Á háloftavaktinni

Nú (sunnudagskvöld 29.apríl) virðist tilefni til að rifja upp lægstu stöðu 500 hPa-flatarins hér við land í maímánuði. Apríl er þó enn ekki lokið þegar þetta er skrifað og eins og venjulega er rétt að taka spám með varúð - sérstaklega þeim sem innihalda eitthvað óvenjulegt. En það er sum sé spáð óvenjulágum 500 hPa-fleti hér við land næstu daga - og lágum veðrahvörfum - miðað við árstíma. 

Evrópureiknimiðstöðin segir hæðina fara niður í 5030 metra yfir Vestfjörðum 1.maí og síðan alveg niður í 4970 metra á fimmtudagskvöld (3.maí). Bandaríska spáin fyrir 1.maí er aðeins hærri, en fimmtudagstalan svipuð og hjá evrópureiknimiðstöðinni. 

Þessar tölur kveikja á ljósum í mælaborði ritstjóra hungurdiska og rifjar hann (nær ósjálfrátt) upp lægstu eldri tölur sem vitað er um. 

Fyrst er að spyrja háloftaathuganir frá Keflavíkurflugvelli. Lægsta maígildi sem vitað er um þar eru 5011 metrar - örlítið lægra en það sem spáð er 1. maí, en hærra en það sem (nú er) spáð á fimmtudag. Þessi lági 500 hPa-flötur mældist að kvöldi 3. maí 1963. Ritstjórinn man þann dag vel - beið spenntur eftir illviðri (sem reyndar skilaði sér ekki að fullu í Borgarfjörðinn). Eftirköstin urðu hins vegar snjókoma og frost dagana á eftir. 

Næstlægsta hæðarmælingin var gerð að morgni 13.maí 1956. Það veður man ritstjórinn hins vegar ekki - en þekkir það vel af afspurn því loftþrýstingur hefur aldrei mælst lægri í maí hér á landi en þennan dag, 967,3 hPa á Stórhöfða. 

Þegar 500 hPa-flöturinn er mjög lágur fylgir líka lágur loftþrýstingur. Hversu lágur hann verður fer hins vegar eftir því hversu hlýr neðri hluti veðrahvolfs er hverju sinni. Það er þykktin sem mælir það - og þykktarlágmarksmetum maímánaðar virðist ekki ógnað - enda kemur loftið úr vestri en ekki norðri.   

Endurgreiningin bandaríska giskar á 500 hPa-hæðina aftur í tímann - og gerir það oft vel. En henni er þó ekki jafnvel treystandi og háloftaathugunum - sérstaklega áður en farið var að gera slíkar athuganir. En lítum engu að síður á ágiskanir hennar um lága stöðu 500 hPa-flatarins í maí.

Lægsta talan sem hún finnur í námunda við landið í maí er 4970 metrar - sama tala og verið er að spá á fimmtudaginn. Þetta á að hafa gerst 1.maí 1934. Vel má vera að þetta sé nærri lagi, alla vega var veður afskaplega dapurlegt á landinu um þær mundir - „umhleypingar og kalsaveður“ segir Veðráttan. Þrýstingur fór lægst niður í 973,5 hPa. 

Önnur sérlega lág tala birtist í endurgreiningunni þann 27.maí 1930, 4995 metrar. Athyglisvert er hversu seint þetta er í mánuðinum og því í raun enn óvenjulegra fyrir vikið. Gæti líka verið nærri lagi. Þessi atburður var hluti af slæmu hreti, Veðráttan segir: „... kom lægð norðvestan yfir Grænland og fór hér suðaustur yfir landið. Olli fyrst vestan átt og síðan norðangarði, með hríðarbyl á Vestfjörðum, en kalsaveðri og slyddu á Norðurlandi“. Loftþrýstingur fór lægst niður í 975,5 hPa í þessu veðri. 

Þriðja tilvikið sem við finnum fyrir tíma háloftaathugana er frá 1.maí 1897. Að sögn fór hæðin þá niður í 5016 metra, en þrýstingur mældist lægstur 970,8 hPa þannig að líklega er ágiskun endurgreiningarinnar um hæð 500 hPa-flatarins ekki fjarri sanni. Mikið illskuveður fylgdi - við munum vonandi rifja það upp hér síðar á hungurdiskum í umfjöllun um árið 1897 (hvenær sem að því nú kemur). En upphaf fréttar Ísafoldar um veðrið er þó svona: „Tíu daga vorhret, svo stórkostlegt að veðurhæð, kulda og snjókomu um meiri hluta lands, sem um hávetur væri, - það eru raunatíðindi þau, er nú höfum vér að flytja“.

Hungurdiskar munu greina frá þróun mála - verði metum ógnað í raun. En munum enn og aftur að spár eru bara spár - og þær eru sífellt að bregðast.  


Bloggfærslur 29. apríl 2018

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 58
  • Sl. sólarhring: 58
  • Sl. viku: 549
  • Frá upphafi: 2343311

Annað

  • Innlit í dag: 53
  • Innlit sl. viku: 499
  • Gestir í dag: 45
  • IP-tölur í dag: 40

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband