2 -29,1 Ţúfuver

2004 2010 2009 12 -29,0 Svartárkot sjálfvirk stöđ

1997 2010 1998 12 -27,5 Mývatn

1997 2010 2009 7 -27,5 Mývatn

1938 1960 1955 10 -27,4 Reykjahlíđ

1998 2010 2002 24 -27,3 Setur

1966 2004 1969 6 -27,2 Hveravellir

Sjálfvirka stöđin viđ Mývatn er í Neslandatanga. Tvćr af tölunum eru nćrri ţví nýjar, frá ţví í miklu kuldakasti í febrúar 2009.

Lćgsta febrúartalan í Reykjavík er eldri en taflan, -18,3 stig frá 15. 1886, lćgsta febrúarlágmark á Akureyri er frá 27. 1882. -24,0 stig. Jón Ţorsteinsson landlćknir mćldi 20 stiga frost í Reykjavík 18. febrúar 1839, en hans mćlir var of lágt frá jörđu til ţess ađ vera samanburđarhćfur, auk ţess var mćlirinn óvarinn. Sama má segja um mćlingu Rasmusar Lievog frá Lambhúsum á Álftanesi -18,8 stig ţann 6. febrúar móđuharđindaveturinn 1783 til 1784. Svo mćldi vonScheel -32,0 á Akureyri 6. febrúar 1808. Líka fulllágt frá jörđ međ óvörđum mćli.

Eins og venjulega er listinn fjórskiptur: Fyrst koma sjálfvirku veđurstöđvarnar. Síđan eru sjálfvirkar stöđvar vegagerđarinnar og mannađar stöđvar á tímabilinu 1961 til 2010. Ađ lokum eru mannađar stöđvar á tímabilinu 1924 til 1960. Hugsanlega er eitthvađ af villum í listunum.  Fyrsti ársdálkurinn sýnir upphaf tímabilsins sem miđađ er viđ á hverri stöđ, annar dálkurinn síđasta ár safnsins (oftast 2010) og síđan koma metár og metdagur (sem hér er auđvitađ í febrúar). Athugiđ ađ stöku stöđ hefur ađeins veriđ starfrćkt mjög stuttan tíma eđa er ţá nýlega byrjuđ. Nýju stöđvarnar eiga oft eftir ađ slá sín „met“ á nćstu árum og eru jafnvel ađ ţví ţessa dagana.

Marga athyglisverđa atburđi má sjá ţegar rýnt er í listana, t.d. hvađ landslag hefur mikil áhrif á lágmarkshitann og hve mikill munur er á inn- og útsveitum.  


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góđan dag.

Datt í hug ađ setja fyrirspurn mína hérnai nn ţar sem ég hef tvívegis ritađ veđurstofu bréf og sett fram ţessa spurningu en ekkert svar borist.....

Hvađ hefur skráđur međalhiti á Egilsstöđum lćkkađ mikiđ eftir ađ mćlirinn var fluttur frá svokölluđum Truntubökkum ( Ártröđ) rétt viđ Eyvindarár yfir á flugvallarsvćđiđ ţar sem mér skilst ađ núverandi stađsetning sé?

Fyrra bréf mitt barst Magnúsi Jónssyni sem "svarađi" í löngu máli án ţess ađ svara spurningunni, hiđ seinna var sent löngu seinna eđa fyrir einu eđa tveimur árum og mér tjáđ ađ ţú yrđir sennilega settur í ţađ ađ svara ţví ţegar ég hringdi og vitjađi svars. Enn hefur ekkert svar borist, er einhver ástsćđa fyrir ţví?

Međ kveđju og von um ađ ekki taki mörg ár í viđbót ađ fá svar.

Sigurlaug Gísladóttir

Brekkuseli 1

Egilsstöđum

(IP-tala skráđ) 16.2.2011 kl. 16:18

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 84
  • Sl. sólarhring: 122
  • Sl. viku: 1833
  • Frá upphafi: 2348711

Annađ

  • Innlit í dag: 75
  • Innlit sl. viku: 1605
  • Gestir í dag: 71
  • IP-tölur í dag: 71

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband