Tvö norðanillviðri í október 2004 - til minnis

Árið 2004 var eins og margir muna óvenjuhlýtt. Í ágúst gerði eina mestu hitabylgju sem við þekkjum hérlendis. Þrátt fyrir hlýindin voru samt helstu illviðri ársins norðlægrar áttar - og voru nokkur. Tvö þeirra gerði með hálfs mánaðar millibili í október. Við lítum nú lauslega á þau. 

Þótt kalt loft langt úr norðri kæmi við sögu í báðum veðrunum bar þau samt ólíkt að.

Slide1

Lagardaginn 2. október var djúp og víðáttumikil lægð fyrir sunnan land. Austanátt var ríkjandi á landinu, en mikill norðaustanstrengur djúpt úti af Vestfjörðum. Lægðin hringsólaði á svipuðum slóðum daginn eftir, en lægðarbylgja fór þá yfir Bretlandseyjar, dýpkaði talsvert um síðir og lenti við Færeyjar. Á meðan varð loftið að norðan ágengara.

Slide2

Kortið sýnir stöðuna í 500 hPa-fletinum að kvöldi mánudags 4. október, þé er veðrið um það bil í hámarki. Kalda loftið ryðst í lægri lögum suður yfir landið - en hlýrra loft að austan heldur við.

Slide3

Sjávarmálskortið sýnir vindstrenginn vel, munur á þrýstingi á Vestfjörðum og á Austurlandi er hátt í 30 hPa. Þetta veður kemur við sögu í tveimur stuttum greinum sem birtust í 2004-árgagni Náttúrufræðingsins. Þar er ritað um gervihnattamynd sem sýnir mikinn sandstrók frá landinu og langt suður í haf. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur ritar líka um aðstæður þær sem sköpuðu sandstrókinn - áhugasamir ættu að fletta greininni upp á timarit.is.

Foktjón varð nokkuð. Í Neskaupstað gerði svokallað Nípukollsveður. Morgunblaðið segir um það í frétt þann 5.október:

Norðfirðingar fóru ekki varhluta af veðurofsanum í fyrrinótt. Telja margir að brostið hafi á með Nípukollsveðri, en svo kallast mjög slæm veður í austnorðaustan- eða norðnorðaustanáttum, þegar sterkar bylgjur myndast niður með Nípunni með tilheyrandi ofsahviðum, einkum í ytri hluta bæjarins. Nípukollsveður eru tiltölulega sjaldgæf og oft líða mörg ár, jafnvel áratugir, á milli þeirra. Veðurfræðingar skýra slík fyrirbrigði sem dæmigert ofsaveður sem verður hlémegin fjalla, en þá myndast fjallabylgjur er valda sterkum hviðum sem oft eru tvisvar sinnum sterkari en meðalvindurinn. Töluverðar skemmdir urðu í veðurofsanum og segjast margir ekki muna svo slæmt veður í langan tíma. Tré rifnuðu upp með rótum, þakplötur fuku og garðhús bútaðist niður. Gömul hús á Neseyrinni urðu illa úti og m.a. skemmdist austurgaflinn á gamla vélaverkstæðinu og þak fór af íbúðarhúsi. Þá urðu skemmdir á þaki tónskólans sem stendur ofarlega á eyrinni og rafmagnslaust var um tíma í öllum bænum. 

Bílar lentu í vandræðum, stór jeppi fauk út af vegi skammt frá Almannaskarði, annar bíll fauk við Kúðafljót og fleiri bílar lentu í vandræðum, m.a. í Suðursveit.

Á norðanverðum Vestfjörðum gerði mikla úrkomu og olli hún flóðum í frárennsliskerfum á Ísafirði og í Hnífsdal - flæddi inn í fj0lmarga kjallara. 

Það má taka eftir því að loftþrýstingur var ekki sérlega lágur í þessu veðri. 

w-blogg091022a

Rauða línan á myndinni sýnir lægsta loftþrýsting á landinu á klukkustundarfresti fyrstu 25 daga októbermánaðar 2004 og grái ferillinn (og blálitaði flöturinn) mun á hæsta og lægsta þrýstingi þessa sömu daga. Illviðrið þann 4. og 5. sést mjög vel, þrýstimunur varð mestur rétt eftir miðnætti að kvöldi þess. 4. Eftir það fór þrýstingur austanlands að stíga hratt og það dró úr veðrinu. 

Næsta hálfan mánuð var mun skaplegra veður, dálítið hvessti reyndar af suðri og suðaustri þann 12. þegar myndarleg lægð kom að landinu. Það veður var þó ekki hálfdrættingur á við það sem á undan var gengið og það sem kom í kjölfarið. Ekki var sú lægð djúp heldur. Úrhelli olli þó vegaskemmdum í Árneshreppi og í Steinadal. 

w-blogg091022b

Hér má sjá meðalvindhraða í byggðum landsins þessa sömu daga - á klukkustundarfresti og ber lögun vindhraðaferilsins vel saman við þrýstispannarferilinn á fyrri mynd.

Slide4

Síðara veðrið bar mjög ólíkt að. Mikil hæð var við Suðvestur-Grænland laugardaginn 16. október. Alltaf varasöm staða hér á landi. Lægðardrag var þá milli Vestfjarða og Grænlands. Þetta er afskaplega sígild norðanáhlaupsstaða. Mest finnst fyrir veðrum af þessu tagi í hretum á vori og sumri, en þau eru líka slæm á öðrum árstímum. Lægðardragið dýpkar snögglega þegar komið er suður yfir Ísland og myndar lægð austurundan. Mikil kuldastroka fylgir - oft alveg norðan úr Norðuríshafi. 

Slide5

Hér má sjá háloftastöðuna þegar veðrið var hvað verst. Lægðin búin að hringa sig undan Suðausturlandi og farin að draga upp hlýtt loft austan við og þrýsta því að kuldanum yfir landinu. Þetta veður er miklu kaldara en það fyrra. 

Slide6

Vindur lagðist mjög í strengi og varð óvenjulegur sums staðar á hálendinu og á Snæfellsnesi. Á stöð Vegagerðarinnar á Hraunsmúla í Staðarsveit fóru vindhviður í meir en 60 m/s. 

Margvíslegt tjón varð í þessu veðri. Átakanlegast var þó þegar fjárhús með 600-700 sláturlömbum brann til kaldra kola á bænum Knerri í Staðarsveit. Fárviðri var á og slökkvi- og björgunarstarf nánast útilokað. Foktjón varð víðar á Snæfellsnesi sunnanverðu. Fokskemmdir urðu einnig allvíða um sunnan- og suðaustanvert landið og fjárskaðar á Héraði og á Austfjörðum. Stórt þak fauk í Vestmannaeyjum og nokkrir bílar skemmdust. Allmikið foktjón varð í Vík í Mýrdal er grjót reif upp og það fauk og skemmdi yfir tug bíla. þakplötur losnuðu af húsum og fuku. Flutningabíll með tengivagn fór á hliðina í Skaftártungu, skemmdir urðu á Höfn í Hornafirði og mikið tjón varð á búnaði vinnuflokks við jarðgangagerð í Almannaskarði. Kerra aftan í flutningabíl fauk af vegi undir Eyjafjöllum. Veðrið var talið eitt hið versta uppblástursveður um árabil. Brúin á Núpsvötnum skaddaðist vegna hvassviðris. Rúta með 45 manns fauk af vegi við Akrafjall, meiðsl voru lítil á fólki.  

Þau eru margs konar illviðrin. 


Bloggfærslur 9. október 2022

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 311
  • Sl. sólarhring: 335
  • Sl. viku: 1885
  • Frá upphafi: 2350512

Annað

  • Innlit í dag: 233
  • Innlit sl. viku: 1682
  • Gestir í dag: 219
  • IP-tölur í dag: 219

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband