Skýjabrún

Ţeir sem horfđu til himins á Vesturlandi í dag (laugardag 21. apríl) gćtu hafa veitt ţví athygli ađ langt yfir lćgri skýjum lá blikubakki um allt austurloftiđ - en bjart var til vesturs. Í ađalatriđum var bakkinn á svipuđum slóđum allan daginn. Viđ skulum líta á gervihnattahitamynd sem tekin var nú í kvöld (fengin á vef Veđurstofunnar).

w-blogg210418a

Bakkinn „hringar sig“ í kringum lćgđ sem er suđsuđaustur af landinu. Lćgđin hreyfist til norđausturs - en bakkinn helst á svipuđum slóđum ţar til lćgđin er komin hjá. Ţó viđ orđum ţetta svona - hringar sig - er ţađ e.t.v. ekki mjög nákvćmt orđalag. Viđ látum okkur ţó hafa ţađ. Eins og venjulega er norđanátt vestan viđ lćgđarmiđjuna - viđ sjávarmál. Í ţeirri hćđ sem blikan er á ferđ er hins vegar sunnanátt.

w-blogg210418b

Hér má sjá sjávarmálsveđurkort. Vindörvar eru á kortinu ásamt sjávarmálsţrýstingi (heildregnar línur), úrkomu og fáeinum jafnhitalínum 850 hPa-flatarins (strikađar). En sunnanáttin efra - hversu langt er upp í hana? Háloftaathugun sem gerđ var rétt fyrir hádegi yfir Keflavíkurflugvelli sýndi vindáttaskipti í rúmlega 4 km hćđ. Ţar fyrir ofan var rakt lag - ţar voru skýin ţá í snarpri suđvestanátt, um 25 m/s. Nú undir miđnćttiđ hafđi sunnanáttin hörfađ upp í 6 km og raka loftiđ var horfiđ (til austurs). Stöđin var komin vestur fyrir skýjabakkann - rétt eins og sjá má á gervinhattamyndinni. 

Ţetta sést nokkuđ vel á spá evrópureiknimiđstöđvarinnar fyrir 300 hPa-flötinn og gildir kl.21 í kvöld.

w-blogg210418c

Flöturinn er hér í um 8840 metra hćđ yfir Keflavík - norđvestanátt vestan viđ (sjá jafnhćđarlínurnar sem eru heildregnar - og vindörvar) - en sunnanátt austan viđ. Litirnir sýna hitann. Brúnu litirnir marka hćrri hita en ţeir grćnu (kvarđinn skýrist nokkuđ sé myndin stćkkuđ). Hlýindin vestan viđ land - einmitt á svćđinu hreina vestan blikunnar - sýna ađ ţar ríkir niđurstreymi - mjög fjandsamlegt skýjum - mun kaldara er hins vegar yfir landinu - ţar er uppstreymi - sem býr til blikuna. Mörkin milli upp og niđurstreymissvćđa eru skörp - skýjabrúnin er ţađ líka.

Allrahlýjast er ţó á bletti sunnan lćgđarmiđjunnar - ţar hafa veđrahvörfin dregist niđur - og vegna ţess ađ ţessi hlýi blettur og lćgđarmiđjan sjálf eru ekki sammiđja gćti lćgđin (niđri viđ sjávarmál) dýpkađ nokkuđ til morguns á leiđ sinni til Noregs (en ţađ er önnur saga).


Bloggfćrslur 22. apríl 2018

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 336
  • Sl. sólarhring: 348
  • Sl. viku: 2115
  • Frá upphafi: 2347849

Annađ

  • Innlit í dag: 293
  • Innlit sl. viku: 1825
  • Gestir í dag: 277
  • IP-tölur í dag: 268

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband