Óvenjulegt úrkomumagn í Reykjavík

Úrkoma hefur verið óvenjumikil í Reykjavík (og víðar) síðustu tvo daga - eins og spáð hafði verið. Samtals komu 83,2 mm í hefðbundna mælinn á Veðurstofutúni. Sýnist ritstjóra hungurdiska að það sé met fyrir tveggja daga úrkomusummu í Reykjavík - árið um kring, enda rúmlega 10 prósent meðalársúrkomu - og fleytir árinu ofar á lista þeirra úrkomumestu. Ákefðin var til þess að gera jöfn - og ákefðarmet (mælist í mm á klukkustund) var ekki slegið. 

Skiptingin á sólarhringa var nokkuð jöfn. Í hefðbundnum úrkomumælingum er ætíð skipt milli sólarhringa kl.9 að morgni. Er þá skráð úrkoma næstliðins sólarhrings. Þegar fram líða stundir og sjálfvirkar mælingar taka við er eðlilegra að miða við „réttan“ sólarhring - sjálfvirku mælinum er alveg sama um hvenær dagsins þeir eru að mæla.

Að morgni þess 17. höfðu fallið 35,5 mm í mannaða úrkomumælinn á Veðurstofutúni frá því kl.9 morguninn áður og daginn eftir, þann 18., var sólarhringsúrkoman 47,7 mm. Tveir sjálfvirkir mælar eru á Veðurstofutúni, sá þeirra sem mældi meira skilaði 37,0 mm og 44,8 mm þessa tvo sólarhringa, samtals 81,8 mm. Hámarksúrkoma í „réttum“ sólarhring var hins vegar 49,3 mm. 

Fyrra nóvemberúrkomumet Reykjavíkur var 46,8 mm sett þann 28. árið 1902, og þann 30. nóvember 1905 mældist úrkoman 45,8 mm. Í þau skipti var úrkoma dagana fyrir og eftir hins vegar talsvert minni en nú. 

Sólarhringsúrkoma hefur tíu sinnum mælst meiri í Reykjavík heldur en nú, mest 56,7 mm þann 5.mars 1931. Fáeinar þessara eldri mælinga eru óstaðfestar - en við veltum okkur ekkert upp úr því - engin er úr nóvembermánuði. 

Við lítum líka á ákefðina.

w-blogg181118a

Hér má sjá hversu mikil úrkoma féll á hverri klukkustund . Við skulum fyrst taka eftir því hversu „snyrtilega“ atburðurinn fellur á tvo hefðbundna mælisólarhringa - en skiptist hins vegar á þrjá ef við færum að miða við „rétta“ - ekki víst að tveggjadagametið hefði fallið væru réttu sólarhringarnir notaðir. - Ágætt dæmi um það hvernig mælihættir hafa áhrif á met.  

Ákefðin er lengst af í kringum 2 mm/klst. Við sjáum að úrkoman var mun minni um stund að morgni laugardags heldur en annars - skiptir atburðinum í tvennt og að ákefðin var langmest í kringum miðnætti aðfaranætur sunnudags 18.nóvember. 

Úrkoma var víða mikil. Á Hólmsheiði rétt ofan Reykjavíkur mældust t.d. 140,4 mm á sama tíma og 83,2 mældust á Veðurstofutúni. 

En eftir situr nokkuð góð tilfinning gagnvart spám reiknimiðstöðva og harmonie-líkansins sem náðu þessum aftakaatburði vel. 

Þeir sem nenna geta rifjað upp gamlan hungurdiskapistil: „Mikil rigning - hversu mikil er hún?“

Ekki fór mikið fyrir vindhraðametum í veðrinu um helgina - jú, vindhraði hefur ekki mælst meiri í nóvembermánuði við Kolgrafarfjarðarbrú, í Búlandshöfða og Ólafsvík. Dagarnir náðu hins vegar ekki inn á stormdagalista ritstjóra hungurdiska - þó laugardagurinn 17. væri sá fimmtihvassasti á árinu á landsvísu. Sýnir kannski hversu rólegt þetta ár hefur verið svona yfirleitt.

En hitinn var óvenjuhár - líklega var laugardagurinn þriðjihlýjasti nóvemberdagur á landsvísu - aðeins tveir dagar í nóvember 1999 hlýrri en nú - en rétt að hafa í huga að við þekkjum daglegan landsmeðalhita ekki nema aftur til ársins 1949.


Bloggfærslur 18. nóvember 2018

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 139
  • Sl. sólarhring: 318
  • Sl. viku: 1455
  • Frá upphafi: 2349924

Annað

  • Innlit í dag: 118
  • Innlit sl. viku: 1321
  • Gestir í dag: 117
  • IP-tölur í dag: 113

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband