Af árinu 1887

Harðindin héldu áfram árið 1887. Þó var almennt betur látið af tíð heldur en árin á undan, sérstaklega um landið sunnanvert. Slæm hret voru mörg, en skárra á milli. Hafís var mikill og var við land allt sumarið á enda - og sneri svo aftur strax í desember. 

Enginn mánuður ársins var hlýr, þrír nærri meðallagi. Það voru janúar, febrúar og júní. Mjög kalt var í júlí, nóvember og desember. Aðrir mánuðir voru kaldir. Mesta frost ársins mældist í Möðrudal þann 10.desember, -28,2 stig, en hæsti hámarkshiti 25,4 stig á Teigarhorni 25.júní. Sumarfrost fylgdi hafísnum sums staðar við strendur landsins. Til dæmis var -3,0 stiga frost í Grímsey þann 4.júlí og -4,6 stiga frost mældist á Raufarhöfn 23.ágúst. Í Papey mældist frostið -0,8 stig þann 13.ágúst. 

ar_1887t

Meðalhiti ársins í Reykjavík reiknast 2,6 stig, en 2,4 stig í Stykkishólmi. 

Myndin sýnir hámarks- og lágmarkshita hvers dags í Reykjavík 1887 (fáeina daga vantar). Vetur og vor einkennist af miklum sveiflum og tvö síðbúin kuldaköst sérlega áberandi. Það fyrra kennt við sumarmálin. Laugardaginn 23.apríl var hámarkshiti í Reykjavík -8,0 stig og nóttina eftir mældist frostið -12,5 stig. 

Nærri mánuði síðar gerði annað slæmt hret. Frost fór þá í -5,6 stig í Reykjavík (18.maí) og komst í -6 stig í Vestmannaeyjum. Hret þetta var lengi í minnum haft og kennt við uppstigningardag 19.maí. 

Mjög kalt var um sumarið, ekki síst upp úr 20.júlí. Meðalhiti í Reykjavík þann 24. var aðeins 4,9 stig. Enn standa tíu dægurlágmarksmet í Reykjavík frá árinu 1887 og 8 á Akureyri. Ritstjóri hungurdiska telur 27 mjög kalda daga á árinu í Reykjavík en engan hlýjan. Í Stykkishólmi telur hann 31 mjög kaldan dag. Í viðhenginu má sjá lista yfir þessa daga. 

Úrkoma var mjög mikil í Reykjavík, mældist 1107 mm, en á sunnanverðum Austfjörðum var þurrt. Úrkoman á Teigarhorni mældist ekki nema 572 mm. 

Lægsti loftþrýstingur ársins mældist í Vestmannaeyjum 17.janúar, 954,3 hPa, en hæstur 1048,1 hPa þann 10.mars í Stykkishólmi. 

Ekki er mikið um fréttir af foki þó umhleypingar hafi verið miklir. 

Hér á eftir er stiklað á veðurtíðindum ársins eins og fjallað var um þau í blöðunum. Að vanda er stafsetning færð til nútímahorfs (að mestu). Ekki er nema hluti sjóslysa tíundaður - heldur fleiri eru nefnd í atburðaskrá í viðhenginu. Þar má einnig finna meðalhita einstakra mánaða á veðurstöðvunum, upplýsingar um úrkomu og sitthvað fleira. 

Í Fréttum frá Íslandi má lesa um almennt árferði 1887: 

Veðrátta var um veturinn óstöðug, nokkuð snjóasöm, með hryðjum og stormum; þó ekki frosthart ... ; jarðleysur héldust þó víða lengi, svo sem í Dölum og í Múlasýslum, en um miðþorra gerði góða veðráttu um tíma um land allt. Fyrri hluti mars var stormasamur með hryðjum og því hagleysum; síðan brá til hægviðra; en um páska komu aftur hríðir með frosti og um fyrstu sumarvikuna var hart kast: norðanbál og frost í mesta lagi ... . Úr því stóð fremur hagstæð veðrátta til 17. og 18. maí: uppstigningardagskastið; þá var frostmikið og snjóburður um land allt, þó vægast austanlands; fennti sauðfé og jafnvel hesta, og fé hrakti til bana í ár og vötn, einkum þar sem því hafði verið sleppt, t.a m. í Þingeyjarsýslum og sumstaðar í Húnavatnssýslu.

Í júní var og kalsaveðrátta og vætusamt mjög, einkum seinni hlutann; hafði hafís rekið að Norðurlandi um sumarmál; hélst hann þar á reki inn og út fram yfir höfuðdag, og við Austurland kom hann í maí-byrjun og var oft landfastur um sumarið; komst hann vestur á móts við Kúðafljótsós seint í ágúst; í október og nóvember var þó talið íslaust hér við land eins og vant er; en í desember varð hans aftur vart við Horn og Skaga. Þó var yfir höfuð góð sumarveðrátta og framúrskarandi góð um Suðurland og Austurland; en annarstaðar nokkrar svækjur og molla, enn þó furðanlega og jafnvel fádæma hlýtt veður og þurrt, enda áttin sjaldan af norðri; þó vóru nokkur næturfrost nyrðra, er á leið sumarið.

Í sept. (9.) gerði hríðarkast nyrðra og jafnframt eftir miðjan mánuðinn ákafar rigningar víða um land, nema austanlands, svo að menn misstu mörg hundruð heyhesta í flóðum; um mánaðarlokin (27.-28.) varð snjókoma svo mikil nyrðra, t.d. í Þingeyjarsýslu, að fé fennti víða, en vatnagangur varð svo mikill, einkum í Eyjafirði, Skagafirði og Húnavatnssýslu, að óminnilegur þótti; féllu þar skriður svo undrum sætti og tók af vegi (t. d. mikið af hinum nýja póstvegi yfir Öxnadalsheiði og víðar) og fjöldamargar jarðir skemmdust að meiru og minna leyti í Eyjafirði (t.d. í Svarfaðardal að sögn 17 jarðir) og í Skagafirði; hljóp ómuna-flóð í Héraðsvötnin; skriður féllu þar og stórkostlega, einkum í Heiðardal, og eins austantil í Húnavatnssýslu. Sumstaðar tóku skriður þessar af hús, fénaðarhús og urðu skepnum að bana.

Haustið var upp frá því gott víðast um land: stillur, frost og fannkoma lítil, og stóð sú tíð að mestu fram til ársloka; þó var frosthart nyrðra ... og óstöðug veðrátta (einkum fyrri hluta desember) með snjóburði, enn skánaði seinni hluta mánaðarins.

Eldgos þóttust menn verða varir víð úr Vatnajökli síðari hluta sumars, enn engin brögð urðu þó að því. Jarðskjálfta varð aftur vart við að mun; fyrst 27. febr. í Reykjavík, þó linan kipp einn; enn 23. okt. varð jarðskjálfta vart víða um land; urðu einkum mörk að honum á Reykjanesi. Í Valahnjúk, sem vitinn stendur á, komu 3 eða fleiri sprungur fáar álnir frá vitanum og hrundi nokkuð framan úr, og 9 glös í vitanum sprungu áður enn slökkt varð. 13. nóv. varð aftur vart jarðskjálfta þar og skömmu síðar hrundi 7 faðma langt stykki framan úr hnjúknum örskammt frá vitanum.

Grasvöxtur var almennt talinn í betra lagi og ágætur sunnanlands og nýting varð góð yfir höfuð; enn hey drap mjög, einkum norðanlands, í haustrigningunum og lá við skemmdum og brann sumstaðar, enda nokkuð djarflega hirt að venju í upphafi. Eldiviður náðist seint sökum júní-rigninganna og fiski hélt þá við skemmdum. Skepnuhöld urðu hin verstu norðanlands og vestan, svo að jafnað var til ársins 1882; olli því mestmegnis heyafli hins liðna árs, er bæði var lítill, enn reyndist þar á ofan afarilla að gæðum: heyin bæði skemmd, óholl og létt, og heyásetning afardjörf allvíða, eins og vant er ...

Janúar: Hagleysur og tíð stirð. Mikil útsynningshryðja með mikilli snjókomu sunnan- og vestanlands síðustu vikuna.

Jónas Jónassen segir frá snjó og/eða útsynningum í janúarpistlum:

[12.] Umliðna viku hefir mátt heita mesta stilling á veðri, oftast verið við hæga austanátt hér, þótt útsynningur hafi verið undir; við og við hefir snjóað talsvert, svo hér er nú eigi alllítill snjór á jörðu.  

[19.] Umliðna viku hefir oftast verið útsynningur með byljum, oft bjartur á milli; stundum hér brugðið fyrir slyddubyl og rigningarskúrum. Kl. 9 1/2  á föstudaginn (14.) heyrðist ein þruma langt í burtu. Í dag (18.) hægð á veðri, útsynningur, bjartur. Snjór hér æði mikill. 

[26.] Alla vikuna hefir verið útsynningur, stundum hvass með svörtum éljum; kveldið 22. gekk til landsuðurs með talsverðri rigningu; síðan hefir verið mátt heita logn hér og fagurt veður; útsynningur hefir einlægt verið til hafsins; brimað hefir fremur lítið. 

[2.febrúar] Alla vikuna hefir verið útsynningur oftast hvass og oft með blindbyl frá morgni til kvelds t.a.m. h. 29. Þann 31. gekk hann til útnorðurs hvass um tíma, lygndi að kveldi, og í dag er hér hæg austanátt, en útsynningur er undir.

Fróði segir þann 22. frá miklum mannskaða sem varð þann 3.:

Manntjón ákaflegt varð á Skagaströnd 3. þ.m., fórust þar 5 bátar í fiskiróðri með 27 manns.

Ívið nánar er sagt frá slysinu í Þjóðviljanum þann 23.mars:

Hinu 3. janúar síðastliðinn var róið 7 skipum til fiskjar af Skagaströnd í góðu veðri, en öndverðlega dags skall hann á með ákaflega mikinn hríðarbyl. Einn formaðurinn, er fyrst hafði var að fara í land, er veðrið skall á, og komst klakklaust af. Annar náði við illan leik innarlega á ströndinni, en 5 skipin fórust og allir menn á. Eitt skipið rak á í Þingeyrarsandi, en 4 á Vatnsnesi. Ekki hefur heyrst, að nein líkin hafi rekið. Alls fórust 24 menn, allir úr Hofs- og Spákonufellssóknum er misstu þannig fjórða hluta verkfærra manna og voru þeir nær því allir hinir vöskustu til sjósóknar, og á besta aldri. Tveir voru vart tvítugir; 10 milli tvítugs og þrítugs; 12 yfir þrítugt. Við þennan atburð urðu 9 ekkjur, 25 börn í ómegð eða föðurlaus, og eigi allfátt aldraðra og heilsuhniginna feðra og mæðra misstu þar helstu og enda einustu lífsstoð sína. Allar horfur eru á að félagið beri alllengi menjar þessa stórkostlega manntjóns.

Þjóðviljinn á Ísafirði segir stuttlega þann 17.:

Veðurfar hefir verið umhleypingasamt frá nýjári; oftast frostlítið á suðvestan.

Þann 26. varð mikill skipskaði í Bolungarvík. Þjóðviljinn segir frá honum þann 10.febrúar (nokkuð stytt hér):

Þennan dag var gott veður um morgun, og reri almenningur. Um miðjan dag skall á ofsaveður af suðaustri. Þeir, sem þá voru ekki lentir, gátu náð upp undir Stigahlíð; en með því að þá var veðrið orðið svo mikið, að eigi var auðið að ná lendingu á Mölunum, lögðust þeir undir hlíðinni. Um nóttina slitnuðu þeir upp Hávarður Sigurðsson og Hreggviður Þórleigsson [?]; ætlaði Hávarður þá að hleypa út með hlíðinni þangað, sem heldur var hlés von; en í þeim svifum kom rokspilda svo hörð, að skipinu nær því venti; fyllti það af sjó, og tók út alla skipshöfnina; Hávarður náði þó aftur i skipið, og með því að veðrið heldur stóð á land, rak skipið hálf fullt upp litlu utar; gat Hávarður bjargað sér undan sjó, og lét fyrirberast þar á hlíðinni um nóttina og var mjög máttfarinn er menn komu honum til bjargar morguninn eftir, með því líka hann hafði meitt sig i fæti. [5 skipverjar drukknuðu].

Þegar skip Hreggviðar slitnaði upp, varð hann að hleypa því þar beint upp, en er skipið kenndi grunns í stórgrýtinu, sem þar er hvervetna undir hlíðinni, losnuðu hásetar hans allir við það sökum brimsins, en Hreggviði skolaði upp á skipbrotinu; hélt hann þegar inn á Malir um nóttina. Og gegnir það rétt furðu, að hann skyldi komast það, sem er alllangur vegur. [3 skipverjar drukknuðu]  Bæði skipin brotnuðu í spón. Hreggviður var formaður fyrir Teit gestgjafa Jónsson á Ísafirði, en Hávarður átti sjálfur skip sitt; má telja, að hann hafi hér misst nær því aleigu sína; hann er bláfátækur barnamaður, er lítið sem ekkert annað hefir haft við að styðjast en sjóinn, er hann hefir sótt með mesta dugnaði.

Þjóðviljinn birtir 10.febrúar bréf úr Dýrafirði dagsett 29.janúar:

Í byrjun janúar tók svo fyrir jörð, að alveg hefir verið jarðlaust síðan á bestu útigangsjörðum, og haldist svo lengi, verða margir í nauðum með skepnur sinar. Líka eru skemmdir almennt á heyjum eftir stórrigningarnar í sumar og haust, einkum í hlöðum, en þó verða útnesjabændurnir verst staddir, því að þeir byggðu upp á útiganginn.

Ísafold segir frá þann 2.febrúar:

Það er að heyra stirt allstaðar, ákaflega snjóasamt; hér syðra sífelldir útsynningar; gæftalaust á sjó.

Bréf úr Gilsfirði dagsett 3.febrúar og birtist í Ísafold þann 23. segir:

Svellgaddur um allt Vesturland, svo hvergi fær tittlingur í nef sitt, og hvervetna standa öll hross við stall. Illt útlit með heybyrgðir, því hey voru lítil og víða stórskemmd.

Febrúar: Góð hláka um tíma, en annars óstöðug og snjóasöm tíð - betra eystra.

Jónas Jónassen lýsir stöðugum umhleypingum í febrúar (lítillega stytt):

[9.] Fyrstu daga vikunnar var hér norðanátt, hvass til djúpa, en síðan hefir verið stöðugur útsynningur með byljum; snöggvast hefir brugðið til landnorðurs með rigningu; þannig var landsunnanrok seinni part dags h. 6., en allt í einu gekk hann til útsuðurs með slyddubyl. Í dag 8. var hér logn og besta veður í morgun, en rétt eftir hádegi rauk hann allt í einu á S og SV. Yfir höfuð fjarskaleg óstilling á veðri alla vikuna og enn þá. 

[16.] Alla umliðna viku hefir verið sunnanátt, oftast landsynningur með talsverðri rigningu, stundum rokhvass með köflum t.a.m. seinni part dags h.14. Sá mikli snjór, sem kominn var hér, var í gær (14.) alveg horfinn og jörð auð, að eins einstöku skaflar eftir. Í nótt (aðfaranótt h.15.) hefir stirðnað og fallið lítið föl á jörðu. Í dag hægur suðvestankaldi að morgni, bjart veður; Hvessti allt í einu eftir hádegi á SV með blindbyl um tíma.

[23.] Óstilling hefir verið talsverð á veðri þessa vikuna; fyrsta daginn var útsynningur með éljagangi; daginn eftir logn og fagurt veður, gekk svo til landssuðurs með regni tvo næstu dagana, svo aftur í útsuðrið h.20., en þann dag gekk hann upp úr logni með ofanhríð allt í einu um hádegi (20.) til norðurs, nokkuð hvass allan daginn, en komið logn um kvöldið; 21. landnorðan bjartur að morgni, síðan með blindöskubyl til kvölds, að hann lygndi og gekk til háausturs. Í dag 22. norðan, nokkuð hvass í morgun með skafrenningi, síðan lygn og dimmur, um og eftir hádegi.

[2.mars] Veðurátt hefir þessa viku verið mjög óstöðug og snúist úr einni átt í aðra, mjög hvass með köflum; hinn 23. var hér hvasst norðanveður að morgni, en landnorðan að kveldi og sami landnyrðingur daginn eftir (24.), mjög hvass um tíma fyrri part dags; gekk svo til útsuðurs, svo í austur með bleytubyl um tíma og að kveldi h.25. til landsuðurs með regni; h. 26. rokhvass hér á hásunnan um og eftir hádegi, gekk aftur til útsuðurs, og 27. logn hér og fagurt veður; 28. hægur á austan, þar til seint um kvöldið, að hann allt í einu gekk til útsuðurs, hvass með éljum. Í dag 1. mars hvass á landsunnan með regni.

Þjóðólfur birti þann 18. bréf undan Eyjafjöllum dagsett þann 8.:

Hér hefur orðið sú nýlunda, að Markárfljót [svo] hefur í vetur farið úr farvegi sínum, runnið austur með fjöllunum yfir meginhluta flatlendisins undir Út-fjöllunum, svo frá Markárfljótsfarveginum og austur að Rimhúsál má heita ein íshella, sem allt af er að aukast, og engin líkindi til að hana leysi fyrr en í sumar, hve góð tíð sem verður. Menn eru hér vegna þessa í vandræðum með útifénað sinn, svo að sumstaðar hefur sauðfé verið tekið inn í bæjarhús.

Bréf af Snæfellsnesi dagsett 9.febrúar birtist í Ísafold þann 2.mars:

Héðan er fátt að frétta nema minnisstæð illviðri nú um langan tíma.

Þjóðólfur segir frá hlákum í frétt þann 18.:

Fyrir réttri viku gerði góða hláku, sem stóð í nokkra daga. Komu þá upp góðir hagar að minnsta kosti í öllum lágsveitum hér syðra.

Austri talar vel um tíð á Austurlandi þann 28.febrúar:

Síðan um nýárið hefur mátt heita einmunatíð, einkum á þorranum, því að þann mánuð hafa oft verið vorblíður og hiti bæði nótt og dag, má því heita að öríst sé orðið í sumum sveitum, t.a m. Fljótsdal, Skógum, Völlum og Framfellum og jafnvel víðar, og um allar sveitir austanlands nægir hagar fyrir útigangspening.

Mars: Nokkuð hryðju- og snjóasamt.

Jónas Jónassen lýsir áfram miklum umhleypingum í marsmánuði:

[9.] Eins og undanfarnar vikur hefir veðurátt verið mjög óstöðug þessa vikuna, snúist úr einni átt í aðra á sama dægri; h.2. var hér dimmviðri mikið og þoka, daginn eftir (3.) gekk hann snemma morguns allt í einu til útsuðurs og var á þeirri átt allan þann dag; daginn eftir komin austanátt, hvass, svo aftur til útsuðurs með éljagangi, svo logn og í dag 8. norðangola og bjart veður með talsverðu frosti.

[16.] Fyrstu daga þessarar viku var hér norðanátt, hvass til djúpa, en oftast hægur hér; seinni part h.10. gekk hann ofan og gjörði logn, sem hefir haldist síðan, oftast bjart og fagurt sólskin. Loftþyngdarmælir hefir alla vikuna staðið óvenjulega hátt, og 10. var rétt að því komið, að hann kæmist ekki hærra, og hefir þetta ekki að borið síðan 1883. Það ár komst mælirinn um sama leyti í marsmánuði eins hátt og hægt var og þá var hér alveg sama veðrið og þessa vikuna. Í dag 15. hægur á suðvestan, dimmur og snjór í lofti; loftþyngdarmælir fer ofurhægt lækkandi.

[23.] Mikil ókyrrð hefur verið á veðri umliðna viku; fyrsta daginn hægur útsynningur með brimhroða miklum; gekk svo til norðurs, bálhvass til djúpa daginn eftir (h.17.) og næsta dag var hér austanstórviðri með blindbyl allan síðari part dags; gekk svo til útsuðurs með hroða all-hvass, lygndi og gekk aftur í norður nokkra stund, hvass mjög til djúpa, en að kveldi sama dags (20.) var aftur komin austanátt og farið að rigna; hefur síðan verið við landsuður og gjörði hér mikla rigningu h.21., svo mestallur snjór, sem var talsverður eftir bylinn h.18. og eins 20. er horfinn aftur. Í dag (22.) hæg austanátt, bjart veður fyrir hádegi.

Ísafold birtir 6.apríl tvö tíðarbréf: „Úr Suður-Múlasýslu 4.[mars]. Héðan er ekkert að frétta annað en að veturinn hefir mátt heita góður — þó voru 6 vikna hagbönn eftir nýárið —, en besta tíð síðan batnaði og fjárhöld víðast góð“ og úr Austur-Skaftafellssýslu dagsett 9.mars: „Hér var nokkuð harður vetur framan af sökum umhleypinga og áfreða, sem ollu hagleysum; en síðan í miðþorra hefir verið góð tíð og nógir hagar.

Þjóðólfur segir þann 19.mars:

Tíðarfar hefur yfir höfuð verið heldur óstillt sunnanlands, þar til fyrir skömmu, að hægviðri gjörði, en nú er aftur komin óstilling á veðrið. Hagar sunnanlands góðir. Svipað tíðarfar að frétta víðast hvar af landinu. Hagar norðanlands góðir, nema fram til heiða og upp til fjalla víða jarðlaust. Vestanlands sögð verri tíð og sums staðar haglítið eða haglaust, einkum í Dölum. Hey reynast yfir höfuð mjög slæm norðan- og vestanlands, og heybirgðir mjög litlar.

Fróði segir þann 19.:

Úr Kelduhverfi er oss skrifað í þessum mánuði: „ Það er eftirtektavert, að Jökulsá í Axarfirði minnkaði um jólaleytið í vetur; yfirborð hennar er hér um bil 3 kvartilum neðar en áður. Hún hefir breytti sér svona á mjög stuttum tíma og hefir ekkert vaxið aftur.

Bréf úr Miðfirði dagsett 30.mars birtist í Ísafold 13.apríl:

Þrátt fyrir æskilegustu tíð, er var frá því seint á þorra var almenningur í góulok kominn að þrotum með hey víðast, þar sem ekki höfðu komið upp nægar jarðir snemma á góu, svo að þrátt fyrir batann og nægar jarðir víðast nú sem stendur eru menn þó í voða með fénað sinn, ef vor verður óhagstætt. Heyin voru lítil, og það sem út yfir tók víðast illa verkuð.  ... ástandið í Strandasýslu er voðalega bágborið, og því er miður, að það er nauðavíða allt annað en glæsilegt, enda hefir það ég man aldrei verið annar eins Ameríkuþytur í fólki og einmitt nú.

Og annað bréf í sama blaði dagsett 28.mars í Ásum í Húnavatnssýslu:

Undanfarna tvo daga hefir verið þíða, tók þó eigi mjög mikið upp; aftur frysti og snjóaði í nótt, og nú er suðaustan rosa-veður.  Víða er farið að bóla á heyleysi t. d. norðan til í Vindhælishreppi, á Laxárdal, í Engihlíðarhreppi, á nokkrum bæjum í Svínavatnshreppi og Þverárhreppi. þess utan hjá einstökum mönnum í hinum öðrum sveitum sýslunnar. Viða er ennþá jarðlaust og mjög jarðlítið.

Heldur skárra var í Eyjafirði - (sama blað):

Veturinn hefir mátt heita fremur góður, þegar á allt er litið; en mjög hefir hann verið skakviðrasamur, og í sumum sveitum voru algjörðar innistöður frá því með jólaföstubyrjun og langt fram á þorra. Ég er hræddur um, að margir hafi beitt sér til ógagns framan af vetrinum og fé sé því fremur magurt. Sjaldan hefi ég heyrt meiri kvörtun um heybirgðir heldur en nú, einkum fyrir kýr; segja margir, að þeir muni ekkert hafa handa þeim lengur en til sumarmála. Mjög er og um það kvartað, að hey sé ill og létt, bæði taða og úthey, og kýr hafa mjólkað mjög illa í vetur. Ekki verður neitt vart við hafís ennþá, og vonum vér, að hann sé langt í burtu, enda kemur það sér vel, að skip komi nokkuð snemma, því að lítið er orðið um ýmsa hluti í kaupstaðnum.

Apríl: Ill tíð með frostum og hríðum með köflum. Kalt.

Ísafold greinir frá tíð þann 6.apríl:

Góð tíð hér sunnanlands, nema nokkuð skakviðrasamt. Auð jörð nema fram til fjalla. Að norðan sagði sendimaður úr Skagafirði hina mestu ótíð úr Húnavatns- og Strandasýslum: hagleysur yfir allt af ákaflegum kafaldshríðum af útsuðri, og þar með heyþrot og bjargarneyð - heimili flosnuð upp í Laxárdal í Húnavatnssýslu. Í Skagafirði var þar á móti auð jörð, nema fram til dala, og sama að frétta lengra að norðan.

Ísafold 13.apríl:

Ferðamenn, sem komu norðan úr Miðfirði í gær á eftir pósti, og fóru yfir Holtavörðuheiði á  skírdag [7.apríl] í norðanbyl, láta mjög illa af ástandi þar nyrðra hvað heybjörg snertir einkanlega, mjög víða hey uppi algjörlega eða ekki nema örfárra (2—3) daga forði til, og hafa menn því ekki getað afborið hríð þá, er þar hefir verið nú um páskana.— það eru þrjár sýslurnar: Húnavatns-, Stranda- og Dalasýsla, er veturinn hefir lagst þyngst á, enda undirbúningurinn mjög bágur.

Austri birti 23.maí bréf úr Hornafirði dagsett 20.apríl:

Tíðin mátti heita fremur góð fram til jóla. En frá jólum og fram í febrúar, var tíðarfarið mjög óstöðugt, hrakviðra- og stormasamt. Um þær mundir var oft vont til haga hér í sýslunni, einkum í hálfan mánuð út úr nýárinu því að i ársbyrjun lá nokkur snjór á jörð, sem að smábleytti í og frysti síðan, svo að öll jörð varð ísi hulin; eru það einhver hin mestu svellalög sem menn muna eftir hér. Síðan í miðþorra hefur tíðin mátt kallast fremur góð, nema seinni partinn í mars dreif niður nokkurn snjó i flestum sveitum, og gjörði haglaust sumstaðar. En sá snjór lá skamma stund sem betur fór. Yfir höfuð, er ekki hægt að segja að veturinn hafi verið neitt tiltakanlega harður. en þrátt fyrir það, eru heybirgðir manna almennt á þrotum. Heyið hefur reynst mjög létt og ónýtt til gjafar í vetur, eru því skepnuhöld með verra móti, svo að mikil líkindi eru til, ef að vorið verður hart, að eitthvað hrökkvi upp af, þar eð ekki er hey til að gefa.

Eftir páskana gerði stutt hlé á illviðrum - en síðan urðu slæm umskipti. Jónas Jónassen segir frá í pistlum:

[20.] Veðurátt hefur þessa vikuna verið með blíðasta móti, oftast við suðurátt og hlýindi talsverð, við og við með regni; klaki mjög lítill hér í jörðu. Í dag 19. hæg landnorðanátt, bjart og fagurt veður.

[27.] Fyrsta dag vikunnar var hæg landnorðanátt, bjart veður; um kveldið féll snjór og gjörði alhvíta jörð; daginn eftir (21. - sumardaginn fyrsta) var hæg austanátt snemma að morgni en gekk fljótt til norðurs og hefir verið bálviðri dag og nótt síðan og lítið útlit fyrir breytingu. Efra hefir verið blindbylur með köflum. Frostharkan hefir verið óvenjulega mikil um þetta leyti; þannig var frostið um kl.7 um morguninn h.24 -12,5°. Hér er alveg auð jörð. Tjörnin hér hjá bænum, sem var alauð, er nú aftur mannheld. 

Þann 4.maí birti Ísafold fréttir af sumarmálagarðinum:

Norðanpóstur kom í gærkveldi. Hafði verið blindbylur nyrðra í garðinum í fyrstu viku sumars, og engri skepnu var úthleypandi, en víða hafðar hér um bil í svelti í húsunum. Búist við almennum fjárfelli á eftir. Skrifað úr Húnavatnssýslu austanverðri 16. [apríl] „Mikil neyð er hér á milli hinna efnaminni búenda og mesti fjöldi manna er farinn að halda sér uppi á umferð“. Hafís var úti fyrir öllu Norðurlandi, landfastur við Horn, og komið hrafl inn á Hrútafjörð, er póstur fór um, og líklega víðar.

Blaðið birti þann 7.maí illar fréttir að vestan:

Hér hefir verið meinlítið veður síðan sumarmálagarðurinn gekk niður. Vestanpóstur kom hingað ekki fyrr en 4. þ.m. að kvöldi. Hann hafði orðið að sitja um kyrrt allt sumarvikuhretið á Laugarbóli við Ísafjörð. Var þar og annarstaðar um Vestfirði moldviðrisbylur alla vikuna hér um bil. Fénaður málþola í húsum mjög viða. Kúm haldið við með hrísgjöf og nytinni úr þeim sjálfum. Tveir eða þrír bæir í sveit sjálfbjarga með hey, en varla nokkur maður aflögufær. Ástandið talið einna verst í 3 sveitum: Geiradal, Laxárdal og Haukadal. Fallið þar mikið af hrossum og gemlingum. Á sumum bæjum fénaður fallinn til helminga. Bjargarvandræði mikil annars vegar. Mikið hjálpað um matvöru í Stykkishólmi, en í Flatey að sögn ekki öðru vísi en gegn veði eða annarri góðri tryggingu. Á Borðeyri hér um bil matvörulaust.

Bréfkafli úr Dalasýslu (Saurbæ) 25. apríl: „Svo er hér slæmt útlit, og það svo, að aldrei í mínu minni hefur það verið eins, og ekki vorið 1882. Meir en 2/3 af bændum hér í sveit eru alveg heylausir fyrir sauðfé og hesta, og sumir líka fyrir kýr (alveg uppi). Víða eru þær nærðar einu sinni á dag, ýmist á deigi, eða mjólkinni er hellt ofan í þær. ... Úr Strandasýslu eru að heyra einstök vandræði, bæði heyleysi og bjargarskort".

Þjóðviljinn segir þann 9.maí:

Á sumardaginn fyrsta, 21.f.m. gerði hér norðangarð með 10 til 12 stiga frosti og kafaldsfjúki, er hélst til 26. sama mánaðar.

Maí: Allgóð tíð framan af mánuðinum, en síðan sérlega ill um tíma.

Austri birti 10.júní bréf úr Hornafirði dagsett 17.maí:

Tíðin var mjög köld frá 19. apríl og fram í þenna mánuð. Sífelldir norðanstormar og grimmdarfrost. Það kuldakast hafði mjög vond áhrif á skepnur, og á stöku bæjum hafa drepist strjálkindur. En stórfellir er ekki orðinn enn, og ég ímynda mér að verði ekki héðan af, ef tíðin verður þolanleg. Síðan 3. maí hefur verið allgóð tíð, en þó heldur þurrviðrasöm til þess að gróðri geti farið fram að nokkrum mun. Samt er nú aðeins kominn grænkulitur á tún.

Jónas Jónassen segir þann 18.maí:

Umliðna viku hefir oftast verið sunnanátt, með hlýindum framan af vikunni en með talsverðri úrkomu og dimmviðri, en þó oftast hægur. Síðustu dagana hefir heldur kólnað í veðri og í dag 17. vestan-útsynningur, allt fram til hádegis krapaslettings-bylur, svo eigi varð séð húsa á milli í morgun fyrir sorta, gjörði alhvíta jörð hér um tíma í morgun; eftir hádegið gekk hann til norðurs, rokhvass til djúpa; jörð er hér nú orðin algræn víðast hvar á túnum.

Þann 18. segir Ísafold frá:

Í gær gekk upp norðangarður harður með miklu frosti og fjúki. Maður kom norðan úr Skagafirði í gær. Hann sagði bestu tíð norðanlands síðan sumarmálahretið, en skepnufelli talsverðan allvíða, með því að fénaður var orðinn svo langdreginn, en heyþrot almenn. Á einum bæ í Húnavatnssýslu austanverðri var engin sauðkind eftir á lifi af 150, er sett hafði verið á vetur i haust: hafði verið skorið af heyjum eða farist smátt og smátt; síðustu 50 kindurnar kvöddu heiminn í sumarmálahretinu. Skip ókomin á hafnirnar nyrðra, nema eitt á Sauðárkrók um síðustu mánaðamót, eitt af Gránufélagsskipum, og ætlaði þaðan til Siglufjarðar 2.maí, en varð frá að hverfa fyrir hafís þar (á Siglufirði) og leita hafnar i Hagavík. Þá var og hafís kominn inn á Eyjafjörð, inn að Skjaldarvík, að sagt var; en Skagafjörður alauður, og Húnaflói sömuleiðis 9. þ. mán. það sem til sást af Holtavörðuheiði, nema mulningsís (hrafl) á Hrútafirði fyrir innan Hrútey. Annað vissi þessi maður ekki til iss.

Bjargarneyð talsverð nyrðra aliviða, einkum á útnesjum, og farið að brydda á harðréttist-veikindum sumstaðar, skyrbjúg og þess háttar. Póstarnir norður og vestur tepptust við Hvítá i Borgarfirði og eru ef til vil! ókomnir yfir hana enn, af ákaflega miklum vexti í ánni, svo hún var óferjandi, vegna leysinga, er lítið hefir verið um áður í vor fram til fjalla.

Þjóðviljinn segir af tíð og svo ís þann 23.maí:

16. þ.m. gerði hér norðangarð sem hélst til 20. þ.m. með moldviðrisfjúki.

Hafísinn. Ibsen, skipstjóri á „Courcer", sem hingað kom 15. þ.m.. segir  Austfirði lokaða af ís; Ibsen ætlaði norður um land til Borðeyrar, en varð að snúa aftur við Langanes, þá var allt ein hafíshella. Spurst hefir úr Bolungarvík. að ísinn sjáist þaðan. Einstöku jaka hefir, rekið hér inn á Skutulsfjörð nú i garðinum.

Fróði er einnig með ísfréttir og ræðir ískyggilega tíð þann 25.:

Hinn 17. þ.m. kom skonnertan „Rósa" hingað [til Akureyrar], fermd vörum til Gránufélagsins. Í hríðargarðinum um sumardaginn fyrsta varð hún að hleypa undan ís inn á Loðmundarfjörð, og lá þar inni kreppt, þar til hann í suðvestanveðrunum, frá 8.-16. þ.m. lónaði litið eitt frá, svo hún með naumindum gat sloppið hingað undan ísnum. sem þá var aftur á uppreki og fyllti jafnskjótt Eyjafjörð; svo engar líkur eru til að meiri sigling komi hingað bráðlega. Skip voru komin á Seyðisfjörð fyrir sumarmál, en um það leyti er austanpóstur lagði af stað, náði ísinn suður fyrir Seyðisfjörð svo þéttur, að hvorki varð komist út eður inn, og „Miacca" skip capt. Watnes varð að liggja fyrir utan. „Rósa" sagði ísinn hafa legið austanvert fyrir öllu Norðurlandi og niður að Skaga. Með ísnum hefir komið mikið af höfrungi hér inn á Eyjafjörð, sem bæði hefir verið skotinn og eins skutlaður í vökum. Ólafur skipstjóri Ólafsson á Syðri-Bakka, hefir þannig i einni vök skutlað um 40 og ýmsir fleiri hafa fengið talsvert.

Til margra ára hefir útlit manna á meðal hér á Norðurlandi eigi verið jafn ískyggilegt og nú, bæði til lands og sjávar. hákarlsafli hefir með öllu brugðist, sem aldrei fyrr, tvö þilskip hafa strandað og til eins hefir ekki spurst með vissu, frá því í hríðargarðinum á sumardaginn fyrsta, að það hleypti vestur undir Strandir. Hér á firðinum er bæði fiskilaust og síldarlaust, og hákarlaskipin þau sem eftir eru liggja hér og hvar upp við land, umgirt af ís. Í Eyjafjarðar- Skagafjarðar- og Húnvatnssýslu eru skepnuhöld afarill, að sögu nokkru skárri í Þingeyjarsýslu. Í öllum þessum sýslum mun fellir á fé vera orðinn til muna og eigi enn útséð um hvenær það mun staðar nema.

Frá 17. þ.m. og allt að þessu hefir verið meiri og minni hríð og froststormar á norðaustan, það litla sem farið var að slá í jörð, hefir kulnað mikið út og eigi örgrannt um, að fé, sem allvíðast er mjög magurt, hafi hrokkið upp af hér og þar. Menn nýkomnir úr Skagafirði sögðu, að þar hefði komið, frá 17.-21. þ.m., svo mikill snjór, að mjög margt fé hefði fennt og á stöku stöðum einnig hestar. Þeir sögðu litt farandi með hest bæja á milli úti í sveitinni. Þessi frétt er samt sem áður of ógreinileg til þess að sagt verði til hlítar um afleiðingarnar af hretinu í þessu blaði.

Þjóðólfur birtir þann 27.fréttir af ís og fleira:

Strandferðaskipið Thyra kom hingað [til Reykjavíkur] í gærkveldi; hafði komist að Langanesi og lá þar í grenndinni (á Bakkafirði) 3 fyrstu dagana af kastinu í moldviðrisbyl, „sáu ís, en sigldu burt", áður en birti vel upp, fór svo austur og hringinn í kring allt vestur og norður að Horni á Hornströndum, en varð þar frá að hverfa sakir íss, fór síðan inn á Ísafjörð, þaðan á komustaðina vestanlands og hingað.

Að norðan kom maður í morgun úr Vesturhópi í Húnavatnssýslu ; fór þaðan 22. þ.m.; sagði hann að í kastinu seinasta hefði verið 5 daga innistöðubylur nyrðra, er skepnur hefðu sakir heyleysisins orðið að standa meira og minna málþola, og ár lögðu aftur.

Norðanpóstur í Hrútafirði á norður leið 23. þ.m.; „Húnaflói fullur af hafís; skip eigi komin nema á Sauðárkrók, og bjargarskortur því mikill ... “

Austri segir þann 3.júní frá hafís og fleiru:

Hafíshroði hefur að öðru hverju verið við Austurland síðan um sumarmál, en samt eigi tálmað skipagöngum að neinum mun. Engin höpp hafa fylgt honum svo spurst hafi, eins og stundum á sér þó stað. Fyrir rúmri viku brá til landáttar og eru því góðar horfur á að úr undanfarandi vorharðindum geti ræst, ef áframhald verður af hinni góðu veðráttu sem nú er byrjuð, þó er nokkuð þurrkasamt fyrir tún og harðvelli.

19. [maí] (uppstigningardag) var hér ákaflegt norðanrok, með snjókafaldi og frosti. Hafði veður þetta verið engu minna við Færeyjar, að sögn skipstjóra eins, er þar var þá staddur.

Júní: Kalsa- og vætuveðrátta.

Ísafold lýsir skárri tíð um tíma í pistli þann 8.júní:

Hér hefir verið hin mesta öndvegistíð frá því viku fyrir hvítasunnu [sem var 29.maí], að létti uppstigningardagshretinu, sem hefir orðið mjög skaðvænt um Norðurland og fyrir vestan, eftir því sem frést hefir, fé fennti eða hrakið í vötn, auk mikils faraldurs úr megurð beinlínis og lambadauða meiri eða minni víða um land.

Jónas lýsir veðri - og segir m.a. frá alhvítri jörð í Reykjavík 14.júní - en var það á snjólagsathugunartíma?

[15.] Þessa vikuna hefir eins og að undanförnu verið veðurhægð, en oftast mikil úrkoma af suðri eða austri; nokkur kalsi hefir verið í loftinu síðustu dagana og snemma í morgun (h.14.) gjörði snöggvast alhvítt hér. Í dag (14.) suðvestangola með hryðjum, bjartur í milli, nokkuð hvass með köflum.

[22.] Fyrri hluta vikunnar var hér útsynningur oft rokhvass, einkum 16., því þann dag var hér um og eftir hádegi öskurok um tíma og gjörði talsvert brim; daginn eftir á sömu átt, en vægari með hryðjuskúrum; síðan hægviðri af landsuðri með mikilli úrkomu. Í dag 21. rétt logn (af suðri), dimmur í lofti, og hefir rignt mikið í allan morgun og fram yfir hádegi.

Ísafold segir frá tíð, ís og hallæri í pistli þann 29.júní:

Rigningatíð mikil hefir verið hér um Suðurland nú í 3 vikur, til mikils baga fyrir fiskverkun, en hefir hleypt upp gróðri í betra lagi, þó ekki hafi verið hlýtt í veðri. Norðanlands og vestan hefir verið þurrviðrasamara og hlýindi meiri, þrátt fyrir hafísinn, sem enn mun vera ófarinn frá landinu, svo að trútt sé. Á helginni síðustu (26. þ. m.) var enn mikill ís á Húnaflóa norður af Vatnsnesi og út með eystra landinu. Austar betur var hann á reki ýmist út eða inn, eins og sjá má ferðalagi strandferðaskipanna, allt austur fyrir Eyjafjörð, en þar fyrir austan var hann kominn talsvert undan landi, svo að skipum var enginn tálmi að. Hvali tvo væna rak ísinn á land í Húsavík, og mikið af höfrungum þar um slóðir.

Skepnufellir hefir orðið ákaflega mikill í Skagafjarðarsýslu og Húnavatnssýslu, bæði úr hor, og einkanlega orðið úti í uppstigningardagshretinu, sem var þar eins og hin grimmilegasta vetrarhríð, en gerði varla grátt í rót í Eyjafirði og því síður austar betur. Eftir skýrslum þeim, er sýslunefndirnar höfðu látið safna, hafa fallið í Skagafjarðarsýslu rúm 10.000 fjár, 200 hross og 80 nautgripir, en í Húnavatnssýslu um 11.000 fjár, 350 hross og 70 nautgripir. Í Strandasýslu heyrist ekki getið um mikinn fjárfelli, nema norðan af Hornströndum (í Strandasýslu og Ísafjarðarsýslu) er sagður mikill skepnufellir og jafnvel manndauði af hungri eða harðrétti, t.d. í Aðalvík og Grunnavík. En manndauðasögur þær eru ekki hafandi eftir að svo stöddu, og má telja víst, að hlutaðeigandi yfirvöld finni sér skylt að láta rannsaka, hver fótur er fyrir þeim. Bjargarneyð hefir annars verið mikil í vor allstaðar norðanlands, þar sem ísinn hefir teppt siglingar; fólk lifað mikið á horketi. Nú fyrir viku eða þar um bil kom loks sigling á Borðeyri og Skeljavik.

Bréf úr Djúpinu dagsett 18.júní og birtist í Þjóðviljanum 27.júní er í öllu meiri bjartsýnistón:

Nú í 3 hagstæðar vikur, eða síðan hretinu linnti, hefir veðráttan verið hin blíðasta, aldrei komið öðru hærra; er gott útlit með grasvöxt, haldist þessi tíð framvegis. Annars má vor þetta heita eitt hið besta er komið hefir hér nú um síðustu 6 ár, þrátt fyrir hið stórkostlega hret í síðastliðnum mánuði. Almennur fellir á fénaði hefir enginn orðið hér. 

Júlí: Mjög kalt, tíð talin hagstæð syðra og eystra. Hríðarveður með frosti á nóttum nyrðra síðasta þriðjung mánaðarins.

Ísafold segir frá batnandi tíð þann 6.júlí:

Eftir óvenjumikla rigningatíð allan júnímánuð nema fyrstu vikuna brá loks til þurrviðra nú á helginni og hefir verið ágætur þerrir síðan. Þar með er fiskinum borgið að mestu; - hann var farinn að skemmast nokkuð. Grasvöxtur ágætur hvar sem til spyrst, eins norðanlands og austan, þótt þar hafi verið þurrviðri meðan rigningarnar gengu hér. Þó mun ekki verða byrjað á slætti almennt að svo stöddu hér syðra, með því að rigningarnar hafa heft ýmsar áríðandi vorannir, einkum aðdrætti; ekki heldur orðið fært frá ám; ull óþurrkuð og eldiviður sömuleiðis.

Þjóðviljinn segir frá júlítíð í nokkrum pistlum. [13.] „Hér vestra má heita sífelld veðurblíða; þurrviðri og sólskin á degi hverjum“. [21.] „Sláttur byrjaður fyrir nokkru hér vestra; tún fremur vel sprottin, en sumstaðar kvartað um, að farið sé að brenna af þeim vegna hinna sífelldu þurrka og hita, sem gengu samfleytt til 17. þ.m., er hann snerist til rigninga“. [30.] Veðráttufar hefir verið mjög kalsasamt; snjóað ofan í miðjar hliðar og þykk hafísþoka legið á fjöllunum. — 28. þ.m. tók að breytast til batnaðar.

Austri segir af hafís þann 19.júlí: 

Hafís. 15. þ.m. rak hér [á Seyðisfjörð] inn hafís (í 2 sinn í mánuðinum, en 3 sinn á sumrinu), enda sagt talsvert af honum hér úti fyrir og á Héraðsflóanum. 

Fróði er birtir ítarlegri ísfréttir - fyrst þann 7.júlí og síðan þann 29.:

[7.] „Laura“ mætti ekki íshroða fyrr enn á Vopnafirði, eigi var hann þó til hindrunar alla leið hingað til Eyjafjarðar. Tveim dögum áður en hún kom að Langanesi lá hafísinn fastur við land fyrir öllu Norðurlandi, svo hefði hún komið degi fyrr, þá hefði hún orðið frá að hverfa. Hér lá „Laura" tvo daga og fór svo til Siglufjarðar; var þá ekki is að sjá á þessum fjörðum og svo langt út sem sást, en um nóttina hins 17. kom ísinn aftur vestan með landi, rak inn á Eyjafjörð og lokaði um leið Siglufirði svo hún varð að liggja þar á þriðja sólarhring. 23. júní lónaði ísinn lítið eitt frá landi, svo hún komst gegnum íshroða til Sauðárkróks. Á leiðinni mætti hún gufuskipunum „Thyru“ og „Camoens", sem ætluðu að komast á Eyjafjörð og svo austur fyrir land en þau urðu frá að hverfa og hleypa inn á Sauðárkrók þann 23. Komust þau þá hvorki austur eða vestur og urðu öll þrjú að liggja þar þegar síðasta viss frétt kom þaðan, síðan hefir laus fregn borist að þau hefðu lagt út 25. s.m. og ekki sést koma aftur, er ekki ólíklegt að þau hafi þá komist vestur fyrir land, því fyrir stöðugt austurrek í ísnum var hann farinn að minnka þar.

Hákarlaskipin frá Eyjafirði og Siglufirði, sem voru komin út til veiða þá daga sem ísinn lónaði sundur urðu jafnskjótt að hleypa undan honum til lands, en náðu fæst heim til sín, 8 náðu Fjörðum og 2 komust á Húsavík, eftir þeim fréttist að „djúpísinn" hafði verið að reka til hafs, en is sá, er nu fyllir alla landabuga hafði rekið með hraðri ferð vestan með landi frá Húnaflóa. — Í gær kom maður beina leið frá Langanesi, hann sagði hafþök af ís lagst að landi og svo langt á haf út sem sást, alla leið frá Langanesi til Eyjafjarðar, frétt hafði hann að ísinn væri kominn suður að Vopnafirði. Þó þetta mikla ísrek og ísalög hafi verið hér norðanlands, hefir mátt heita blíðasta tíð frá 14. til 30. júní, lengst af suðvestan- og vestanvindar með gróðrarskúrum, og oft 12—17 gr. hita á R í skugganum; gróður er því allstaðar orðinn i besta lagi, og lambahöld góð, þótt fé víðast væri magurt orðið.

[29.] Í fréttagreininni í síðasta tölublaði var skilið við 3 gufuskip á Sauðárkrók, en síðar fréttist að þau hefði öll komist 26. f.m. gegnum ísinn vestur fyrir Strandir. „Thyra" og „Camoens" fóru lengst til Vopnafjarðar og svo til útlanda, en „Laura“, fór, eins og til stóð til Reykjavíkur, og kom hingað [til Akureyrar] 8. þ.m., hún hafði af og til farið gegnum íshroða alla leið hingað frá Hornströndum, þéttastur var hann við Skagann, svo illfært var að fara í gegnum hann þar. Hún fór héðan 10. þ.m. og hafði litla hindrun af ís fyrri en við Langanes, þar varð hún að snúa aftur, en þegar hún kom að Skaganum (við Húnaflóa) var lokað þar af ís, svo hún varð að hverfa þaðan og snúa aftur til Langaness, hafði þá greitt þar svo til, að hún komst gegnum ísinn og svo suður með landi til Seyðisfjarðar.

„Thyra" mætti ísnum við Vopnafjörð, en þó eigi til hindrunar fyrri en við Sléttu. Samt komst hún óskemmd gegnum hann. Frá Tjörnesi og hingað var íslaust á leið hennar. Skipið „Rósa" kom hingað 21. þ.m. frá Skotlandi með kol og vörur til Gránufélagsverslunar á Oddeyri og Siglufirði, hún hafði legið 10 daga við ísinn sunnan við Vopnafjörð. Ísinn hefir þannig verið mesti meinvættur þetta sumar fyrir siglingar og hákarlaveiðara enn, en á landi hefir hann gjört minni skaða. Tíðarfar hefir lengst af verið gott síðan í miðjum júní, suma daga blíðu veður 14-17 gr. R í skugga, grasvöxtur er því betri en í meðallagi og nýting góð á því heyi sem ennþá er slegið. Fyrir skömmu kólnaði veðrið með norðan rigning og krapa, svo snjóað hefir niður fyrir mið fjöll.

Ísafold segir frá tíð þann 3.ágúst:

Ágætistíð hefir verið hér á Suðurlandi það sem af er slætti. Tún víðast búin, og allt hirt jafnóðum af ljánum. Grasvöxtur í meðallagi og þaðan af betri, sumstaðar afbragð. En að norðan er að frétta megna óþurrka allan mánuðinn sem leið, nema fyrstu vikuna, en þá var ekki sláttur byrjaður. Alls einir 2 dagar nokkurn veginn þurrir (15. og 16.), en annars sífelldar þokur með miklum kulda og vætu; frost á nóttum og snjóað á fjöll, um fyrri helgi (23.) jafnvel ofan í byggð í Eyjafirði t. d. (Öxnadal) og víðar. Töður því óhirtar allstaðar nyrðra; að eins lítils háttar komið upp í sæti sumstaðar.

Hrafl af hafís var á Skagafirði fyrir viku, og landfastur var hann við Horn 28. [júlí] eða þar um bil. þá varð „Camoens“ að snúa aftur þaðan vestur fyrir við illan leik, — var 7 stundir í ísnum.

Þann 10.ágúst getur Ísafold þess að snjóað hafi ofan í byggð í Þingeyjarsýslu 26.júlí. 

Þjóðólfur birti 2.ágúst bréf úr Húnavatnssýslu dagsett 26.júlí:

Sláttur var almennt byrjaður um helgina i 12. vikunni, á einstöku stað fyrr; voru bestu þurrkar 1. vikuna, en um 17. þ.m. brá til votviðra, sem síðan hafa haldist með kulda og krapa-úrkomu stundum, og kvíða menn, ef sumarið verður votviðrasamt ofan á það, sem á undan er gengið.

Ágúst: Fremur hagstæð tíð, með þurrara móti. Þokur og mjög kalt við sjóinn fyrir norðan.

Fróði segir þann 6. (prentað er 7.júlí - en hlýtur að vera ágúst):

Seinni hluta júlí gengu hér norðanlands kuldar og óþurrkar, en með byrjun þ.m. [ágúst] kom blíðasta veður og bestu þurrkar í 3 daga, svo allir náðu töðum sínum óhröktum með ágætri hirðingu og sumir nokkru af útheyi, tún hafa sprottið almennt betur en í meðallagi, og engjar víðast góðar einkum þurrlendi. — Útlitið með heyskapinn er því stórum betra en í fyrra, og von um, að búendur hafi næsta vetur meira bjargræði en þá af kúm sínum.

Þjóðviljinn greinir frá tíð þann 15. og 23. ágúst:

[15.] Óþurrkar ganga enn á degi hverjum hér vestra. Af Norðurlandi sögð enn meiri óþerratíð; taða lítt hirt við síðustu mánaðamót. Syðra öndvegistíð og nýting á heyjum hin besta.

[23.] Undanfarna daga hefir verið afbragðs þerrir; heyskapur með betra lagi og nýting ágæt.

Þjóðólfur segir ísfréttir þann 16.ágúst:

Strandferðaskipið Laura kom hingað í nótt, hafði komist inn á Eskifjörð gegnum mikinn ís, sem þar lá, varð svo að snúa aftur sakir íss, og kom hingað austan og sunnan um land; fór þegar í morgun til Vesturlandsins. Strandferðaskipið Thyra, sem Laura hitti fyrir sunnan landið, varð á leið sinni norður og vestur um landið innilokuð í ís við Melrakkasléttu, og hafði legið nokkra daga á Raufarhöfn, og orðið síðan að snúa aftur sakir íss.

September: Rigningatíð, hríðarveður í lok mánaðarins. 

Þjóðólfur lofar sumartíðina í pistli þann 9.september:

Tíðarfar sunnanlands í sumar eitthvert hið besta sem menn muna. Þótt stöku sinnum, hafi komið óþurrkar, síðan sláttur byrjaði, hafa þeir eigi staðið lengi. — Eftir síðustu fréttum annars staðar af landinu hefur einnig verið yfir höfuð hagstæð heyskapartíð, grasvöxtur góður og heyskapur því með besta móti víðast hvar. Í gær kólnaði veður; í nótt snjóaði i fjöll og í dag er norðvestan-stormur og kuldi.

Mánuðurinn byrjaði vel í Reykjavík, Jónas segir frá þann 8.:

Enn helst sama blíðan og góðviðrið, logn á hverjum degi, jörð enn algræn eins og á hásumardegi.

En snögglega haustaði og þann 14. segir Jónas:

Fyrsta dag vikunnar var austanátt með mikilli rigningu.en gekk svo til útsuðurs eftir miðjan dag; 8. var útsynningur með haglhryðjum og gekk aðfaranótt h.9. til norðurs, hvass og kaldur, og snjóaði þá í miðja Esju. Norðanveðrið gekk fljótt niður aftur og bæði 11. og 12. var hér logn og besta verður; að kvöldi hins 13. fór hann að dimma og gekk til landsuðurs, og í dag 13. er hann kominn algjört í landsuðrið, dimmur og lítur út fyrir vætu; þó haggast loftþyngdarmælirinn mjög lítið enn sem komið er.

Þjóðólfur segir þann 16. frá tjóni í illviðri og hafís:

Í ofsaveðrinu 9. þ.m., ... , urðu heyskaðar austur i Laugardal; á einum bæ fuku t.a.m. um 100 hestar af heyi og þakið af baðstofunni. Í sama veðrinu slitnaði fiskiskútan Vonin upp hér á höfninni og brotnaði. Hafís. Skaftfellingar, sem komu hingað í gær, segja, að hafíshroði hafi nýlega verið kominn vestur á móts við Öræfi i Skaftafellssýslu.

Norðurljósið á Akureyri segir frá skipskaða sem varð í veðrinu þann 10.:

Skipstrand. Í ofsaveðri 10. september strandaði á Berufirði kaupskipið „Manna", eigu stórkaupmanns C. Höephners, lagði út frá Kaupmannahöfn 16. apríl og átti að fara hingað á Eyjafjörð, en komst ekki í sumar sökum íssins, er alltaf lá við Norður- og Austurlandið. Skipið rak undan veðrinu upp i klungur og brotnaði að neðan svo að það fylltist at sjó á hálfum klukkutíma. Menn komust af og dálitlu varð bjargað af vörunum.

Tíðarfréttir eru einnig í Þjóðólfi þann 23. og 30.:

[23.] Framan af þessari viku ákafleg rigning hér sunnanlands, en í gær þurrkur og blítt veður. — Að norðan hefur frést, að þar hafi komið langur votviðrakafli um 17 vikur af sumri, en i sláttarlok komið þurrkar, svo að hey náðust inn. Í þessum mánuði snjókoma mikil nyrðra. — Hafís allur farinn frá Norðurlandi um miðjan þennan mánuð. Heyskaðar urðu víða hér austur í sýslunum 9. þ.m, í Núpakoti fuku t.a.m. um 300 hestar af heyi.

[30.] Frá því á mánudag [26.] til miðvikudagskvölds var hér harður norðangarður með frosti og fannkomu til sveita. Í gær gerði aftur sunnanátt með ákafri rigningu í dag.

Austri birti 17.nóvember bréf úr Austur-Skaftafellssýslu. Þar segir m.a.:

Fátt er héðan að frétta. Grasvöxtur mátti heita í besta lagi. Tíð og nýting góð, þar til 24. ágúst þá komu miklar hafísþokur og ísinn með, var þá mesta kulda ótíð í hálfan mánuð, þá fór ísinn, enda hafði hann hér aldrei friðland fyrir stormi, svo kom við og við góð tíð aftur svo heyföng mega teljast í besta og mesta lagi nú i 6 ár og litlir heyskaðar.

Gríðarlegir vatnavextir og skriðuföll urðu norðanlands í september og e.t.v. fyrstu daga októbermánaðar. Norðurljósið segir frá þann 31.október:

Skriðuhlaup og vatnavextir, svo fádæmum sætir, urðu í sumum sveitum hér nyrðra 27. og 28. september í afskaplegri rigningu og snjóbleytu, er var um þá dagana. Ár flóðu víða yfir bakka sina, brutu landið og lögðu undir aur og sand. Smálækir urðu miklir sem ár, og flæddu yfir tún og engjar og fluttu með sér stórgrýti, möl og leir. Skriður hröpuðu úr fjöllum og umhverfðu landinu, svo fagrar fjallahlíðar, grösugar grundir, mýrar og móar, engjar og tún urðu sumstaðar að eyðimörku. Í Eyjafjarðarsýslu kvað mest að skemmdunum i Öxnadal og Svarfaðardal. Öxnadalsá varð óvenjulega mikil og skemmdi allstaðar í Öxnadal og öllum Hörgárdal (þar heitir hún Hörgá) þar sem lágir og flatir bakkar eða grundir liggja að henni. Misstu því sumar jarðir i þessum sveitum mikið af engjum sínum. Skriðuhlaup urðu mikil og skaðleg einkum innarlega í Öxnadal. Á Fagranesi eru eftir af túninu smáskeklar, hér um bil ein dagslátta, en engi hér um bil allt farið; á Gloppu er tún lítið skemmt en mikill hluti af engi og bithaga liggur undir skriðu. Hálft túnið á Gili er eyðilagt og allar bestu engjar; á Varmavatnshólum fullur þriðjungur af túninu og mikið af enginu. Á Bessahlöðum er tún lítið skemmt en engjar mikið. Kunnugir menn segja að sumar þessar jarðir hljóti að leggjast í eyði, að minnsta kosti fyrst um sinn. Fleiri jarðir í þessari sveit urðu fyrir skemmdum.

Í Svarfaðardal urðu þó skemmdirnar enn voðalegri að sagt er. Á Hrísum, Skáldalæk, Sökku, Völlum og Ytra-Hvarfi er mikið af engi, sem lá að ánni, lagt í auðn; Kóngstaðir lagðir algjörlega í eyði af skriðum og eins tún og engjar á Ytri- og Syðri Márstöðum. Allmikil skriða fór yfir túnið á Ytri-Márstöðum. Þegar hún féll var bóndinn þar, Þorkell Þorsteinsson, staddur skammt fyrir utan túnið. Brá hann þegar við og ætlaði að komast heim til bæjarins, en náði ekki nema að fjárhúsi, er var í leiðinni. Hljóp hann þá upp á húsið, en skriðan tók það þegar; gat maðurinn samt bjargað sér af húsinu og upp á heyhlöðu, er var áföst við það, og skriðan ekki tók. Var honum bjargað þaðan morguninn eftir. Skriðan tók fjósið með 4 kúm og færði það niður á túnið. Sagt er að kúnum yrði bjargað úr því daginn eftir, öllum með lífi. Tungufell og Melar misstu mikið af engjum sinum af skriðufalli; á Búrfelli féll og nokkuð; Skeið er sagt algjörlega lagt í eyði. Á Urðum tók bæjarlækurinn 8 dagsláttur af túninu. Grundarengi, Tjarnarengi, og Trjónubakki, er liggur undir Velli, og Böggversstaðaengi, er ónýtt að miklu eður öllu leyti af aur og sandi úr Svarfaðardalsá. Þetta er feikimikið flæmi og var áður fagrar og grösugar engjar. Á Tjörn féll og skriða til stórskemmda; i henni fórst allmargt fé. Víðar urðu og skriður skepnum að bana.

Í miðri Svarfaðardalsá, undan Klaufabrekku, lá grasivaxinn hólmi, nefndur Tröllhólmi, þar sem fundur þeirra Klaufa og Hærings varð forðum daga, sem kunnugt er af Svarfdælu. Hólmi þessi hefir staðið óhaggaður af náttúrunnar völdum síðan fornsögur vorar gjörðust þar til nú að Svarfaðardalsá tók hann í þessum vatnavöxtum. Og sagt er að nú sjáist hans lítil eður engin merki.

Og Norðurljósið bætir enn við fréttum af skriðuöllum í pistli þann 25.nóvember - nú úr Skagafirði:

Skriður og vatnavextir. Eins og vér gátum um í seinasta blaði, voru engu minni brögð að þeim í Skagafirði en hér við Eyjafjörð. Seinast í september gjörði þar snjó allmikinn, víða til fjalla varð slétt af öllu; en með októberbyrjun snerist i asahláku, svo snjóinn leysti í einu vetfangi og vatnavextir urðu svo afskaplegir, að elstu menn muna ekki aðra slíka. Allar þverár beljuðu áfram kolmórauðar af aur og leðju og báru skriður á engjar og haga, sem að þeim lágu. Héraðsvötnin flóðu yfir allt undirlendið. Í Hólminum sást varla á annað en bæjarhúsin upp úr flóðinu, og mælt er að þessi blómlega sveit sé nú leirflag eitt, og hið sama er að segja um hin góðu og viðáttumiklu engi fram með vötnunum báðum megin. Víða féllu stórkostlegar skriður úr fjöllum einkum í Norðurárdal, svo póstleiðin er illfær, víða í Blönduhlið meira og minna og í Kolbeinsdal féll skriða í Bjarnastaðalandi og gjörði landspell allmikið. Í Gönguskörðum urðu stórskemmdir af jarðföllum, á Veðramóti skemmdist bæði engi og bithagi að miklum raun, en mest urðu brögð að því í Heiðardalnum. Þar féll fram á einum stað í Heiðarlandi afarbreið jarðspilda. Jarðfallið tók sig upp hátt upp í fjalli á mörgum stöðum með litlum millibilum undir svonefndum Hróarsgötustalli og var þar víða 20 og 30 feta djúpt. Öll hlíðin rótaðist upp og féll yfir undirlendið að fjallinu hinum megin. Að neðan er jarðfallið 300 faðmar á breidd og tók af sjálfsagt 3-400 hesta slægjur og mikið og gott beitiland. Báðar þessar síðasttöldu jarðir eru landseign og verður sjálfsagt að setja eftirgjald þeirra niður að miklum mun, ef þær eiga að byggjast framvegis. - Austan til í Húnavatnssýslu urðu og allmiklar skemmdir af skriðuhlaupum.

Október: Óróleg tíð framan af, en stilltist þegar á leið.

Ísafold segir þann 13.:

Síðan létti rigningaókjörunum, er stóðu frá því í miðjum fyrra mánuði og til 4. þ.m., — að fráteknu norðankastinu 25.-28. f.m., - hefir verið hér góð veðrátta, hæg og stillt, og ekki tiltakanlega kalt, þótt snjór sé á fjöllum. Ekki hafði orðið minna af rigningunum fyrir norðan, eftir því sem nýfrétt er þaðan. Héraðið í Skagafirði eins og fjörður yfir að sjá, og urðu stórmiklir heyskaðar af því. Þaðan, úr Skagafirði, er sagt svo af sumrinu í bréfi seint í [september]:„Sumar þetta hefir mátt heita allgott; þó hefir nýting á heyjum verið vart í meðallagi: þokubrælur með nokkru úrfelli. Hinn 9. þ.m. gerði norðanhríð, alsnjóaði, kom nokkur fönn. Síðan gerði góðan þurrk vikutíma, svo flest allir hafa náð heyjum sínum, sem þá voru úti, með góðri verkun. Heymagn í tæpu meðallagi, þó kannski nóg handa þeim fáu skepnum, sem almenningur á eða hefir til að setja á vetur. Um málnytu hefir varla verið að tala í sumar, þar almenningur missti yfir helming af ám sínum næstliðið vor, og sumir nær því allar. (grasvöxtur var heldur i betra lagi)".

Úr Vestur-Skaptafellssýslu er sagt svo af tíðarfari í sumar, í bréfi 1. þ.m. „Eftir að brá til bata í vor. var um tíma þurrviðrasamt og stillt veður. Menn náðu þá eldivið sæmilega þurrum. Eftir það voru hér rigningar um hálfsmánaðar tíma, svo aldrei kom þurr stund, en oftara logn. En hér um bil 10 vikur af sumri brá aftur til þurrviðra, sem héldust til hundadagaenda, að fráteknum nokkrum dögum um túnasláttinn, nálægt vikutíma, sem rigningasamt var. En um hundadagaenda brá aftur til rigninga og storma, sem héldust þar til 20 vikur af sumri eða þar um bil. Þá kom þerrir með hvassviðri á norðan, sem feykti viða heyi til skaða, einkum til fjalla; varð hey eigi höndlað meðan hvassviðrið stóð. Út úr því brá aftur til rigninga, þar til nú, með þessari viku, að aftur kom norðanstormur, með þerrir og gaddi. Yfir höfuð er hér um sveitir vel heyjað, þó að úrkoma seinni part sláttar og eins norðanstormarnir hafi nokkuð dregið úr heyskap“.

Þjóðviljinn segir þann 12: „Haustveðrátta helst enn hin ákjósanlegasta á hverjum degi“, og þann 21.: „Í gær snjóaði hér talsvert í byggð, annars hefir tíð í haust mátt heita frámunalega góð“.

Ekki var gott hljóð í Skagfirðingum og Húnvetningum í bréfum sem birtust í Ísafold þann 9.nóvember:

Skagafirði 23. okt. „Þetta nýliðna sumar hefir verið oss Skagfirðingum affaraverst allra undanfarinna sumra í þessum harðindum. Stórhríðaráfelli á því fjögur: tvö í vor, um aprílmánaðar og maímánaðar lok; hið þriðja 9. september, þegar allt úthey frá túnaslætti að kalla mátti lá hér úti, og hið fjórða 26. og 27. september. Auk þess ákafar haustrigningar, svo að Héraðsvötn hafa flætt ógurlega, ónýtt mörg hundruð hesta af heyi eða flutt á sjó út, en skriður skemmt fjöll, einkum í Akrahreppi, svo að enginn man slík skriðuföll. — Grasvöxtur var hér víðast í betra meðallagi, en nýting fremur vond og affaraslæm með töður; því að meðan hiti var i þeim, gengu allt af öðru hvoru rigningar miklar, svo að þær drápu eflaust víða, og mjög víða eru þær brunnar. Enginn veit, hversu haustrigningarnar kunna að hafa skemmt saman komin hey. Það voru þau býsn, sem rigndu, að varla er hugsandi annað en að þau hafi drepið meira eða minna".

Húnavatnssýslu í miðjum október. „Hér hafa verið annaðhvort stórrigninga- eða stórkafaldshríðar frá því leitir byrjuðu og þangað til vika var af þessum mánuði. Heyskaðar urðu nokkrir að sögn í þingi og Vatnsdal af vatnagangi, og sumstaðar að eru sagðar skemmdir á heyjum i hlöðum og tóftum. Það lítur út fyrir, að harðindin eigi nú um stund ekkí af okkur að ganga Húnvetningum, að fá nú þetta áhlaupakast eftir öll stórhretin í vor, hafísinn í allt sumar og óþurrkana; enda er orðinn mjög aumur búskapur margra sem stendur og versnar þó sjálfsagt hér eftir, einkum í vetur hvað bjargræði snertir".

Þjóðviljinn segir frá tíð og slysförum þann 31.október:

Alla síðustu viku hefir verið hvassviðrasamt, og sjór því lítt sóttur; fremur aflatregt hjá þeim, sem róið hafa, 20—30 í salt á skip. S1ys. Í Súgandafirði varð bátstapi 24. þ.m. Hjónin Guðmundur Guðmundsson á Laugum og Guðný kona hans höfðu farið tvö á bát yfir að Gilsbrekku að sækja 1ömb, en á heimleiðinni kom rokspilda, er hvolfdi bátnum. Þau hjón komust á kjöl, en skömmu síðar kom önnur spildan og venti bátnum. Konan varð þá viðskila við bátinn og drukknaði, en manninum skolaði í land. Skip var eigi að fá þar nálægt, nema á Suðureyri, og var þá orðið um seinan að bjarga.

Þjóðólfur segir þann 4.nóvember frá jarðskjálfta sem varð á Reykjanesi 28.október:

Jarðskjálfta varð vart hér að morgni 28. [október] kl.5. og 20 mín., svo og á Eyrarbakka og einkum suður á Reykjanesi, þar sem Valahnúkur er og Reykjanesvitinn stendur á, klofnaði, og talsverðar skemmdir urðu á steinolíuhúsi vitans og bæ vitavarðarins, og 9 glös i vitanum brotnuðu. - Tíðarfar. 31. [október] var hér talsverð fannkoma; annars gott tíðarfar.

Nóvember: Stillt tíð, en nokkuð frosthörð.

Ísafold segir þann 9.:

Blíðviðri eru nú hér á degi hverjum. Frost lítilsháttar, og snjór á jörðu lítill sem enginn.

Þjóðviljinn lýsir veðri vestra stuttlega þann 26.:

Tíðarfar. 22. þ.m. var hér sunnanveður með stórrigningu, en snerist daginn eftir upp í norðangarð, sem hefir haldist síðan með 3-6 stiga frosti.

Ísafold segir þann 1.desember:

Tíðarfar er að frétta gott um allt land í haust eða það sem af er vetri. Frost lítið og fannkoma sömuleiðis. Stillur með langvinnasta móti, en stórviðri þegar hvessir.

Þjóðólfur birti þann 23.desember bréf úr Suður-Þingeyjarsýslu ritað 27.nóvember:

Frá 4.-17, nóvember var tíð mjög mild og jarðir góðar. Fyrir 17. höfðu margir hér í sýslu ekki gefið fullorðnu fé og sumir ekki lömbum. Síðan 17. þ.m. hefur tíð verið slæm, sífeldar hríðar og kuldar, og viða er alveg tekið fyrir jörð. 17. þ.m. brast í allsnöggvan byl og fórst þá bátur með 5 mönnum frá Húsavík, eign séra Finnboga R. Magnússonar á Húsavík . . . . Afli má heita góður við Eyjafjörð, en nú upp á síðkastið mjög gæftalítið.

Desember: Snjóasamt nyrðra framan af mánuðinum, annars fremur stillt en frostasöm tíð. Fyrsti þriðjungurinn var sérlega kaldur.

Þjóðólfur birti 30.desember bréf úr Strandasýslu, dagsett 9.desember:

Veðrátta fremur óstöðug, frost mikil með köflum, sífeldar þokur til hafsins, og sjókuldi óvanalega mikill.

Þjóðólfur segir 23.desember frá ís á Húnaflóa, samkvæmt bréfi að norðan 11.desember:

Hafís er kominn inn á utanverðan Húnaflóa; hefur rekið inn í hríðarkasti sem gjörði 6. þ.m. og stóð i nokkra daga.

Ísafold segir þann 14.: „Frost hafa verið mikil og stórviðri og fannkoma nokkur nú um nokkurn tíma“.

Þjóðviljinn segir þann 13.:

Norðangarðinum slotaði 7. þ.m. og síðan hafa haldist stillviðri með talsvert hörðu frosti (9-13 stig á Reaumur). 

Jónas lýsir góðviðri í Reykjavík um jólin þann 28.:

Alla vikuna hefir verið blæjalogn og allan fyrri partinn þokumugga dag og nótt og við og við nokkur rigning; síðustu dagana hefir verið hið fegursta og bjartasta veður með vægu frosti. Hér er svo að kalla auð jörð. Í dag, 27., blæjalogn og heiðskírt loft. Í sjónum talsverð harka.

Þjóðviljinn lofar tíðina 31.desember:

Síðari hluta desembermánaðar hefir mátt heita frámunalega góð tíð, frostlinur og stillviðri. Hafís sagður sjást af Ströndum. Norðurljós óvanalega mikil og fögur sáust 26. og einkum 27. þ.m.

Norðurljósið segir þann 31.desember:

Veðráttan hefir oft verið ákaflega óstöðug hér nyrðra þennan mánuð, Fram um miðjan mánuð voru oft snjókomur og grimmdarhörkur, stundum um 20°C. Síðan hefir verið mildara, og góð hláka um jólin. Snjór er hér allmikill, en hjarn og góð færð viðast hvar. Likt mun hafa viðrað á Austurlandi. Í dag er hríðarveður.

Bréf, dagsett 3.janúar í Suður-Þingeyjarsýslu birtist í Þjóðólfi 27.janúar 1888:

Síðan 17. nóvember hefur tíð verið hörð og jarðbönn víða hér um slóðir. Gamla árið kvaddi okkur og nýja árið heilsaði með stórhríðum. Útlitið þykir ísalegt, og sagt er, að hafíshroði hafi sést út af Skjálfanda og Eyjafirði, og mun það satt vera, en þó eigi nema lítill jakaslæðingur.

Norðurljósið segir frá því 2.febrúar 1888 að tveir bátar úr Keflavík hafi farist á gamlársdag og með þeim 11 menn. Í sama blaði er sagt frá því að meira hafi hrunið úr Valahnjúk þar sem sprakk fram í skjálftanum fyrr um haustið.

Ísafold lýsir árinu í heild í pistli 4.janúar 1888:

Árið 1887 (eftirmæli). Það er fágætt að tíðarfari, eins og hálflitur maður: blítt og fagurt á öðrum helming landsins, strítt og ljótt á hinum, einkanlega um miðbik Norðurlands. Í vorhretum tveimur, um sumarmál og uppstigningardag, hrundi mjög niður fénaður manna, langdregin undir vegna fóðurskorts eftir illt sumar áður, mest í Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum, talsvert líkt á Vestfjörðum og í Múlasýslum. Hafís lá fyrir Norður- og Austurlandi frá sumarmálum og nokkuð fram yfir höfuðdag, teppti samgöngur á sjó, spillti sjávarafla á Austfjörðum einkanlega og heyskap sömuleiðis norðanlands, þó grasvöxtur væri þar allgóður. Haustið þar ákaflega rigningasamt, með vatnsflóðum og skemmdum á heyjum. Um Suðurland var aftur á móti mikil árgæska til lands og sjávar, mestallt árið að kalla mátti, einkanlega afbragðs-sjávarafli í helstu veiðistöðunum, ekki síst á haustvertíðinni, sem annars er mjög fágætt. 

Lýkur hér að sinni frásögn hungurdiska af árinu 1887. 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Smávegis af hitametum

Hitabylgja gærdagsins (sunnudag 29.júlí) skildi eftir sig nokkurn metaslóða. Að sjálfsögðu féll fjöldi dægurhámarkshitameta á einstökum stöðvum - hátt í 50 á þeim stöðvum sem athugað hafa í 10 ár eða meira - þar á meðal í Reykjavík en hámarkshiti dagsins þar var 23,5 stig á þeim mæli sem nú er notaður. Kvikasilfursmælirinn sýndi 22,7 stig. Svokölluð búveðurstöð á sama stað sýndi mest 22,9 stig. Sá skynjari er í skýli af gömlu gerðinni - rétt eins og kvikasilfursmælirinn. Um þessar mundir er einnig mælt á fjórðu stöðinni í reitnum - nefnist „tilraunarstöð“ - sjálfvirk stöð annarrar gerðar en hinar - og með heldur stærri hólk (skýli) utan um skynjarann. Hún sýndi mest 23,1 stig. Af þessu má glögglega sjá hversu erfitt er að ákvarða hámarkshitamet nákvæmlega. Á Reykjavíkurflugvelli var hámark gærdagsins 23,2 stig - það er ekki dægurmet þar. 

Á landsvísu var dagurinn sá hlýjasti á árinu, meðalhiti í byggð reiknast 13,5 stig. Það er aðeins tvisvar sem 29.júlí hefur verið hlýrri, árið 2008 og 2004, 2004 reyndar ómarktækt hlýrri en nú. Meðalhámarkshiti dagsins í byggð reiknast 19,6 stig og hefur aðeins einu sinni verið hærri 29.júlí. Það var 2008. Þetta var líka hlýjasti dagur ársins á fjölmörgum veðurstöðvum - enda samkeppnin í sumar ekki mjög hörð um landið sunnan- og vestanvert.

Hámarkshiti á Patreksfirði mældist 24,7 stig og er það hæsta hámark ársins til þessa á landinu. Það er óvenjulegt að hæsta hámark ársins sitji á Vestfjörðum og með nokkrum ólíkindum verði það endanleg niðurstaða. En enn er langt til loka sumars - og talan ekki mjög há - þannig að góðir möguleikar eru enn á að hærra landshámark sjáist. Sé tekið mark á óhreinsuðum listum hefur það tvisvar gerst að hæsti hiti ársins hefur mælst á Vestfjörðum, 1943 og 1962. Tilvikið frá 1943 (Lambavatn) er nær örugglega rangt, og hitt (1962 á Þórustöðum í Önundarfirði) er talið vafasamt - en ekki alveg útilokað. 

Mánaðarhámarksmet fyrir júlí féllu á nokkrum stöðvum, en flestar þeirra hafa þó athugað í minna en 10 ár og hittu því ekki hitabylgjuna miklu í júlí 2008 fyrir. Árshitamet voru sett á fjórum sjálfvirkum stöðvum sem athugað hafa í meira en 10 ár, á Reykhólum (22,5 stig), á Bjargtöngum (21,6 stig), á Lambavatni (24,1 stig) og í Súðavík (22,4 stig). Talsvert hærri hiti mældist þó á mönnuðu stöðinni á Lambavatni í hitabylgjunni miklu í ágúst 2004 (28,4 stig) - en þá var ekki komin sjálfvirk stöð þar. Hæsti hiti á mönnuðu stöðinni á Reykhólum var 22,7 stig, mældist í júlí 1976 - engar mælingar voru þar í hitabylgjunni í ágúst 2004 - sjálfvirka stöðin hóf athuganir um haustið.

Í gær féll 21 daggarmarkshámarksmet á sjálfvirku stöðvunum. Daggarmark segir til um það hversu mikil vatnsgufa er í lofti. Nákvæmar rakamælingar eru að vísu erfiðar og gæði þeirra rakamæla sem notaðir eru hér á landi eru mjög misjöfn. Marktæknin er því álitamál frá einni stöð til annarrar og ekki rétt að gera allt of mikið úr metum af þessu tagi. 

Því er þó ekki að neita að 21 stöð er þó nokkuð - og sýnir að í raun og veru var loftið sem við sögu kom sérlega rakt. Óvenjuhlýtt var framan af degi, en síðan fór að rigna. Í upphafi rigningarinnar gufaði hún upp á leið til jarðar og hækkaði daggarmarkið ört meðan á því stóð - rakinn féll beinlínis af himnum ofan. Hæst varð daggarmarkið í Grindavík, 17,1 stig - nýtt met á þeim stað. Við vitum af fáeinum trúverðugum tilvikum hér á landi með enn hærra daggarmarki. 

Mikið mældist af eldingum við landið í gær - að sögn á fimmta hundrað. Mun það vera með mesta móti. Ekki mælast allar eldingar. Flestar eldingarnar urðu yfir sjó og er það líka óvenjulegt á þessum árstíma. 

Áhugasömum er bent á pistil um hitabylgjuna sem nimbus ritar á blogg sitt í dag.


Bloggfærslur 30. júlí 2018

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 293
  • Sl. sólarhring: 442
  • Sl. viku: 1609
  • Frá upphafi: 2350078

Annað

  • Innlit í dag: 262
  • Innlit sl. viku: 1465
  • Gestir í dag: 259
  • IP-tölur í dag: 250

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband