Ţokubakkar

Reiknilíkön nútímans reyna líka ađ spá ţoku. Ţađ virđist stundum ganga - stundum ekki. Ţokan er erfiđ viđfangs. 

Í spárunu frá ţví í hádegi í dag (laugardag 17. mars) tók ritstjóri hungurdiska eftir ţví ađ veriđ er ađ spá nokkru frosti yfir sjó viđ norđausturströndina á morgun sunnudag. Ţetta er frekar óvenjulegt í hćgum vindi ţví sjávarhiti á ţessum slóđum er yfir núllinu. Sá hiti ćtti ađ sjá til ţess ađ trauđla frjósi ţar í 2 m hćđ. 

En svo virđist standa á ađ fyrst kólnar ţetta loft yfir landi í nótt, streymir út yfir sjó og ţar myndast ţunn ţoka. Viđ efra borđ hennar getur kólnađ mjög hratt viđ útgeislun og rétt hugsanlegt ađ blöndunin - sem verđur vegna bćđi hitunar ađ neđan - og kólnunar ađ ofan hafi ekki alveg undan útgeisluninni ţannig ađ hiti haldist neđan frostmarks um stund. 

w-blogg170318a

Kortiđ sýnir hita í 2 m hćđ kl. 14 á sunnudag. Viđ sjáum ţessa einkennilegu frostbletti á Ţistilfirđi, Bakkaflóa og viđ annes á Austfjörđum. Sólin hefur hins vegar hitađ strendurnar og náđ upp blöndun ţar - hreinsađ burt nćturkuldann.

Nćsta kort sýnir mismun á 2 m hita og hita í 100 metra hćđ í líkaninu. Kort sem ţetta sýna grunnstćđ hitahvörf mjög vel.

w-blogg170318b

Á gulu svćđunum er 2 metra hitinn hćrri en í 100 metra hćđ - ţar er vćntanlega snjólaust á landi í líkaninu og sólarylur vermir land. Ţar sem gult er langt úti á sjó er sjórinn einfaldlega hlýrri en loftiđ í 100 metra hćđ - og engin ţoka ađ ţvćlast fyrir međ sinn útgeislunarflöt.

Á Ţistilfirđi er hiti í 2 m hćđ 4 til 5 stigum lćgri en í 100 metra hćđ. 

Líkaniđ reynir líka ađ gist á ţađ hvar er ţoka (rakastig 100 prósent í 10 metra hćđ).

w-blogg170318c

Jú, ekki ber á öđru á svörtu svćđunum segir líkaniđ ađ meir en 90 prósent líkur séu á ţoku og falla ţau vel saman viđ frostbletti fyrstu myndarinnar. 

Hvort ţokan svo sýnir sig í raun og veru á morgun er svo annađ mál. 


Bloggfćrslur 17. mars 2018

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 105
  • Sl. sólarhring: 111
  • Sl. viku: 1854
  • Frá upphafi: 2348732

Annađ

  • Innlit í dag: 95
  • Innlit sl. viku: 1625
  • Gestir í dag: 86
  • IP-tölur í dag: 86

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband