Hálfur júní

Hálfur júní. Meðalhiti hans í Reykjavík er 8,9 stig, það er -0,4 stigum neðan meðallags áranna 1991 til 2020 og -0,8 neðan meðallags sömu daga síðustu tíu árin og í 15.hlýjasta sæti (af 20) á öldinni. Hlýjastir voru sömu dagar árið 2002, meðalhiti 12,0 stig, en kaldastir voru þeir 2001, meðalhiti 7,6 stig. Á langa listanum er meðalhiti nú í 55.sæti (af 146). Á honum eru sömu dagar 2002 líka á toppnum, en kaldastir voru dagarnir 15 árið 1885, meðalhiti þá aðeins 5,8 stig.
 
 
Á Akureyri er meðalhiti dagana 15 10,4 stig, +1,5 stigum ofan meðallags 1991 til 2020 og 1,2 ofan meðallags síðustu tíu ára.
 
Að tiltölu hefur verið kaldast við Faxaflóa og á Suðurlandi, hiti raðast í 15.sæti á öldinni, en hlýjast hefur verið á Austurlandi að Glettingi og Austfjörðum, og raðast í 9.hlýjasta sæti.
 
Miðað við síðustu 10 ár hefur verið hlýjast að tiltölu á Rauðanúpi, hiti þar +1,5 stigum ofan meðallags, en kaldast í Þúfuveri, hiti -1,6 stigum neðan meðallags.
 
Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 37,2 mm og er það um 50 prósent umfram meðallag. Á Akureyri hefur úrkoma mælst 13,8 mm og er það líka yfir meðallagi.
 
Sólskinsstundir hafa til þessa mælst 83,9 í Reykjavík, um 15 stundum neðan meðallags.
 

Bloggfærslur 16. júní 2020

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 58
  • Sl. sólarhring: 309
  • Sl. viku: 1632
  • Frá upphafi: 2350259

Annað

  • Innlit í dag: 44
  • Innlit sl. viku: 1493
  • Gestir í dag: 44
  • IP-tölur í dag: 43

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband