Enn einu hlýju ári að ljúka

Menn eru nú svo farnir að venjast hlýindunum að talað er um árið 2018 sem meðalár hvað hita varðar. Endanleg skipan þess í sæti verður að sjálfsögðu ekki ljós fyrr en því er alveg lokið (sætakeppnin er hörð) en það er alla vega 23. árið í röð sem hiti er yfir meðallagi áranna 1961-1990 í Reykjavík. Svo virðist sem meðalhitinn þar endi í 5,1 stigi - eða þar um bil og í um það bil 4,6 stigum á Akureyri. En bíðum með endanlegt uppgjör. Þangað til lítum við á mynd sem sýnir ársmeðalhita í Stykkishólmi frá 1798 að telja. Þar virðist ársmeðalhitinn ætla að enda í 4,5 stigum. 

w-blogg281218a

Hér má glöggt sjá að árið 2018 er í flokki þeirra hlýrri á langtímavísu, hitinn +1,1 stigi ofan meðallags alls tímabilsins - og hlýrra en nær öll ár kuldaskeiðsins 1965 til 1995 - og á hlýskeiðinu frá 1925 til 1964 voru aðeins tíu ár (af 40) hlýrri en 2018. Á allri 19.öld finnum við e.t.v. 1 til 2 jafnhlý ár eða hlýrri - aðeins. 

En hvernig horfir málið við ef við „fjarlægjum“ hina almennu hlýnun? Það sýnir næsta mynd.

w-blogg281218b

Tölurnar á lóðrétta ásnum eru marklausar sem slíkar - við getum ímyndað okkur að þær segi frá hitanum hefði engrar almennrar hlýnunar gætt (þannig er það þó auðvitað ekki). Meðalhiti alls tímabilsins er 2,9 stig - og árið 2018 +0,3 stig ofan þess meðaltals. Hér sést enn betur heldur en á hinni myndinni hvað tímabilaskipting er mikil - hvað kólnar og hlýnar skyndilega - jafnvel á aðeins 1 til 3 árum. Sömuleiðis sést mjög vel að breytileiki frá ári til árs var mun meiri á 19.öld heldur en nú. Líklega tengist það mun meiri hafís í norðurhöfum þá heldur en þar hefur verið á síðari árum. - Norðanáttin var mun kaldari heldur en sama átt nú - ef hún á annað borð var ríkjandi. 

En árið 2018 er - hvað hitafar varðar - ekki boðberi neinna breytinga frá því sem verið hefur á þessari öld. Hlýskeið hennar ríkir enn. Hvenær því lýkur vitum við ekki. Þetta hlýskeið kom nokkuð óvænt (alla vega var óvænt hversu snögglega það skall á) - kuldaskeiðið 1859 til 1925 stóð í meir en 60 ár - þeir sem bjuggust við að einhver regla væri ríkjandi í skipan hlý- og kuldaskeiða gátu alveg eins vænst þess að kuldinn sem hófst 1965 stæði í 30 ár til viðbótar því sem hann gerði (væri kannski að ljúka upp úr 2020). Þeir sem enn halda fram einhverri reglu gætu sagt að hlýskeiðið ætti að standa í 40 ár - rétt eins og þau tvö fyrri sem við þekkjum allvel gerðu. - En það hefur nú ekki staðið nema í rúm 20. - En það er engin regla - núverandi hlýskeiði gæti lokið á morgun - eða það haldið áfram eða magnast enn frekar - aukist hin almenna hlýnun eins og sumir vænta. 

En við lítum betur á árið 2018 þegar því er endanlega lokið - það var t.d. mjög úrkomusamt og úrkomudagar óvenju margir. 


Bloggfærslur 28. desember 2018

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 258
  • Sl. sólarhring: 305
  • Sl. viku: 1832
  • Frá upphafi: 2350459

Annað

  • Innlit í dag: 184
  • Innlit sl. viku: 1633
  • Gestir í dag: 174
  • IP-tölur í dag: 174

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband