Um og fyrir jól 1957

Tíðarfar var mjög fjölbreytt á árinu 1957 og margt eftirminnilegt gerðist í veðri. Mikil illviðri voru í janúar, óvenjusnjóþyngsli í mars, sjávarflóð gerði í apríl og mikil leysingaflóð í maí. Sumarið var hins vegar blítt og gott. Október var órólegur og síðan var mjög illviðrasamt á síðari hluta jólaföstunnar. En einhvern veginn hlaut árið samt góða dóma og tíð oftar talin hagstæð. 

Aðalillviðrin voru af vestri, nokkuð sem nú hefur ekki verið í tísku um alllangt skeið. Það hlýtur þó að breytast, vestanáttin varla búin að gefa sig. 

Hér rifjum við lítillega upp slæma syrpu í síðari hluta desembermánaðar. Tjón varð þó minna en búast hefði mátt við miðað við afl þeirra veðrakerfa sem fóru hjá. Sýnir e.t.v. hvað tilviljanir ráða oft miklu. 

Fyrsta myndin er línurit sem sýnir hvernig loftþrýstingur sveiflaðist á landinu dagana 12. til 27. desember. 

w-blogg281217-jol1957

Gráu súlurnar (og lóðrétti kvarðinn til vinstri á myndinni) sýnir stærð þrýstispannar landsins á þriggja klukkustunda fresti þessa daga. Spönnin er munur á hæsta og lægsta þrýstingi á landinu. Ekki er alveg beint samband á milli hennar og vindhraðans m.a. vegna þess að landið er ekki hringlaga. Þrýstispönnin getur því orðið meiri í sama vindi í norðan- og sunnanátt heldur en í vestan- og austanátt vegna þess að landið er lengra frá vestri til austurs heldur en norðri til suðurs. 

Rauða strikalínan sýnir hins vegar lægsta þrýsting á sama tíma. Þessa daga voru þrýstibreytingar gríðarmiklar. Sjá má þrjár meginlægðir. Sú fyrsta fór hjá þann 14. til 16., sú næsta þann 19. og að lokum hin þriðja 24. til 25. (aðfangadag og jóladag). 

Lægð 2 og 3 voru sérlega djúpar (og nærgöngular), báðar sýndu þrýsting undir 950 hPa. Við sjáum líka að þrýstispönn sú sem fylgdi lægðunum var mikil í öllum tilvikunum þremur. Fyrsta og þriðja lægðin ollu nokkuð hreinum vestanveðrum. Veðrið í miðjunni (þ.19.) var ekki jafnhreint - fær samt vestanstimpil í flokkunarkerfi ritstjóra hungurdiska. 

Í fyrsta veðrinu barst mikil selta á land og olli rafmagnstruflunum. Dreifikerfið var lakara en nú er þannig að ekki er víst að ámóta veður myndi valda truflunum nú á dögum. Fyrirsögn í Tímanum þann 18. var orðuð svo: „Sá ekki til við að semja nefndarálit um kosningalagafrv. við kertaljós“ þeir sem vita um hvað málið snerist munu átta sig á pólitískum þunga orðalagsins - vandi að lesa í á stundum. - Bátur slitnaði upp í Kópavogi - kannski myndi slíkt endurtaka sig nú - og fréttir herma (Mbl. 17. des) að mönnum hafi verið bjargað úr eyju á Breiðafirði í foráttuveðri. Eyjan mun vera undan bænum Straumi í Skógarstrandarhreppi og mennirnir voru að huga að fé „er skyndilega brast á þvílíkt ofsaveður að fátítt má teljast“. 

Veðrinu þann 19. olli lægð sem fór til norðnorðausturs yfir landið austanvert. 

Slide1

Daginn áður var hún um 990 hPa djúp (að mati bandarísku endurgreiningarinnar) og stefndi til norðausturs. Í háloftunum var kuldapollur yfir Suður-Grænlandi. Þetta er hættuleg staða, enda dýpkaði lægðin gríðarlega - um nærri 50 hPa næsta sólarhringinn. Þrýstispönnin fór í 34,1 hPa - talsvert meira en í hinum veðrunum tveimur. 

Slide2

Kortið sýnir stöðuna um hádegi þann 19. Eins og oft er vanmetur endurgreiningin afl þessarar lægðar, í þessu tilviki um að minnsta kosti 13 hPa, en sýnir aðstæður hins vegar vel og ástæður dýpkunarinnar - staðsetning miðjunnar er að auki allgóð. 

Slide3

Klukkan 9 að morgni þess 19. var lægðin yfir Austurlandi, líklega um 942 hPa í miðju. Sæmilegasta veður er vestanlands - eins og oft er við kringumstæður sem þessar. Sjávarmálsþrýstinginn má finna með lestri tölunnar sem færð er til hægri ofan við stöðvarnar (aðeins þar sem loftvog er). Við Hóla í Hornafirði stendur t.d. 485 - úr því lesum við 948,5 hPa, og á sama hátt 944,2 á Egilsstöðum. Undir þrýstitölunni er önnur sem venjulega sýnir breytingu síðustu 3 klukkustundir - en forritið sem gerir kortið kann ekki að lesa rétt úr breytingum sem eru meiri en 10 hPa - og gerir 10 að 20, og svo framvegis, en engu að síður erum við hér að sjá gríðarstórar þrýstisveiflur um landið austanvert. 

Lægðin fór svo norður af rétt austan Raufarhafnar þar sem þrýstingur á hádegi fór niður í 941,2 hPa. Á eftir lægðinni gerði gríðarlegt vestanveður um landið austanvert. Mesta furða var þó hvað tjón varð lítið. Þak tók þó af lýsisvinnslu á Raufarhöfn og minniháttar foktjóns var getið á nokkrum stöðum öðrum. Húsvíkingar fengu hroll - og þóttust heppnir. 

Það sem er þó athyglisverðast við þetta veður er að það olli sjávarflóði á Akureyri og Svalbarðseyri og varð töluvert tjón af þess völdum. Um það má lesa í frétt í Tímanum og fleiri blöðum. 

Slide4

Þetta flóð og aðstæðurnar sem sköpuðu það eru allrar athygli verðar. Hér hafa allstór veðurtengd flóðbylgja og háflæði fallið saman í tíma - líkur á slíku eru ekki miklar en gerðist samt. Vitað er um fáeina fleiri atburði af þessu tagi á Akureyri og víst að einhverjir bíða í framtíðinni. Vonandi þó án þess að stórvandræði hljótist af. 

Enn blés svo til tíðinda. 

Slide5

Þetta kort gildir síðdegis á Þorláksmessu, 23. desember 1957. Vaxandi lægð er á Grænlandshafi vestanverðu á leið norðaustur. Líklega er önnur lægð hálffalin í lægðardraginu austur af Nýfundnalandi (þar sem örin bendir) og gengur hún inn í hina fyrri og allt kerfið dýpkar gríðarlega - önnur ofurlægðin á fáeinum dögum verður til. 

Á miðnætti á aðfangadagskvöld var lægðin rétt fyrir norðan land. 

Slide7

Hér er endurgreiningin nokkurn veginn með flest rétt. Lægðarmiðjan í kringum 946 hPa og staðsetning viðunandi. 

Ritstjórinn man þetta veður vel - það er þó tilviljun fremur en veðuráhugi því veðrið bar upp á jólin. Rafmagnið fór í Borgarnesi og víðar - rétt í þann mund sem amma hafði lokið við að steikja jólarjúpurnar - en móðir mín var við messu í gamla skólanum (þetta var áður en byggingu Borgarneskirkju var lokið). Vestanstormurinn og élin voru ógurleg og dimm. Messugestir komust þó heim að lokum og hægt var að hefja jólahald við kertaljós. 

Reykvíkingar minnast þessara jóla helst fyrir mikinn bruna sem varð í Þingholtunum - sérlega erfiður í illviðrinu. 

En fokskaðar urðu mestir á Snæfellsnesi og við Eyjafjörð. Við sjáum hér fréttaklippu úr Tímanum þar sem fjallað er um illviðrið á Akureyri og þar í grennd. Blindhríð í hreinni vestanátt á Akureyri er gjarnan tengd miklum vindi ofan af fjöllunum í grennd og hefur þannig staðið á í þetta sinn. 

Slide8

Því miður voru engar vindhraðamælingar á Akureyri um þessar mundir og mesta vindhraða ekki getið í veðurskeytum. Mikið veður varð einnig eystra á Héraði og þar í grennd - en tjón þó ekki mikið þar. 


Fáeinar bráðabirgðatölur ársins 2017

Fáeinar bráðabirgðatölur ársins 2017: Meðalhiti þess í Reykjavík er í kringum 5,5 stig, í meðallagi síðustu tíu ára, en +1,2 stigi ofan meðallags áranna 1961 til 1990 og er þetta 22. árið í röð ofan þess meðallags. Hlýindin eru við 16. sæti hlýrra ára í Reykjavík (af 147).

Í Stykkishólmi er meðalhitinn 5,0 stig, +0,1 stigi ofan meðallags síðustu tíu ára og er árið það níundahlýjasta af 172 árum samfelldra mælinga. Á Akureyri er meðalhitinn líka 5,0 stig og er aðeins vitað um þrjú hlýrri ár þar um slóðir. Austur á Egilsstöðum reiknast meðalhitinn 4,8 stig, það næsthæsta sem vitað er um þar. Á Stórhöfða í Vestmannaeyjum er meðalhitinn 5,6 stig, -0,1 stigi neðan meðallags síðustu tíu ára.

Úrkoma var rétt ofan meðallags áranna 1961 til 1990 víðast hvar á landinu, um 13 prósent í Reykjavík og 26 prósent á Akureyri. Í Stykkishólmi var hún í rétt tæpu meðallagi.

Sólskinsstundir í Reykjavík voru 70 fleiri en að meðaltali 1961 til 1990, en um 90 færri en að meðaltali síðustu tíu árin.

Endanlegar tölur birtast væntanlega í næstu viku. 


Bloggfærslur 29. desember 2017

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 495
  • Sl. viku: 2244
  • Frá upphafi: 2348471

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 1965
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband