Dálitíll kuldapollur

Á mánudag og ţriđjudag brýst dálítill kuldapollur úr norđri til suđurs í gegnum hćđarhrygginn sem veriđ hefur fyrir norđan land. Hann fer yfir landiđ á ţriđjudag. Viđ ţetta verđur breyting á stöđugleika loftsins yfir landinu og skúrir verđa líklegri inn til landsins. Fyrst kólnar meira í efri hluta veđrahvolfs heldur en neđar - loft verđur viđ ţađ mjög óstöđugt, en síđan streymir kaldara loft í neđri lögum undir ţađ loft sem fyrst er á ferđinni og stöđugleiki vex ađ nýju - auk ţess sem norđanáttin verđur ákveđnari.

w-blogg160619b

Kortiđ sýnir stöđuna í 500 hPa (rúmlega 5 km hćđ) síđdegis á ţriđjudag. Ţá er miđja kuldapollsins komin suđur fyrir land. Örin sýnir braut hans gróflega. 

Ţađ er líklega nokkuđ tilviljanakennt hvar skúrir verđa miklar - og ákefđin er sömuleiđis mjög tilviljanakennd. Séu tölvureikningar teknir bókstaflega eru líkurnar mestar viđ hálendisbrúnina um landiđ sunnanvert - háupplausnarspárnar nefna líkur á hagli - og ţar međ ţrumum og eldingum á ţeim slóđum. Ţađ er tilhneiging hjá líkönunum ađ ofmeta mestu skúraákefđina - enda má smá mjög stórar tölur - sú hćsta sem ritstjóri hungurdiska sér á korti úr síđustu spárunu harmonie-líkansins er 32,1 mm/klst sunnan Langjökuls síđdegis á morgun mánudag 17.júní - satt best ađ segja nokkuđ ýkjukennd tala. Rigningarákefđ sem ţessi er hćttuleg bćđi á byggđum bólum og í nágrenni lćkjarfarvega í fjalllendi. Hćsta tala sem sést í danska igb-líkaninu er 18,7 mm/klst á svipuđum slóđum og um svipađ leyti. 

Daginn eftir (ţriđjudag) er ađstreymi kulda úr norđri í neđri lögum orđin ţađ mikill ađ sólin hefur ekki viđ ađ hita nćgilega til ađ loftiđ komist í veltu. 

Ađ sögn líkana mun taka nokkra daga ađ hreinsa kuldann burt af svćđinu í til ţess ađ gera meinlitlu veđri. 


Fyrri hluti júnímánađar

Ţá er ţađ fyrri helmingur júní - auđvitađ merkastur fyrir sólskinsstundafjöldann suđvestanlands. En međalhiti fyrstu 15 daga mánađarins í Reykjavík er 10,0 stig, +1,4 stigum ofan međallags sömu daga árin 1961-1990 og +0,3 stigum ofan međallags síđustu tíu ára. Međalhitinn er í 11.hlýjasta sćti sömu daga (af 19) á öldinni. Ţeir voru hlýjastir 2002, međalhiti +12,0 stig, en kaldastir 2001, međalhiti ţá 7,6 stig. Á langa listanum er međalhitinn í 17. sćti (af 145), á honum er ţađ líka 2002 sem er í efsta sćtinu, en 1885 í ţví neđsta. Međalhiti dagana 15 var ţá ađeins 5,8 stig.

Mun kaldara hefur veriđ fyrir norđan, međalhiti dagana 15 á Akureyri er 7,8 stig, -1,1 stigi neđan 1961-1990 međaltalsins, en -1,5 neđan međallags síđustu tíu ára.

Á landsvísu er hiti ofan međallags síđustu 10 ára á um ţađ bil fimmtungi stöđva, jákvćđa vikiđ er mest viđ Setur og Ölkelduháls, +1,1 stig ofan međallags, en neikvćtt vik er mest á Gagnheiđi, -3,0 stig.

Úrkoma í Reykjavík hefur ađeins mćlst 2,7 mm, ţađ nćstminnsta í fyrri hluta júní á öldinni, enn ţurrara var 2012 og vitađ er um 7 ţurrari júníbyrjanir áđur, ţurrasta 1971, en ţá höfđu ađeins 0,2 mm mćlst ţann 15.

Í fyrri hluta júní hafa 209,2 sólskinsstundir mćlst í Reykjavík, rúmlega 30 stundum meira en mest áđur sömu daga, ţađ var 1998. Í fyrra mćldust ađeins 30,4 stundir sömu daga.

Viđbót:

Hér ađ neđan má sjá vik fyrri hluta júnímánađar á einstökum spásvćđum gagnvart međalhita sömu daga síđustu tíu árin.

w-blogg160619

Hiti hefur veriđ viđ međallag viđ Faxaflóa og rétt ofan ţess á Suđurlandi. Annars hefur hiti veriđ neđan međallags, mest á Austurlandi (ađ Glettingi). Ţar og á Norđurlandi eystra er tímabiliđ ţađ fjórđakaldasta á öldinni - reyndar munar ekki miklu á hitanum nú og á ţeim ţrem tímabilum sem kaldari reiknast. Talsvert kaldari fyrrihlutar júnímánađar finnast eystra sé leitađ lengra aftur, t.d. 1981, 1975 og 1973. 

Ţegar horft er á vikatölur ćtti ađ hafa í huga ađ júnímánuđir hafa í langtímasamhengi veriđ sérlega hlýir á ţessari öld. Má rifja upp gamlan pistil á hungurdiskum ţar um: Júníţrepiđ mikla, sem birtist 16.júní í fyrra. Ţó hiti í Reykjavík sé nú ađeins í međallagi aldarinnar (og í 11 sćti) er hann samt í 17. sćti 145 ára - eins og nefnt var hér ađ ofan. Ţađ ţýđir ađ fyrri hluti júní var hlýrri en nú ađeins 6 sinnum fyrir aldamót. 


Bloggfćrslur 16. júní 2019

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 337
  • Sl. sólarhring: 353
  • Sl. viku: 1911
  • Frá upphafi: 2350538

Annađ

  • Innlit í dag: 255
  • Innlit sl. viku: 1704
  • Gestir í dag: 241
  • IP-tölur í dag: 241

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband