Skyldi lćgđagangurinn mikli bara halda áfram?

Já, ţannig lítur máliđ alla vega út í augnablikinu (ţriđjudag 19.júní). Ađ vísu er dálítill munur á framtíđarspám frá degi til dags, lćgđirnar dálítiđ misdjúpar og einhver tilbrigđi í ţeim leiđum sem stungiđ er upp á. Međalspá evrópureiknimiđstöđvarinnar sem gildir fyrir vikuna 25.júní til 1. júlí sýnir ţetta nokkuđ vel.

w-blogg190618a

Sérlega stílhrein - og ţannig séđ falleg - stađa. Gríđareindregin suđvestanátt međ lćgđasveigju í háloftunum. Rćtist ţetta rignir mikiđ um landiđ sunnan- og vestanvert - og ekki bara ţađ heldur verđur oft hvasst líka, en íbúar Norđaustur- og Austurlands kćtast trúlega ađ mun. Sumar spár (en bara sumar) sýna meira ađ segja háar hitatölur ţar um slóđir einhverja dagana - en talsvert svalara á milli - eins og verđa vill séu lćgđir ţćr sem framhjá fara djúpar. - Ekki má heldur miklu muna ađ ţćr fari yfir landiđ međ úrkomutíđ alls stađar. 

Ţađ má hins vegar segja um ţessa stöđu ađ hún er í sjálfu sér hvikul - getur tekiđ upp á ţví ađ velta snögglega yfir í eitthvađ allt annađ. 


Kaldur dagur suđvestanlands

Dagurinn (19.júní) var harla kaldur suđvestan- og vestanlands. Sólarhringsmeđalhiti í Reykjavík reiknast 6,3 stig, -3,7 stig neđan međallags síđustu tíu ára og hefur ekki veriđ svo lágur nokkurn dag síđari hluta júnímánađar frá ţví 1992 - en ţá komu margir afarkaldir dagar í röđ um jónsmessuna og snjó festi rétt ofan viđ bćinn snemma morguns. Sé leitađ ađ 19.júní einum og sér ţarf ađ fara aftur til gćđasumarsins 1974 til ađ finna jafnkaldan.

Hegđan hitans í dag var ţó óvenjuleg - hann var nánast jafn allan sólarhringinn. Lágmarkshiti dagsins [6,0 stig] telst ţannig ekki sérlega lágur miđađ viđ međalhitann. Hann hefur t.d. fjórum sinnum veriđ lćgri ţann 19.júní á ţessari öld. Ţađ er „einkennilegra“ međ hámarkshitann. Hćsti hiti sólarhringsins á sjálfvirku stöđinni var 7.8 stig, ţađ er óvenjulágt hámark í Reykjavík nćrri sólstöđum. En ţetta er ekki sú tala sem fćrist til bókar sem hámarkshiti dagsins heldur 9,8 stig. Sólarhringur hitaútgilda nćr nefnilega frá kl.18 daginn áđur til kl.18 viđkomandi dag. Ţetta fyrirkomulag (sem var á árum áđur algjörlega óhjákvćmilegt) mun um síđir heyra sögunni til - ţegar mannađar mćlingar leggjast endanlega af - og gerir ţađ nú ţegar á sjálfvirku stöđvunum. 

Víđa um heim er međalhiti sólarhrings skilgreindur sem beint međaltal hámarks- og lágmarkshita. Ţađ međaltal er oftast ekki fjarri lagi - en sjáum til hvađ gerist međ daginn í dag ef viđ notum ţá reglu. Međaltal 9,8 og 6,0 er 7,9 stig - langt ofan viđ ţau 6,3 sem viđ fáum međ ţeirri ađferđ sem notuđ hefur veriđ áratugum saman. Ef viđ reiknum međaltal hámarks- og lágmarks sjálfvirku stöđvarinnar [sem miđađ er viđ „réttan“ sólarhring] verđur útkoman 6,9 stig - mun lćgra en 7,9 en samt marktćkt hćrra en ţau 6,3 stig sem viđ sögđum ađ ofan ađ međaltaliđ vćri. „Réttur“ međalhiti sjálfvirku stöđvarinnar var hins vegar 6,4 stig. 

Nú eru flestir lesendur sjálfsagt löngu búnir ađ tapa ţrćđi - en vonandi átta sumir ţeirra sig samt á ţví ađ vegna ţess ađ reglur um međaltalsreikninga og aflestur mćla hafa breyst í gegnum tíđina (ţví miđur, ţví miđur, ţví miđur) - og enn er veriđ ađ hringla međ slíkt (og víst ekki hjá ţví komist) ţarf alltaf ađ vera ađ reikna gömul međaltöl upp á nýtt og samrćma ţau sem best verđur. 

Lesendur mega vita ađ ţađ er hćgt ađ gera ţetta á viđunandi hátt - ekki ţó án ţess ađ ţeir sem vinna viđ ţađ viti hvađ ţeir eru ađ gera og kunni ađ greina hvađ er hvađ, en ţađ verđur aldrei til nein endanleg hitatímaröđ. Mestallt ţras um breytingar á hitaröđum er byggt á misskilningi (eđa skilningsleysi) og er ţví afskaplega ţreytandi. Bent er á gćs og hún sögđ vera hundur. Verst er ađ fjöldi manns trúir ţví - og af ţessu er stöđugt ónćđi og ćsingur - ekki síst nú á netöld - hingađ til lands berast meira ađ segja öldur misskilnings allt frá Ástralíu - víst sé gćsin hundur.   


Bloggfćrslur 19. júní 2018

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 25
  • Sl. sólarhring: 56
  • Sl. viku: 516
  • Frá upphafi: 2343278

Annađ

  • Innlit í dag: 22
  • Innlit sl. viku: 468
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband