Umhleypingar áfram - en samt fremur vægir

Lægðir renna hjá þessa dagana hver á fætur annarri. Þær eru þó ekki mjög illkynja miðað við árstíma - þó dæmigerðar séu. 

w-blogg190118b

Kortið sýnir spá evrópureiknimiðstöðvarinnar um stöðu lægða og hæða um hádegi á sunnudag. Lægðin fyrir norðan land fer hjá á morgun, laugardag. Henni fylgir mjög skammvinnt sunnanhvassviðri og rigning - síðan lygnir nokkuð snögglega og gæti þá snjóað töluvert á stuttum tíma - loftið sem fylgir er komið frá Kanada og við tekur útsynningur - ekki mjög afgerandi þó.

Þegar líður á sunnudag nálgast svo næsta kerfi - eins og sjá má á kortinu. Þá hvessir aftur af suðri með rigningu - það stendur heldur ekki lengi og aftur tekur við éljaloft frá Kanada. 

w-blogg190118a

Hér má sjá spá um þykkt (heildregnar línur) og hita í 850 hPa fletinum á mánudag kl.6 að morgni. Þykktin er mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs - því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. Við sjáum að skil eru yfir landinu á myndinni - þykktin austanlands er um 5320 metrar - það samsvarar um 3 til 4 stiga hita í neðstu lögum (kannski meira í aflandsvindi eystra). Mikil þykktarbratti er yfir landinu - og við vesturströndina er þykktin komin niður í um 5160 metra - það dugir í -2 til -4 stiga frost - meira inn til landsins þegar vindur gengur niður - en minna þar sem sjórinn hitar baki brotnu og vindur stendur af honum.

Þessar tvær lægðir ná sum sé ekki að „skafa upp“ mjög mikið af hlýju lofti sunnan úr höfum - og ekki heldur að koma hingað verulegum kulda úr norðri. - Enn einn mjói hlýindafleygurinn á síðan að koma síðar í næstu viku - og kannski fleiri. En eins og hér var rætt fyrir nokkrum dögum eru reiknimiðstöðvar á miklu flökti og flugi með framhaldið - og varla rétt að ræða það að sinni.  


Bloggfærslur 19. janúar 2019

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 127
  • Sl. sólarhring: 272
  • Sl. viku: 1701
  • Frá upphafi: 2350328

Annað

  • Innlit í dag: 76
  • Innlit sl. viku: 1525
  • Gestir í dag: 74
  • IP-tölur í dag: 73

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband