Fyrstu tíu dagar októbermánaðar

Meðalhiti fyrstu 10 daga októbermánaðar er 5,9 stig í Reykjavík, -0,1 stigi neðan meðallags sömu daga árin 1991 til 2020 og -0,4 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Hitinn raðast í 13.hlýjasta sæti (af 22) á öldinni. Þessir sömu dagar voru hlýjastir árið 2002, meðalhiti þá 9,7 stig, kaldastir voru þeir 2009, meðalhiti 2,6 stig. Á langa listanum er hitinn nú í 67. sæti (af 149). Hlýjastir voru dagarnir tíu árið 1959, meðalhiti 11,0 stig, en kaldast var 1981, meðalhiti aðeins +0,1 stig.
 
Á Akureyri er meðalhiti fyrstu tíu daga mánaðarins 4,6 stig, -0,3 stigum neðan meðallags 1991 til 2020, og -0,8 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára.
Hitavik eru til þess að gera jöfn yfir landið. Að tiltölu hefur verið hlýjast á Vestfjörðum og við Breiðafjörð, hiti þar í 10. hlýjasta sæti aldarinnar, en annars raðast hiti í 12. til 13.
sæti.
 
Á einstökum veðurstöðvum hefur verið hlýjast að tiltölu í Kvískerjum. Þar er hiti +0,5 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Kaldast, að tiltölu, hefur verið í Flatey á Skjálfanda, hiti þar -1,9 stigum neðan tíuárameðaltalsins.
 
Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 32,4 mm og er það um það bil í meðallagi. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 118,3 mm, hátt í fjórföld meðalúrkoma og hefur úrkoma þessa sömu daga aldrei mælst meiri á Akureyri.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 29,7 í Reykjavík, heldur færri en að meðallagi. Loftþrýstingur hefur verið óvenjulágur, hefur aðeins 6 sinnum verið lægri sömu daga síðustu 200 ár, síðast 1938.
 
Þess má geta að í gær, 10.október, komst hiti hvergi í 10 stig á landinu. Hiti hefur komist í 10 stig alla daga, frá og með 13.maí. Illviðrið um helgina rétt slefaði inn á annan ofviðralista ritstjóra hungurdiska. Vindhraði varð 20 m/s eða meiri á tæplega 27 prósentum stöðva í byggð og sólarhringsmeðalvindhraði 9,9 m/s. Októbervindhraðamet voru sett á fáeinum stöðvum, þar á meðal Seyðisfirði (athugað frá 1995) og við Setur (1997), í Jökulheimum (1993), við Upptyppinga (1999) og í Papey (1997), sömuleiðis á Mývatnsöræfum (1998) og á Fagradal (1996). Í septemberillviðrinu um daginn náði hlutfallstala 20 m/s 55 prósentum og sólarhringsmeðalvindhraði var 11,7 m/s, hvort tveggja mun meira en í helgarveðrinu. 

Bloggfærslur 11. október 2022

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 97
  • Sl. sólarhring: 109
  • Sl. viku: 1846
  • Frá upphafi: 2348724

Annað

  • Innlit í dag: 87
  • Innlit sl. viku: 1617
  • Gestir í dag: 81
  • IP-tölur í dag: 81

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband