Óþægileg lægð í vexti

Þegar þetta er skrifað (að kvöldi mánudagsins 6. febrúar 2023) virðist lægð vera að myndast suðvestur í hafi. Hún dýpkar og stefnir í átt til landsins á miklum hraða, meir en 100 km/klst. Talsverð óvissa er enn um braut hennar og dýpt þegar hún fer hjá. Áhrif, vindhraði og úrkomumagn eru því enn harla óviss. Lægðin þýtur síðan til Svalbarða og evrópureiknimiðstöðin gerir ráð fyrir því að hún verði komin þangað um miðjan miðvikudag, og þá verði hún orðin komin niður undir 940 hPa í miðju, en þegar hún fer hjá hér segir sama líkan miðjuþrýstinginn verða í kringum 980 hPa. Lægðin verður því í óðavexti. 

Við látum að vanda Veðurstofuna (og til þess bæra aðila aðra) alveg um spárnar, en lítum á nokkur háloftakort okkur til hugarhægðar. 

w-blogg060223a

Kortið að ofan sýnir stöðuna í 500 hPa-fletinum kl.9 að morgni þriðjudags 7.febrúar. Ísland er við miðja mynd (örin liggur um það bil yfir mitt landið). Jafnhæðarlínur eru mjög þéttar og vindur mikill, yfir 50 m/s - vindörvar sýna vindhraða og stefnu, en litir sýna hita. Gríðarkalt loft er fyrir vestan land, en hlýrra austur undan. Þar sem misgengi verður á milli jafnhæðar og jafnhitalína (strangt tekið jafnþykktarlína) myndast hes í háloftaröstinni í átt til jarðar, örin sýnir miðjuás í hesinu (nokkurn veginn). Þar er hitabratti ekki eins mikill og til beggja hliða. Við sjáum að þetta svæði er ekki mikið um sig - í heild jafnvel mjórra en landið sjálft er (frá austri til vesturs). Skeiki spám aðeins lítillega í umfangi þessa svæðis - eða staðsetningu þess - verður veður með öðrum hætti - það hittir annars staðar í - eða verður meira eða minna en reikningar gera ráð fyrir. 

w-blogg060223b

Hér lítum við enn ofar, upp í 300 hPa-flötinn hér í rúmlega 8 km hæð yfir sjávarmáli. Vindur er svipaður og í 500 hPa - eða lítillega meiri, en dreifing hita allt önnur. Kaldast er yfir því svæði sem var tiltölulega hlýjast á hinu kortinu. Það stafar af því að framrás kalda loftsins að vestan er svo áköf í neðri lögum að hún lyftir loftinu í 300 hPa upp og það kólnar við það. Uppstreymið er langmest þar sem jaðar kalda loftsins er brattastur - lyfting yfir landinu auðveldar uppstreymið þar að auki eitthvað. 

w-blogg060223c

Á þessu korti erum við aftur komin niður í 500 hPa (tæplega 5 km hæð). Gildir það seint annað kvöld. Þá á kalda loftið að vera komið yfir Ísland og -46 stiga frosti er spáð í 500 hPa yfir Keflavíkurflugvelli, jafnt febrúarlágmarkshitameti flatarins yfir flugvellinum. Hér er sum sé óvenjukalt loft á ferð. Lítillega lægri hiti hefur mælst í fletinum í desember og janúar. 

En þrátt fyrir þennan kulda í 500 hPa er hiti ekki nærri lágmarkshitametum í neðri flötum. Ástæðan er sú að loftið er betur blandað nú heldur en þegar met voru sett í neðri flötunum. En óvenjulegt er þetta engu að síður. 

Algengast er að vel þroskaðar eða fullþroskaðar lægðir séu þær sem mestum illviðrum valda hér á landi. Hér er hins vegar um kerfi að ræða sem er rétt í þann mund að hrökkva í óðadýpkun. Sé að marka reikninga á það eftir að gera skurk við strendur Noregs og á Svalbarða - jafnvel í Færeyjum líka - en er fljótt að afgreiða okkur. 

Viðbót (8.2):

Lægðin olli stormi á um 40 prósentum veðurstöðva í byggð - það er býsna mikið. Aftur á móti varð vindhraði hvergi í methæðum og stóð veðrið heldur ekki lengi. Það varð hins vegar mjög slæmt í Færeyjum, þar urðu fokskaðar og einnig varð mjög hvasst í Noregi. Hiti í háloftunum yfir Keflavík fór niður í -45,2 stig í 500 hPa og er það nærri febrúarmeti (-45,9 stig). 


Bloggfærslur 6. febrúar 2023

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 7
  • Sl. sólarhring: 58
  • Sl. viku: 405
  • Frá upphafi: 2343318

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 366
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband