Dagalágmörk í desember

Þetta er systurfærsla þeirrar um hámörkin sem birtist hér fyrir tveimur dögum. Línuritin eru þau sömu nema hvað nú er fjallað um lágmarkshita. Betri samfella er í mælingum á lágmarki heldur en hámarki. Stafar það aðallega af því að hámarksmælar brotna mun oftar en lágmarksmælarnir og á árum áður þegar danska veðurstofan sá um mælingar hér á landi tók langan tíma að endurnýja mælana ef þeir eyðilögðust. Svipað var uppi á teningnum síðar, langt var til Reykjavíkur. Hins vegar eru lágmarksmælarnir vitlausari en aðrir mælar - en ekki meira um það.

w-Landslágmarkshiti

Hér vekur sitthvað eftirtekt. Hallatala leitninnar er -0,5 stig á áratug. Hallatala hámarkshitaleitninnar var hins vegar +0,5°C/áratug. Hámark og lágmark virðast því leita til sitthvorar áttar. Leitnin á þessari mynd virðist þó vera minni heldur en á hámarksmyndinni (frá í fyrradag). Hér kemur að grundvallaratriði við lestur línurita: Horfa verður á kvarðana. Á hámarksmyndinni eru 16 stig milli hæsta og lægsta gildis, en hér eru þau 40, hallinn virðist því minni hér þótt hann sé í raun sá sami.

Næsta sem vekur athygli er að hæstu gildin flest eru í upphafi, kringum 1875. Það stafar af því að engar stöðvar voru þá inn til landsins. Þetta lagaðist eftir 1880 og þá dettur lágmarkið niður í eitthvað sem kalla má eðlilegt. Það hækkar um aldamótin - án þess að stöðvakerfið breytist svo mjög og gæti því verið raunveruleg hlýnun. Árin um og upp úr 1930 eru líka há, þá var hlýtt. En þó verður að taka vara við hæsta gildinu, -6,9 stigum á Kollsá í Hrútafirði 13. desember 1933.

Við nánari skoðun er líklegt að þetta geti ekki staðist. Kollsá er ekkert sérstaklega líklegur staður á þessum árstíma og auk þess kemur í ljós að tvær mjög lágmarksgæfar stöðvar þessi árin vantar í skrána. Á Grænavatni við Mývatn féllu athuganir niður og af einhverjum ástæðum komust Grímsstaðir á Fjöllum ekki í Veðráttuna þennan mánuð og eru því ekki í þeirri skrá sem hér liggur til grundvallar. Ástæða er fyrir mig að athuga þetta nánar. En þess má geta að þessi ákveðni desembermánuður er sá hlýjasti um mestallt land og einnig á Grímsstöðum á Fjöllum, sá eini þar með meðalhita yfir frostmarki.

Síðan lækkar í línuritinu eftir 1970, sennilega vegna kólnunar. Á síðustu 15 árum eiga hálendisstöðvar í óbyggðum mánaðametin í 9 tilvikum. Til greina kom að sleppa þeim alveg í þessari athugun sem aðallega er gerð til gamans. En hlýindi síðustu ára sjást ekki á línuritinu. Desember 2002 var álíka kraftaverkamánuður og albróðir hans 1933. Þá mældist lægsta lágmark í byggð -12,5 stig á Torfum í Eyjafirði og í Möðrudal, mesta frost mánaðarins á landinu mældist í Þúfuveri, -17,5 stig. Rétt er að benda á það að þar sem snjóar mjög mikið minnkar fjarlægð hitamælis frá yfirborði og við það kann lágmark að verða lægra en ella hefði veri..

En hin myndin:

w-Landslágmarkshiti2

Hér er lægsti hiti hvers dags í byggð í desember eins og vitað er um. Tímabilið fyrir 1920 hefur ekki verið þaulleitað, en þar sem lægsti hiti sem mælst hefur á landinu í desember er frá því fyrir þennan tíma var ákveðið að hafa það með. Það gerðist í Möðrudal þann 9. árið 1917. Það var merkilegur mánuður - inngangur að þeim fræga janúar 1918 og kallaður hefur verið frostaveturinn mikli. Hámarksþrýstimet desember er einnig úr þessum mánuði - ég mun vonandi gera því skil eftir nokkra daga.

Í viðhenginu er listi yfir dagalágmörkin - í byggð. Vara verður að hafa á einu dagametanna, því frá þeim 4.  1936. Þá mældist hiti á Skriðulandi í Skagafirði -21,9 stig - lægsti hiti þann dag að því er skráin sýnir. Metið þann 5. er frá Grímsstöðum í sama mánuði, 1936, hugsanlegt er að lágmark á þeim stað daginn áður liggi í leyni í skránum. Það verður að athuga nánar.

 

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ef veðrið var athuga í des. 1933 á Grímsstððum og veðurbækurnar eru til væri full ástæða til að athuga lágmarkshitann þar þennan desember úr því að talan eins og hún stendur þarf nú endilega að vera hæsta landslágmark fyrir alla desembermánuði.

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.12.2010 kl. 16:01

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Ég þarf að athuga Grímsstaðagögnin frá 1933 og 1936 og geri það næstu daga.

Trausti Jónsson, 5.12.2010 kl. 23:33

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Við athugun á frumgögnum kom í ljós að lægsta lágmark á Grímsstöðum á Fjöllum í desember 1933 var -10,6 stig (þ.13.). Lágmarksmælirinn var mjög vitlaus en þetta er samt líkleg tala. Í desember 1936 var mest frost á Grímsstöðum -29,5 stig eins og stendur í Veðráttunni (þ.3.), en sama dag var hiti í Möðrudal -31,0 stig. Lægsta tala þann 4. í þessum mánuði er -25,0 stig í Möðrudal, en af einhverjum ástæðum birtust þessar tölur ekki í Veðráttunni, e.t.v voru þær taldar rangar. Það bíður betri tíma að greina það. Sama dag var lágmark í Reykjahlíð við Mývatn -24,5 stig og er rétt að gera það að lægsta hita sem mælst hefur þann 4. desember í stað þeirra -21,5 sem mældust á Skriðulandi og voru í skránni í viðhenginu.

Trausti Jónsson, 6.12.2010 kl. 11:50

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Og eftir sem áður er þetta, -10,6°,  hæsti lágmarkshiti á landinu í nokkrum desember frá og með 1880.

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.12.2010 kl. 23:05

5 Smámynd: Trausti Jónsson

Já, en ef við miðum eingöngu við byggð, munaði litlu í desember 2002, -12,5 var þá lægsta gildið - eins og getið var um í pistlinum.

Trausti Jónsson, 7.12.2010 kl. 01:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 52
  • Sl. sólarhring: 54
  • Sl. viku: 543
  • Frá upphafi: 2343305

Annað

  • Innlit í dag: 48
  • Innlit sl. viku: 494
  • Gestir í dag: 41
  • IP-tölur í dag: 37

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband