Miðað við hita síðustu tíu ára

Við skulum nú bera saman hita ársins 2018 og meðalhita síðustu tíu ára (2008 til 2017). Á landinu í heild má segja að árið hafi verið nákvæmlega í því meðallagi, en hiti var lítillega neðan þess vestanlands, en ofan við á Norðaustur- og Austurlandi. Þetta sést vel á meðfylgjandi korti. Hafa verður í huga að tölur á einstaka stöð gætu hrokkið til um 0,1 stig á síðustu 2 dögum ársins. 

w-blogg301218i-a

Bláar tölur sýna neikvæð vik, en rauðar jákvæð. Við verðum að hafa í huga að meðalhiti síðustu tíu ára er 1,0 stigi ofan við meðalhita síðustu aldar. Öll ár það sem af er 21.öld hafa verið hlý í þessu samhengi. Sé talið allt aftur til 1874 lendir landsmeðalhiti ársins 2018 í 15. til 17. hæsta sæti - sjá töfluna hér að neðan.

röðár byggðir °C
12014 5,1
22003 5,1
32016 5,0
41933 4,9
51939 4,7
61941 4,7
71946 4,7
82004 4,7
82017 4,7
101960 4,6
111945 4,6
122010 4,6
131953 4,5
142006 4,5
152009 4,4
152018 4,4
151987 4,4

Hiti hefur síðustu 9 árin verið nokkuð í „jafnvægi“ eftir gríðarlega hlýnun áratuginn á undan - en samt langt ofan þess sem áður var.

w-blogg301218i-b

Hér má sjá 10-ára (120-mánaða) keðjumeðalhita á landinu. Ártalið er merkt í lok hvers tíu ára tímabils - fyrsta talan á þannig við áratuginn 1991 til 2000 (120-mánuði) og er merkt sem 2000. Meðalhiti síðustu tíu ára er nú 4,43 stig, 0,9 stigum hærri en árið 2001. Hlýnunin síðan þá samsvarar um 5 stigum á öld. Hraði hlýnunarinnar var mestur á árunum 2002 til 2010, þá samsvaraði hraðinn hlýnun um 10 stig á öld. Það sjá vonandi flestir að heimsendir er í nánd haldist slíkt áratugum saman. Gróflega má segja að við höfum þegar tekið út nærri helming þeirrar hlýnunar sem nú er helst gert ráð fyrir til næstu aldamóta. Ólíklegt er þó að það sem eftir er (komi það) eigi sér stað jafnt og þétt. Miklu líklegra er að allstór stökk verði fram og til baka - bæði til kólnunar og hlýnunar á víxl. Það er ótvírætt merki um alvarlega stöðu í heiminum gangi hlýnunin mikla sem við sjáum á myndinni hér að ofan ekki til baka að öllu eða einhverju leyti. Komi annað ámóta stökk á næstunni erum við komin í gjörólíkt tíðarfar. 


Eitt af fimm hlýjustu árum eystra

Árið 2018 var enn hlýrra austanlands heldur en um landið sunnan- og vestanvert. Svo virðist sem meðalhitinn á Teigarhorni sé sá fimmti (til sjötti-) hæsti frá upphafi mælinga þar 1873. Árin sem voru hlýrri eru 2014, 2016, 2017 og 2003 - jafnhlýtt var 1972. Á Egilsstöðum ná áreiðanlegar mælingar ekki nema aftur til 1955, en á þeim tíma er árið 2018 það fimmtahlýjasta - sömu ár hlýrri þar og á Teigarhorni, nema minna munar á 2018 og því hlýjasta (2014). 

Að halda því fram að árið 2018 sé annað hvort kalt eða meðalár er auðvitað fráleitt í þessu samhengi. 

Við lítum á línurit.

w-blogg301218

Hiti á Teigarhorni og Egilsstöðum fylgist allvel að - þó vetur séu kaldari á síðarnefnda staðnum og sumur hlýrri - ár eru hlý eða köld á báðum stöðum samtímis - en röðin auðvitað ekki sú nákvæmlega sama. 

Langtímaleitni á Teigarhorni reiknast +1,3 stig á öld - mun meiri heldur en í Stykkishólmi, en munurinn stafar af einhverju leyti af lengd viðmiðunartímabilsins - það er mun lengra í Hólminum og nær alveg yfir allt 19.aldarhlýskeiðið - sem mæliröðin á Teigarhorni sér ekki. Núlíðandi áratugur hefur verið sérlega hlýr við austurströndina - sérstaklega frá og með 2014. Líklega hefur aðstreymi kaldsjávar að norðan (og/eða uppstreymi að neðan) „brugðist“ í Austuríslandsstraumnum - en það eru bara vangaveltur. 


Bloggfærslur 30. desember 2018

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 57
  • Sl. sólarhring: 123
  • Sl. viku: 1806
  • Frá upphafi: 2348684

Annað

  • Innlit í dag: 52
  • Innlit sl. viku: 1582
  • Gestir í dag: 51
  • IP-tölur í dag: 51

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband