Fyrstu 10 dagar febrúar

Við gjóum augum á fyrstu 10 daga febrúarmánaðar. Meðalhiti í Reykjavík er -2,5 stig, -2,2 stigum neðan meðallags 1961-90, en -3,4 stigum neðan meðallags sömu daga síðustu tíu árin. Meðalhitinn er sá 16.hæsti á öldinni (af 19). Kaldastir voru sömu dagar 2009, meðalhiti -3,7 stig, en hlýjastir voru þeir 2017, meðalhiti 3,4 stig. Á langa 145 ára listanum er hitinn í 116.sæti. Kaldast var 1912, meðalhiti -7,9 stig, en hlýjast 1965 meðalhiti 6,0 stig.

Á Akureyri er meðalhiti fyrstu tíu daga mánaðarins -5,0 stig, -2,7 stigum neðan meðallags 1961-90, en -4,4 neðan meðallags síðustu tíu ára.

Hiti er undir meðallagi síðustu tíu ára á öllum veðurstöðvum landsins, mest -5,6 stig í Svartárkoti, en minnst -1,5 í Skaftafelli.

Úrkoma í Reykjavík hefur til þessa aðeins mælst 3,6 mm og hefur aðeins 12 sinnum mælst minni þessa sömu daga. Á Akureyri hefur hún hins vegar mælst yfir 50 mm, nærfellt þreföld meðalúrkoma.

Sólskinsstundir hafa mælst 38 í Reykjavík, og hafa aðeins 10 sinnum mælst fleiri sömu daga.


Bloggfærslur 11. febrúar 2019

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 35
  • Sl. sólarhring: 135
  • Sl. viku: 1784
  • Frá upphafi: 2348662

Annað

  • Innlit í dag: 33
  • Innlit sl. viku: 1563
  • Gestir í dag: 33
  • IP-tölur í dag: 33

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband