Af dćgurmetauppskeru áriđ 2018

Ţađ sem hér fer á eftir er ađ miklu leyti endurtekiđ efni frá ţví í fyrra (9.janúar 2018) og hitteđfyrra (30.janúar 2017) og reyndar enn líka fyrir ţremur árum(21.janúar 2016) - en látum ţađ fljóta - tölur eru auđvitađ nýjar. Vćgast sagt nördalegt efni. 

Uppgjör ársins 2018 stendur yfir - í ţetta sinn er ţađ dćgurmetauppskeran. - Stöđugt veriđ ađ tala um dćgurmet í alţjóđlegum fréttum bćđi af hitabylgjum og kuldaköstum. Jafnvel eru einkennileg og harla tćknileg hugtök eins og hitabylgjuhlutfall eđa hlutfall á milli hita- og kuldameta orđin fréttnćm í skotgrafahernađi ţeim sem tengdur er veđurfarsbreytingum.

Eins og áđur sagđi er í fréttum ađ utan er oft gert talsvert úr svonefndum dćgurmetum - hćsta eđa lćgsta hita sem mćlst hefur á einhverri veđurstöđ ákveđinn dag ársins. Ein og sér segja ţessi met lítiđ - en geta samt faliđ í sér skemmtileg tíđindi. Hafi veriđ mćlt mjög lengi á stöđinni verđa ţessi tíđindi eftirtektarverđari. Svipađ má segja um mjög miklar metahrinur - daga ţegar dćgurmet falla um stóra hluta landsins.

Talning leiđir í ljós ađ alls féllu 2817 hámarksdćgurmet á almennu sjálfvirku stöđvunum hér á landi á árinu 2018 - séu ţćr stöđvar sem athugađ hafa í 5 ár eđa meira ađeins taldar međ. Lágmarksmetin urđu hins vegar 2815 - nćrri jafnmörg. Hlutfallslega (miđađ viđ fjölda stöđva) eru ţetta samtals lćgstu tölur á viđmiđunartímabilinu öllu (frá 1996). Áriđ var sum sé ekki sérlega metavćnt - hvorki til kulda né hita. Hármarksmetin voru fćrri 2015, en ţá voru lágmarksmet hins vegar fleiri en oftast áđur.

Hlutfall hámarks- og lágmarksmeta er mjög breytilegt frá ári til árs og hlýtur ađ segja okkur eitthvađ? Meir en 62 ţúsund dćgurmet hvorrar tegundar eru skráđ alls á tímabilinu frá 1996 til 2018 - 

Lítum nú á línurit sem sýnir hlutfall hámarksdćgurmeta af heildinni frá ári til árs.

w-blogg170119b

Ađeins ţarf ađ doka viđ til ađ skilja myndina - lárétti ásinn sýnir ár tímabilsins. Lóđrétti ásinn til hćgri sýnir landsmeđalhita, ţađ gerir rauđstrikađa línan einnig. Hlýjust eru árin 2003, 2014 og 2016, en 2015 var hins vegar ámóta kalt og árin fyrir aldamót. Áriđ 2018 er í miđjum hóp, međalhiti stöđvanna var 4,5 stig.

Lóđrétti ásinn til vinstri sýnir hlut hámarksdćgurmeta af summu útgildametanna (hámarks og lágmarks). Hlutur lágmarksmetanna fćst međ ţví ađ draga frá einum.

Viđ sjáum ađ allgott samband er á milli hámarksmetahlutarins og landsmeđalhitans. Hámarkshitametin eru líklega fleiri ţegar almennt er hlýtt í veđri.

Eftir ţví sem árunum fjölgar verđur erfiđara ađ slá metin 62 ţúsund. Ţrátt fyrir ţađ er á ţennan hátt hćgt ađ fylgjast međ veđurfarsbreytingum. Skyndileg breyting á veđurlagi á hvorn veg sem er - nú eđa í átt til öfga á báđa bóga kćmi fram viđ samanburđ viđ hegđan metanna síđastliđin 23 ár. - En ţví nenna nú fáir nema útnörd - eins og ritstjóri hungurdiska - varla ađ slíkt eftirlit verđi í forgangi hjá ţví opinbera (ţrátt fyrir tal um veđurfarsbreytingar).

Viđ skulum líka líta á línurit sem sýnir samband hámarksmetahlutarins og landsmeđalhitans.

w-blogg170119a 

Lárétti ásinn markar hámarksmetahlutinn, en sá lóđrétti međalhitann. Punktadreifin rađast vel og reglulega í kringum beina línu - ţví fleiri sem hámarkshitametin eru miđađ viđ ţau köldu, ţví hlýrra er áriđ. Fylgnistuđull er 0,92, nánast hćgt ađ mćla landsmeđalhitann međ ţví ađ reikna hlutfalliđ. En viđ skulum ekki venja okkur á ađ líta alveg hugsunarlaust á dreifirit sem ţetta - athugum t.d. ađ hlutur hámarksmeta getur ekki orđiđ hćrri en 1,0. Skyldi áriđ ţegar landsmeđalhiti nćr 6,14 stigum verđa algjörlega lágmarksmetalaust? - eđa áriđ ţegar landsmeđalhitinn fellur niđur í 2,7 stig - skyldu ţá nákvćmlega engin hámarkshitamet verđa sett?

Viđ ţurfum ekki ađ fara lengra aftur í tímann en til 1983 til ađ finna lćgri landsmeđalhita en 2,7 stig - og áriđ 1979 var hann ekki nema 1,8 stig. - Ţađ var ábyggilega ekki mikiđ um hámarkshitamet ţessi ár. - En ţau eru samt til og standa enn á ţeim fáu stöđvum sem athugađ hafa allan tímann. Sé eingöngu miđađ viđ ţćr stöđvar er hámarksmetahlutur ársins 1979 0,05, en 0,14 áriđ 1983. Bćđi árin lenda langt neđan viđ ţau sem viđ sjáum á línuritinu - viđ ţyrftum ađ breyta rammanum stórlega til ađ koma ţeim fyrir. 

En fleira nördalegt kemur fram í metaskránum. Hvađa daga féllu flest dćgurmet? Svariđ sem gefiđ var í fyrra hefur breyst - hvađ hámarksmet varđar. Ţá var jóladagur 2005 á toppnum, hann átti 90 prósent hámarksmeta stöđvanna - en nýliđinn jóladagur, 2018, var nćgilega hlýr til ţess ađ stela metum fjölmargra stöđva - viđ ţađ féll jóladagur 2005 niđur af topp-10. 

Nú eru tveir samliggjandi dagar, 25. og 26.febrúar 2013 á toppnum. Ţeir eiga 87 prósent af dćgurmetum ţessara daga. Viđ getum rifjađ upp hvađ hungurdiskar sögđu á sínum tíma (26.febrúar 2013): 

„Óvenjuleg hlýindi gengu yfir landiđ í dag (mánudag) og standa ţau fram eftir ţriđjudegi um landiđ austanvert og ţví ekki útséđ međ áframhaldandi met. Ţví met féllu, m.a. hefur hiti aldrei áđur orđiđ jafnhár í febrúar í Reykjavík. Kemur ţađ met ofan í janúarmetiđ á sama stađ. Merk tíđindi. - Nýtt dćgurmet fyrir landiđ var einnig sett í dag (15,3°C á Seyđisfirđi) - en talsvert vantađi upp á ađ landsmet febrúarmánađar (18,1 stig) vćri slegiđ. Ţađ er líka óvenjulegt ađ hvergi var frost á veđurstöđ á landinu í dag - ekki einu sinni á Gagnheiđi eđa Brúarjökli“.

En enn er sami dagur á toppi lágmarksmetalistans, 30.apríl 2013, hirđir 96 prósent dćgurmeta ţess dags stöđvanna - hlutfallstalan var 94 prósent í pistlinum í fyrra - en eftir ţađ bćttust viđ stöđvar inn á fimmta ár og urđu ţarmeđ mettćkar - og hćkkuđu hlutfalliđ. Um ţetta merkilega kuldakast fjölluđu hungurdiskar - dögum saman - ţví kuldinn hélst í marga daga. Auđvelt er ađ fletta ţessum fróđleik upp - hafi einhver ţrek til. 


Bloggfćrslur 17. janúar 2019

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 102
  • Sl. sólarhring: 268
  • Sl. viku: 1676
  • Frá upphafi: 2350303

Annađ

  • Innlit í dag: 64
  • Innlit sl. viku: 1513
  • Gestir í dag: 63
  • IP-tölur í dag: 62

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband