Af stöðu á norðurslóðum þessa dagana

Við lítum til gamans á kort sem sýnir stöðuna á norðurslóðum þessa dagana. Ísland er alveg neðst á myndinni.

w-blogg160118a

Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar - því þéttari sem þær eru því meiri er vindurinn. - Við erum svo norðarlega að ekki sér til heimskautarastarinnar - vindur er meira að segja austlægur víða. Þykktin er sýnd með litum. Því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. Blár litur er ríkjandi - eins og vera ber á þessum árstíma. 

Við sjáum báða stóru kuldapollana, sá sem er yfir Kanada og við köllum venjulega Stóra-Bola er í slappara lagi - það er afleiðing af árásinni miklu sem hann gerði á Grænland um helgina og olli illviðri hér á landi. Kuldabirgðirnar fóru langt með að klárast - tíma tekur að byggja þær upp aftur. Svo er sjórinn baki brotnu að hita loftið sem tók þátt í áhlaupinu. 

Eystri pollurinn, Síberíu-Blesi er hins vegar við bestu heilsu, sýnir okkur meira að segja fjóra fjólubláa liti og er það sérstakt heilbrigðismerki meðal kuldapolla. Ritstjórinn hefur gjarnan kallað þykkt sem er minni en 4740 metrar ísaldarþykktina - en á ísöld hefur sú þykkt hvað eftir annað leikið um Evrópu allstóran hluta vetrar - en kemur þar nú aldrei. Kannski hann verði aflögufær - og geti sent bróður sínum í vestri pakka yfir pólinn (eins og alloft gerist). 

En vestanvindabeltið heldur kuldanum eystra yfirleitt í skefjum - það er mun sjaldnar að Síberíu-Blesi geri árásir vestur um Evrópu heldur en að Stóri-Boli ráðist á Bandaríkin. En þó það sé ekki algengt ber það samt við og þá er illt í efni - jafnvel þótt ekki sé um ísaldarkalt loft að ræða. 

Norðanskot eru algengari ástæða kulda í Evrópu - þó þau geti verið slæm hafa þau þó oft mildast eitthvað yfir Barentshafi á leið sinni til suðurs - Síberíukuldinn hins vegar ekki. 

Miklar vangaveltur eru á sveimi í fjölmiðlum - og líka hjá ýmsum fræðimönnum - um að hlýnun norðurslóða valdi röskun á heimskautaröstinni - auki bylgjugang hennar. Ritstjóri hungurdiska hefur tæplega kunnáttu til þess að kasta slíkum hugmyndum út af borðinu í heild sinni - en samt er hann ekki alveg sáttur við allar ályktanir sem dregnar eru. Of langt er að rekja það mál að sinni (hefur að vísu verið reifað nokkuð í gömlum pistlum - en hver nennir að leita að slíku). - En sammála er hann þeim sem tala um að hringrásartruflanir að sumarlagi séu mun líklegri en þær sem að sögn trufla veturinn. - Eða að þær hringrásartruflanir sem hlýnunin veldur á norðurslóðum á vetrum séu töluvert annars eðlis heldur en þær sem koma í kerfið að sumarlagi. - Ekki sé rétt að rugla þeim saman.


Bloggfærslur 16. janúar 2018

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 106
  • Sl. sólarhring: 109
  • Sl. viku: 1855
  • Frá upphafi: 2348733

Annað

  • Innlit í dag: 96
  • Innlit sl. viku: 1626
  • Gestir í dag: 87
  • IP-tölur í dag: 87

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband