Sviptingar á norđurslóđum

Ţessa dagana eru töluverđar sviptingar í veđri, ekki síst á norđurslóđum. Viđ verđum ekki mikiđ vör viđ ţetta hér á landi - alla vega ekki í bili.

Sérlega hlýtt loft hefur eđa er ađ komast norđur á 70. breiddarstig norđan Kanada.

w-blogg140722a

Hér má sjá klippu úr spá evrópureiknimiđstöđvarinnar um hćđ 500 hPa-flatarins og ţykktina á miđnćtti í kvöld (fimmtudag 14.júlí). Ţar sem ţykktin er mest er hún meiri en 5640 metrar (skipt er um lit á 60 metra bili). Undanfarna daga hafa hitamet veriđ ađ falla nyrst á meginlandinu sjálfu, hiti fariđ vel yfir 30 stig. Ritstjórinn hefur enn ekki séđ stađfestar tölur frá eyjunum. Veđurstöđvar eru ţar fáar - og flestar nćrri ströndinni ţar sem hafís bráđnar - og heldur hita niđri. Í reiknuđum spám fyrir svćđiđ sést vel yfir 20 stiga hiti á bćđi Devon- og Ellesmereeyju - slíkt er harla óvenjulegt. 

Viđ norđurskautiđ er hins vegar ógurlegur kuldapollur. Ţar er nćrri ţví vetrarástand. Ruđningur hlýja loftsins sćkir ađ pollinum og virđist ćtla ađ stugga honum til Alaska eđa austasta hluta Síberíu.

w-blogg140722b

En hlýtt loft leitar líka til norđurs yfir Svalbarđa. Ţessi spá hér ađ ofan gildir ađ vísu ekki fyrr en á sunnudag. Ţar má sjá ţykkt meiri en 5640 metra ná alveg norđur á 80. breiddarstig - en fjöll og vind ţarf til ađ ná hlýindunum til jarđar. Verđi ađstćđur ţannig hagstćđar gćti hiti fariđ yfir 20 stig á Svalbarđa. Ekki er ţetta algengt. Svona mikil ţykkt er heldur sjaldséđ hér viđ land - ţó viđ séum miklu sunnar á jarđkringlunni. 

w-blogg140722c

Hér má hins vegar sjá kuldapollinn - međ augum evrópureiknimiđstöđvarinnar - á mánudaginn kemur. Ekki víst ađ hann líti svona út ţá, en ţykktin í miđju hans er ekki nema 5170 metrar. Svo neđarlega fer hún aldrei í júlí hér á landi, 5250 vćri hugsanlegt. Til allrar hamingju ţurfum viđ ekki ađ hafa áhyggjur af ţessu kerfi um sinn. Spár eru ţó ekki sammála um hver framtíđ ţess verđur.

Svo er óvenjulegur hiti líka í Frakklandi og Englandi - gangi spár eftir.

w-blogg140722d

Spáin gildir á mánudag og sýnir meir en 5760 metra ţykkt yfir Suđur-Englandi. Ţetta er međ ţví allra mesta sem sést á ţeim slóđum. Ritstjórann minnir ađ Englandsmetiđ sé um 5760 metrar - en fyrirgefst vonandi misminni. En enn eru fjórir dagar í ţennan tíma og ýmislegt getur fariđ úrskeiđis í spánum.

Á međan sitjum viđ í til ţess ađ gera meinlítilli stöđu. 


Bloggfćrslur 14. júlí 2022

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5
  • Slide4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 17
  • Sl. sólarhring: 205
  • Sl. viku: 1641
  • Frá upphafi: 2349601

Annađ

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 1487
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 16

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband