Dagamet í desember

Eins og venjulega þegar óvenju kalt eða hlýtt er einvers staðar í þéttbýlum löndum eiga fréttir um met greiðan aðgang að fyrirsögnum heimsfjölmiðlana. En sjaldnast er getið um hvers konar met er að ræða.  Þar er gott að hafa í huga að hitamet einstakra daga eru slegin oft á ári í venjulegu árferði. Líkurnar á því fara eftir því hversu lengi stöðin hefur athugað.

Fyrir nokkrum dögum var talað um kuldamet í Moskvu, þar hefur trúlega verið um dægurmet að ræða. Í Moskvu hafa hitamælingar verið nokkuð áreiðanlegar um langt skeið - sennilega aftur til 1870 þannig að fyllilega sé sambærilegt. Það eru 140 ár. Séu engar loftslagsbreytingar að eiga sér stað (jafnstöðuloftslag) ættu 2-3 dægurkuldamet að falla þar árlega, því dagar ársins eru 365. Sama á við um hitamet. Algengast er að engin met falli yfir árið, en stundum kemur slatti sama árið, í Moskvu munu mörg slík hitamet hafa fallið síðastliðið sumar.

Mánaðametin eru erfiðari. Hafi verið athugað í 140 ár ættu mánaðarmet ekki að birtast nema á 10 til 15 ára fresti að meðaltali. Algengur ævitími veðurstöðva er 20 til 50 ár. Fyrsta árið verður mánaðarmet til í hverjum mánuði, síðan fækkar þeim smátt og smátt eftir því sem lengur er athugað.

Erfiðara er að meta tíðni landsmeta. Veðurstöðvakerfið breytist sífellt, á síðari árum hefur sjálfvirkum hitamælistöðvum fjölgað mjög, aukinn þéttleiki eykur líkur á landsmetum. Séu landsmet skoðuð kemur hins vegar í ljós að þau eru mun líklegri á ákveðnum stöðum frekar en öðrum. Lítum á tvö línurit.

Landshámarkshiti-des

Hér sjáum við, að því er virðist, gríðarlega hlýnun. Leitnin er 0,5°C á áratug (5 stig á öld). Við athugun kemur í ljós að hæsti hita í desember er helst að vænta við sjávarsíðuna á Norður- og Austurlandi þar sem há fjöll eru í nánd. Þar voru engar stöðvar fyrr en snemma á 20. öld. Byrjað var að athuga á Seyðisfirði 1906. Á þriðja áratugnum bættust Hraun í Fljótum og Fagridalur við utanverðan Vopnafjörð við. Þá komu hærri tölur en sést höfðu áður. En þá hlýnaði líka í veðri. Metið sem sett var á Hraunum í Fljótum 3. desember 1933 (16,6 stig) stóð mjög lengi, það var jafnað 1970 og 1981. Árið 1988 kom svo nýtt met, það var á Seyðisfirði. Ný met komu síðan á Skjaldþingsstöðum (1997) og 2001 kom núverandi desembermet, 18,4 stig á Sauðanesvita vestan Siglufjarðar, ekki fjarri gamla metstaðnum á Hraunum.

Síðan höfum við beðið eftir nýju meti. Þeir sem eru kunnugir veðurstöðvakerfinu sjá að þeir staðir sem nefndir hafa verið eru mannaðir. Sjálfvirku stöðvarnar hafa enn ekki skilað mánaðarmeti í desember. Við sjáum einnig að hlýi áratugurinn 1930 til 1940 skilaði góðum hámarkshita og hámarkshitinn hefur einnig verið frekar hár á síðustu árum. Eitthvað hefur það með almenn hlýindi að gera.

En kíkjum á dagamet desember í leiðinni.

w-dagalagmork-des

Dagarnir 14. og 15. eru hæstir og gamlársdagur áberandi lægstur. Bláa, útjafnaða línan sýnir að eitthvað breytist um sólstöðurnar. Ef til vill er það þannig að líkur á hitabylgju detti niður um það leyti, ef til vill er um tilviljun að ræða. Líklegast er að næst falli met t.d. þann 7., 12. eða 17.

Listinn er í skrá í viðhengi. Þar kemur í ljós að elstu metin eru frá Seyðisfirði 22. og 23. desember 1962. Trúlega er hér um svokallað tvöfalt hámark að ræða - mætti athugast betur. Allar ábendingar um villur eru vel þegnar. Það kom mér frekar á óvart að stöðvarnar tvær í Hjaltadal, Hólar og Dalsmynni eiga met fyrir tvo daga. En þær eru reyndar ekki svo langt frá Sauðanesvita og Hraunum.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mjög athyglisvert. Þessi furðulegi hitakúltúr sem stundum kemur við sjóinn yst á Tröllaskaga er svolítið sérstakur. Mælingin á Sauðanesi frá 14. des 2001 er ekki síður sérstök fyrir mælistöðina en þetta var hæsta hitamæling ársins á þeim stað. Þú hefur kannski kannað þetta Trausti hvort slíkt hefur gerst á öðrum stöðum á landinu - þ.e. að heitustu mælingar ársins séu svona nálægt vetrarsólstöðum.

Hjalti Þórðarson

Hjalti (IP-tala skráð) 3.12.2010 kl. 09:40

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Góð og skemmtileg umfjöllun hjá þér, Trausti. Mögnuð þessi aukning í desemberhita og eins afar athyglisvert hvernig hitalækkunin virðist byrja akkúrat þann 21.

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.12.2010 kl. 13:36

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Þakka þér fyrir Gunnar. Hjalti, þakka þér fyrir að minna mig á þetta atriði, - ég dríf í að athuga málið nánar og skrifa um það innan skamms.

Trausti Jónsson, 3.12.2010 kl. 15:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 52
  • Sl. sólarhring: 53
  • Sl. viku: 543
  • Frá upphafi: 2343305

Annað

  • Innlit í dag: 48
  • Innlit sl. viku: 494
  • Gestir í dag: 41
  • IP-tölur í dag: 37

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband