Snjór í Reykjavík - árstíðasveifla

Hér er litið á árstíðasveiflu snjóhulu í Reykjavík. Ritstjórinn hefði e.t.v. átt að bíða með þá umfjöllun í tvö ár í viðbót því þá verða 100 ár frá því að snjóhula var fyrst metin og snjódýpt mæld við Veðurstofuna. En látum slag standa þó árin séu ekki „nema“ 98. Að sjálfsögðu er það svo að athugunar- og mæliraðir þessara veðurþátta geta engan veginn talist gallalausar. Gallarnir eru af ýmsu tagi, mælingarnar hafa verið framkvæmdar á mismunandi stöðum í bænum, við mismunandi mengunar- og traðkskilyrði auk þess sem reglur um mat á snjóhulu hafa ekki verið nákvæmlega þær sömu allan tímann - og eru þar að auki nægilega óljósar til þess að athugunarmenn eru ekki alveg samstíga í matinu. 

Snjóhuluröðin er þó líklega betri heldur en snjódýptarmæliröðin. Gallar þessir koma þó ekki svo mjög að sök þegar litið er á árstíðasveiflur - en kunna að skipta meira máli þegar horft er á langtímaraðir (sem við lítum á síðar).

Á tímabilinu hefur snjóhula nær allan tímann verið metin kl.9 að morgni - vor og haust verður stundum alhvítt um stund yfir blánóttina - við missum af slíku. Snjódýptin hefur lengst af verið mæld líka kl.9, en á fyrri árum var það þó ekki alltaf regla - aðrir athugunartímar sjást, bæði um hádegið og síðdegis - við skulum ekkert gera með það. 

w-blogg130319a

Myndin sýnir hlutfall alhvítra, alauðra og alhvítra+flekkóttra daga í Reykjavík - á hverjum almanaksdegi ársins. Lárétti kvarðinn nær frá 1.júlí (lengst til vinstri) og til 30.júní (lengst til hægri). Lóðrétti kvarðinn sýnir hlutfallstölu. Rauða línan segir okkur hvers stórt hlutfall hvers almanaksdags er alauður í Reykjavík, sú bláa hversu stórt hlutfall daganna er alhvítur, en græna línan leggur saman alhvíta og „flekkótta“ daga, en flekkóttir eru þeir dagar sem hvorki eru alhvítir né alauðir.

Árin nítíu og átta varð fyrst alhvítt að hausti (eða síðsumars) þann 8.september. Það var árið 1926, reyndar varð bara hvítt í rót sem heitir. Síðast að vori varð alhvítt 16.maí, en flekkótt jörð var einu sinni talin 28.maí. Við vitum af alhvítum nóttum síðar á vori (snemmsumars) en eins og nefnt var að ofan er slíkt ekki talið með.

Sá dagur ársins sem er líklegastur til að vera alhvítur í Reykjavík er 18.janúar, (55 prósent líkur), hann er síst líklegur til að vera alveg auður (ásamt 6.janúar og 27.desember). Það er að meðaltali 28.nóvember sem líkur á að dagur sé ekki alauður fara niður fyrir 50 prósent í Reykjavík og svo 23.mars sem líklegra verður að enginn snjór sé á jörðu í Reykjavík heldur en einhver snjór. Það er á tímabilinu 21.desember til 8.mars sem líklegra er að dagur sé alhvítur en alauður í Reykjavík. 

w-blogg130319b 

Síðari myndin sýnir snjódýptina. Lögð er saman snjódýpt hvers almanaksdags í Reykjavík í 98 ár. Lesa má summuna á lóðrétta kvarðanum til vinstri, og bláa ferlinum. Vegna þess að árin eru 98 getum við séð meðalsnjódýpt (sé einhver merking í henni) með því að deila í töluna með 100. Snjóasamasti dagur ársins - miðað við snjódýpt - er 18.janúar.

Rauði ferillinn sýnir hins vegar meðalsnjódýpt þeirra daga sem alhvítir eru (kvarðinn til hægri). Þá skera þeir fáu dagar sem alhvítir eru vor og haust sig nokkuð úr. Ástæðan er sú að þeir eru oftast stakir (eða því sem næst), það þarf töluverða úrkomu til að hann lifi af til mælingar, snjórinn bráðnar fljótt alveg (tekur strax upp) og hefur ekki nein áhrif á meðaltöl snjódýptar næstu daga á eftir. Á bakvið vetrarmeðaltölin eru hins vegar mjög fjölbreyttir dagar - þar er fjöldi daga með gömlum snjó sem mælist dag eftir dag - jafnvel þótt lítill sé orðinn og rýr. Gamall snjór er ekki til í Reykjavík vor og haust. 

Hæsta vetrartala rauða ferilsins fellur á 26.febrúar. 

Þessi pistill er eins konar framhald annars sem birtist hér á hungurdiskum á aðfangadag jóla 2018 og fjallaði um árstíðasveiflu snjóhulu á landinu

 


Bloggfærslur 13. mars 2019

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg120324a
  • w-blogg080324a
  • w-blogg010324c
  • w-blogg010324b
  • w-blogg010324a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 82
  • Sl. viku: 971
  • Frá upphafi: 2341345

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 889
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband